Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra keppenda og starfsmanna

#4 - 13. júlí 2021 kl: 13:44
Upplýsingatafla

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Aj9q7

Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.


Frá: Dómnefnd - Til: Allra keppenda og starfsmanna

#1 - 26. apríl 2021 kl: 15:06
Frestun keppni og breytingar á sérreglum til samræmis

Í samráði við AKÍS hefur keppni hefur verið frestað til 17. júlí 2021 og breytist grein 1.3 í sérreglum keppninnar til samræmis. Skráningarfrestur er lengdur og lýkur eftirskráningu þann 14. júlí 2021 kl. 23:00 og breytist grein 6.4 í sérreglum keppninnar til samræmis.

Jón Bjarni Jónsson, formaður dómnefndar
Tryggvi M. Þórðarson, dómnefndarmaður
Ragnar Róbertsson, dómnefndarmaður