Eftir ábendingu framkvæmdastjórnar um að misskilja megi seinni málsgrein upplýsingaskýrslu númer 5, þá vill dómnefnd taka fram að þetta þýðir eingöngu að hún muni í einni upplýsingaskýrslu gefa út hvaða bifreiðar hafi staðist keppnisskoðun og fái því rásheimild. Þetta er eitt af verkum þeim sem dómnefndar á að gera áður en fyrsta bifreið er ræst. Dómnefnd ákvað að gera þennan lista aðeins einu sinni, og þá að morgni laugardags.
Vonandi skýrir þetta textann.
F.h. dómnefndar
Tryggvi M Þórðarson