Akstursíþróttasamband Íslands AKÍS í samstarfi við Orku náttúrunnar ON heldur eina umferð í eRally FIA 21. og 22. september 2018
Keppt er á óbreyttum rafmagnsbílum með reglum sem notaðar eru í nákvæmnisakstri (e. regularity rally) þar sem ávallt er ekið innan löglegs hámarkshraða. Keppnin gengur út á að aka fyrirfram ákveðna leið samkvæmt leiðarbók og á hraða sem gefinn er upp í leiðarbókinni. Á nokkrum stöðum á leiðinni eru mælistaðir, þar sem bíllinn þarf að vera staddur á réttri sekúndu, að viðlagðri refsingu.
eRally Iceland
Keppnin er hefðbundin keppni í nákvæmnisakstri í tveimur hlutum með samtals sex leggjum á tveimur dögum. Daginn á undan fer fram skoðun keppnistækja.
Leyfileg keppnistæki
Leyfileg keppnistæki eru eins og þau eru skilgreind í reglum FIA Electric og New Energy Championship. Keppnin er eingöngu ætluð óbreyttum bílum þar sem drifrás er með rafmagni, bílum sem eru með gilda skráningu fyrir almenna notkun á vegum, án nokkurs konar breytinga á bílnum og gerir keppendum mögulegt að nota eigin bíla sem þeir nota daglega. Frumgerðir bíla eru einnig leyfðar ef þær eru með gilt akstursleyfi innan ESB.
Rafhleðsla
Rafhleðsla verður útveguð í samvinnu við ON sem eru helstu styrktaraðilar okkar. Kvöldið áður en keppnin hefst eru bílarnir staðsettir við höfuðstöðvar ON og verða fullhlaðnir og tilbúnir að morgni.
Hleðslustaðir fyrir ökutæki verða nánar skilgreindir í sérreglum keppninnar.
Fyrri daginn eru fjögur stig með samtals fimm klukkustundir til að hlaða á milli stiga.
Næturstæði með hleðslu er við höfuðstöðvar ON, þannig að bílarnir verði fullhlaðnir fyrir seinni daginn.
Seinni daginn eru tvö stig með tveggja klukkustunda hleðslu á milli.
Aðstæður
Keppnin verður keyrð á almennum opnum vegum í hefðbundinni umferð. Valdar eru fallegar leiðir í nágrenni Reykjavíkur, að mestu malbikaðar en einnig eru nokkrir malarvegir.
Keppnisgjald
Skráning er opin frá miðvikudeginum 25. júlí 2018 @ 9:00 til sunnudags 16. september 2018 @ 23:59:
Einstaklingar greiða: 40.000.-
Lögaðilar / fyrirtæki: 55.000.-
Keppendur sem ekki samþykkja auglýsingar á ökutækjum sínum, greiða tvöfalt gjald.
Upplýsingar
Sjálfbærni og umhverfisvænn lífstíll er það sem koma skal. Alþjóðaaksturssambandið FIA hefur verið leiðandi í að kynna nýjar leiðir til að minnka mengun og losun koltvísýrings. Sem hluti af þessu átaki hleypti FIA árið 2017 af stokkunum mótaröð undir heitinu: FIA Electric and New Energy Championship til að legga aukna áherslu á mikilvægi þessa.
Markmið eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku sem gefa frá sér minnsta mögulega magn mengunar og koltvísýrings. Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja.
Nánari upplýsingar er að finna á vef keppninnar:
www.eRally.is
AKÍS
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Emmanuel Burel
Formaður dómnefndar: Emmanuel Burel
Dómnefnd 1: Ragnar Róbertsson
Dómnefnd 2: Emmanuel Burel
Frá: 21. september 2018 kl: 09:00
Til: 22. september 2018 kl: 18:00
Sérleiðir í rally
Lýsing:
Rally
FIA Electric and New Energy Championship - 9. umferð
Skráning hefst: 25. júlí 2018 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 16. september 2018 kl: 23:59
Rafmagnsbílar: 20000 kr.-
Rafmagnsbílar - fyrirtæki: 27500 kr.-
Rafmagnsbílar
Rafmagnsbílar - fyrirtæki
Skipuleggjandi: AKÍS
Veldu flokk til að sjá skráningargjöld
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Javier Molto
Aðst: Loren Serrano |
Félag vantar Utan félags |
0 |
2 |
Didier Malga
Aðst: Anne Bonnel |
Félag vantar Utan félags |
0 |
3 |
Walter Fuzzy Kofler
Aðst: Franco Gaioni |
Félag vantar Utan félags |
0 |
4 |
Kristján Einar Kristjánsson
Aðst: Haukur Viðar Jónsson |
KK Utan félags |
0 |
5 | Auður Margrét Pálsdóttir | KK | 0 |
6 |
Jón Árni Jónsson
Aðst: Hrönn Bjargar Harðardóttir |
KK Utan félags |
0 |
7 |
Snorri Þór Árnason
Aðst: Guðrún Magnea Guðnadóttir |
TK Utan félags |
0 |
8 |
Hafrún Þorvaldsdóttir
Aðst: Edda Sólveig Gísladóttir |
KK Utan félags |
0 |
9 |
Hólmfríður Karlsdóttir
Aðst: Garðar Þór Hilmarsson |
KK Utan félags |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Javier Molto
Aðst: Loren Serrano |
Félag vantar Utan félags |
0 |
2 |
Didier Malga
Aðst: Anne Bonnel |
Félag vantar Utan félags |
0 |
3 |
Walter Fuzzy Kofler
Aðst: Franco Gaioni |
Félag vantar Utan félags |
0 |
4 | Auður Margrét Pálsdóttir | KK | 0 |
5 |
Jón Árni Jónsson
Aðst: Hrönn Bjargar Harðardóttir |
KK Utan félags |
0 |
6 |
Snorri Þór Árnason
Aðst: Guðrún Magnea Guðnadóttir |
TK Utan félags |
0 |
7 |
Hólmfríður Karlsdóttir
Aðst: Garðar Þór Hilmarsson |
KK Utan félags |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Kristján Einar Kristjánsson
Aðst: Haukur Viðar Jónsson |
KK Utan félags |
0 |
2 |
Hafrún Þorvaldsdóttir
Aðst: Edda Sólveig Gísladóttir |
KK Utan félags |
0 |