Engar kærur bárust innan kærufrests.
Úrslit í keppninni urðu því sem hér segir:
# | Áhöfn | Fl | Refsing |
1 | Skafti & Daði | A | 0:54:38 |
2 | Almar & Vigdís | C | 0:57:57 |
3 | Biggi & Valli | A | 0:58:02 |
4 | Halldór & Sigurgeir | C | 1:01:32 |
5 | Stefán & Atli | C | 1:02:33 |
6 | Björgólfur / Hergill | C | 1:06:49 |
7 | Bogi & Árni | E | 1:37:50 |
8 | Halldór & Tryggvi | E | 1:39:37 |
Tryggvi M Þórðarson formaður,
Ari Halldór Hjaltason,
Guðmundur Örn Þorsteinsson
Bráðabirgðaúrslit í Orkurally er að finna í viðhengi.
Kærufrestur er 30 mínútur frá birtingu
Framkvæmdanefnd
Mættir:
1) Skýrsla skoðunarmanns: Við endurskoðun komumst allir í gegnum keppnisskoðun og hafa fengið rásheimild. Dómnefnd staðfestir því rásröð og rásheimild fyrir keppendur eins og birtast í skjali 4.
2) Leyfi liggja fyrir
Ekki fleira gert
F.h. Dómnefndar
Tryggvi M Þórðarson / Guðmundur Örn Þorsteinsson
Eftir ábendingu framkvæmdastjórnar um að misskilja megi seinni málsgrein upplýsingaskýrslu númer 5, þá vill dómnefnd taka fram að þetta þýðir eingöngu að hún muni í einni upplýsingaskýrslu gefa út hvaða bifreiðar hafi staðist keppnisskoðun og fái því rásheimild. Þetta er eitt af verkum þeim sem dómnefndar á að gera áður en fyrsta bifreið er ræst. Dómnefnd ákvað að gera þennan lista aðeins einu sinni, og þá að morgni laugardags.
Vonandi skýrir þetta textann.
F.h. dómnefndar
Tryggvi M Þórðarson
Mættir:
Skoðunarmaður flutti skýrslu sína og kvað 7 af 14 keppendum ekki hafa fengið skoðun. Ástæður voru margvíslegar, meðal annars skjölun, stólar og ljós, sem dæmi.
Endurskoðun fer fram kl. 7:30 á keppnisdag hjá félagsheimili AÍFS.
Í ljósi þess hve margar bifreiðar fengu ekki keppnisskoðun ákvað dómnefnd að gefa ekki út rásheimild, heldur halda fund kl. 8:00 næstkomandi laugardag í félagsheimili AÍFS að auka keppnisskoðun lokinni.
F.h. dómnefndar
Tryggvi M Þórðarson