Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#4 - 27. ágúst 2022 kl: 14:17
Atli Jóhann Einarsson

Öryggisfulltrúi þarf að yfirgefa keppni og tilnefnir fulltrúa í sinn stað sem er Atli Freyr Garðarsson.

 

Fyrri færsla skal hunsuð.


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#3 - 27. ágúst 2022 kl: 14:13
Atli Jóhann Einarsson

Öryggisfulltrúi þarf að yfirgefa keppni og tilnefnir fulltrúa í sinn stað sem er Arnar Daði Ísfeld Birgisson.


Frá: Dómnefnd - Til: Keppenda

#2 - 23. ágúst 2022 kl: 11:05
Atli Jóhann Einarsson

Dómnefnd gerir eftirfarandi breytingar á sérreglum minni götubíla í samráði við keppnisstjóra. Reglur eru í dag: GREIN 6.2 MINNI GÖTUBÍLAFLOKKUR 6.2.1 Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk. 6.2.2 Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð. 6.2.2.a Keppnisstjori getur þó gefið undanþágu frá þessum reglum vegna tjóns sem hefur orðið í keppninni. 6.2.3 Útfærsla á vél- og drifbúnaði er frjáls. 6.2.3.a Hámarks afl er 300 hestöfl við hjól samkvæmt aflmælingu viðurkenndri af AKÍS. 6.2.3.b Dómnefnd er heimilt að láta framkvæma aflmælingu til staðfestingar á hámarks afli telji hún ástæðu til þess. 6.2.3.b.i Keppandi greiðir fyrir mælinguna reynist afl ökutækisins yfir settu hámarki. 6.2.3.b.ii Keppnishaldari greiðir fyrir mælinguna reynist afl ökutækisins innan settra marka. 6.2.4 Allar breytingar á stýrisbúnaði eru leyfðar. 6.2.5 Ökumenn mega ekki keyra fleiri en átta keppnir í flokknum. 6.2.5.a Lendi ökumaður í þremur efstu stigasætum íslandsmótsins í drifti er honum óheimilt að taka þátt í flokknum framar. 6.2.5.a.i Regla 6.2.5.a. á ekki við ef ökumaður er yngri en 17 ára. 6.2.5.b Hafi ökumaður keppt í Götubíla- eða Opnum flokki er honum óheimilt að keyra í flokknum. 6.2.6 Dekk skulu ekki vera breiðari en 225mm. Sérreglubreyting verður sú að bætt verður við reglu 6.2.7 sem hljómar svo: "Sé ökutæki ekki á númerum skal keppandi framvísa vottorði fyrir bremsum og stýrisgangi frá viðurkenndri skoðunarstöð" Fyrir hönd dómnefndar Atli Jóhann Einarsson, Formaður dómnefndar


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#1 - 10. ágúst 2022 kl: 18:50
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://docs.google.com/document/d/1t6p_4HIgW4ri2LnwO5cV54h-03OlAizSH_2y1bc7_7I/edit?usp=sharing

Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.