Ljómarall í Skagafirði

Ljómarall í Skagafirði

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: Sprautun@bsp.is

Lýsing

Ljómarall í Skagafirði - 28. júlí 2018

Bílaklúbbur Skagafjarðar boðar til Ljómaralls í Skagafirði, laugardaginn 28. júlí nk.  Keppnin er sú þriðja í röðinni í Íslandsmótinu og fer fram skv. reglum Akstursíþróttasambands Íslands sem fyrir liggja á vefslóðinni www.akis.is

Keppnisstjóri:             Þórður Ingvason, sími 698 4342.

Dómnefnd:                 Ólafur Kr. Guðmundsson, sími 897 6154.

                                   Ásta Sigurðardóttir, sími 846 7415.

                                   Ragnar Róbertsson, sími 777 6111.

Skoðunarmaður:         Sigurjón Árni Pálsson, sími 773 6404.

Öryggisfulltrúi:            Ingvar Guðmundsson, sími 861 0426.

Dagskrá:

9. júlí mánudagur– Dagskrá birt og skráning hefst.

18. júlí miðvikudagur, kl. 23:59 – Skráningu lýkur.

20. júlí föstudagur, kl. 21:00 – Rásröð birt.

23. júlí mánudagur, kl. 19:00 – Öryggisskoðun keppnisbifreiða við Bíla og hjól, Njarðarbraut 11A, Reykjanesbæ.

24. júlí þriðjudagur, kl. 19:00 – Öryggisskoðun keppnisbifreiða við Frumherja, Dalshrauni 5, Hafnarfirði.

27. júlí föstudagur,

kl. 17:00 – Öryggisskoðun keppnisbifreiða við Hendil, Borgarteigi 5, Sauðárkróki.

kl. 18:30 – Leiðarskoðun um sérleiðina Nafir á Sauðárkróki í fylgd keppnisstjórnar.  Önnur leiðaskoðun um Nafir er óheimil.

kl. 19:00 – Starfsmannafundur í Sveinsbúð, húsi Björgunarsveitarinnar á Sauðárkróki.

28. júlí laugardagur,

kl. 07:45 – Fundur með keppendum í Stjórnstöð keppninnar, húsnæði TM við Ártorg, norðurenda þess húss sem hýsir N1 á Sauðárkróki.

kl. 08:00 – Ræsing frá Sauðárkróki – bifreiðastæði við Skagfirðingabúð.

kl. 17:30 – Keppendur koma í endamark, kærufrestur hefst og verðlaunaafhending að honum loknum.

kl. 19:30 – Kvöldverðarhlaðborð á Mælifelli.

kl. 23:00 – Dansleikur á Mælifelli.

 

 

Dagskrá

Skipuleggjandi

BS

Keppnisstjóri: Þórður Guðni Ingvason

Skoðunarmaður: Sigurjón Árni Pálsson

Formaður dómnefndar: Ólafur Guðmundsson

Dómnefnd 1: Ásta Sigurðardóttir

Dómnefnd 2: Ragnar Róbertsson

Dagsetningar

28. júlí 2018 kl: 00:00

Brautir og vegalengdir

Sérleiðir í rally
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Rally

Íslandsmeistaramót - 3. umferð

Íslandsmeistaramót - 3. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 9. júlí 2018 kl: 17:00

Forskráningargjald: 18500 kr.-

Almennt gjald frá 9. júlí 2018: 18500 kr.-

Skráningargjald hækkar 9. júlí 2018 í 18500 kr.-

Skráningu lýkur: 18. júlí 2018 kl: 23:59

Flokkar

Flokkur A

Flokkur B

Flokkur C

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur

Stjórnstöð keppninnar verður, eins og undanfarin ár, staðsett í húsnæði Tryggingamiðstöðvarinnar í  norðurenda húsnæðis sem hýsir N1 við Ártorg á Sauðárkróki. 

Formleg upplýsingagjöf fram að keppni og meðan á keppni stendur fer fram á facebook síðu Bílaklúbbs Skagafjarðar:  https://www.facebook.com/bilaklubburskagafjardar/ og eftir atvikum í stjórnstöð keppninnar á keppnisdegi (sbr. fundur með keppendum og birting úrslita).

Ástæða er til að hvetja alla til að stilla klukkur sínar eftir opinberu tímatali í Höfuðborg Íslands sem fram kemur á vefslóðinni: https://time.is/    Klukkur í keppninni verða stilltar eftir þeirri klukku með eins mikilli nákvæmni og unnt er.

Skráning hefst við birtingu dagskrár, mánudaginn 9. júlí og lýkur kl. 23:59 miðvikudaginn 18. júlí nk.

Skráning skal fara fram í gegn um skráningarvef á www.akis.is.

Keppnisgjaldið er kr. 17.500 á mann eða kr. 35.000 á áhöfn. Að auki þurfa keppendur að greiða kr. 1.000 á mann til  AKÍS.  Við skráningu þarf því að greiða kr. 37.000 fyrir hverja áhöfn og rennur þar af kr. 2.000 til AKÍS eða kr. 18.500 á mann. 

Engin starfsmannakvöð er í þessari keppni.  Ábendingar um fólk sem gæti viljað starfa við keppnishaldið eru þó einkar vel þegnar og má koma á framfæri við keppnisstjóra.

Með skráningu í keppni skuldbinda keppendur sig til að kynna sér reglur og upplýsingar er varða keppnishaldið og fylgja þeim tilmælum í hvívetna sem þar koma fram.

 

 

Úrslit eru væntanleg