Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar og reglum AKÍS.
Keppnin fer fram í aksturshermum GT Akademíunnar þann 23. febrúar 2020.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja:
GTE
11:00 20 mínútna æfing fjögurra hröðustu keppenda úr tímatökuæfingu
11:20 Mæting keppenda
11:30 Keppendafundur
12:00 Riðill 1, uppsetning herma
12:10 Riðill 1, tímatökuæfing
12:25 Riðill 1, kappaksturslota
12:55 Riðill 2, uppsetning herma
13:05 Riðill 2, tímatökuæfing
13:20 Riðill 2, kappaksturslota
13:50 Riðill 3, uppsetning herma
14:00 Riðill 3, tímatökuæfing
14:35 Riðill 3, kappaksturslota
15:10 Kærufrestur hefst
15:40 Kærufresti lýkur
15:40 Lokaúrslit birt
15:40 Verðlaunaafhending
Ræst er í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Verðlaunagripir eru veittir fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
Dómnefnd skipa Jón Bjarni Jónsson, sem jafnframt er formaður dómnefndar, Ásta Andrésdóttir og Ingólfur Arnarsson.
Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Emmanuel Burel
Skoðunarmaður: Emmanuel Burel
Formaður dómnefndar: Jón Bjarni Jónsson
Dómnefnd 1: Ásta Andrésdóttir
Dómnefnd 2: Ingólfur Arnarson
23. febrúar 2020 kl: 11:00
GT Akademían
Lýsing: Hermakappakstur
Hermikappakstur
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 12. febrúar 2020 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 21. febrúar 2020 kl: 20:00
GTE
1.1 Keppnin heitir 3. umferð Íslandsmeistaramóts AB varahluta í hermikappakstri.
1.2 Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram í GT akademíunni, Ármúla 23 þann 23 febrúar.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson og Jón Bjarni Jónsson.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í GT akademíunni, Ármúla 23.
4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.
4.1.2 Keyrt verður á Circuit Of The Americas (USA).
4.1.3 Leikurinn verður stilltur á 7. Ágúst við keyrslu í tímatökuæfingu og keppni.
4.1.3 Keyrt verður í heiðskýru veðri.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a GTE.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 21. febrúar 2020 klukkan 20:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 9.900 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
6.7 keppnisgjald fyrir 18 ára og yngri verður 5.500 kr.
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
9.2.1.a Tímatökuæfing riðill 1 er ræstur klukkan 12:10. Ræst er úr pitti.
9.2.1.b Kappaksturslota riðils 1 er ræst klukkan 12:25. Ræst er úr kyrrstöðu.
9.2.1.c Tímatökuæfing riðill 2 er ræstur klukkan 13:05. Ræst er úr pitti.
9.2.1.d Kappaksturslota riðils 2 er ræst klukkan 13:20. Ræst er úr kyrrstöðu.
9.2.1.e Tímatökuæfing riðill 3 er ræstur klukkan 14:00. Ræst er úr pitti.
9.2.1.f Kappaksturslota riðils 3 er ræst klukkan 14:35. Ræst er úr kyrrstöðu.
9.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu.
9.3.2 Röð ökutækja við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasta ökutæki ræsir fremst, næst hraðasta næst fremst og svo koll af kolli.
9.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
10.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
10.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum. Slóð á upplýsingatöfluna verður birt á keppendafundi. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
10.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða iðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.
11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
13.1.1 Dómnefnd skipa Jón Bjarni Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar, Ásta Andrésardóttir og Ingólfur Arnarson.
13.2.1 Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
13.2.2 Skoðunarmaður er ekki skipaður fyrir þessa keppni sérstaklega.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldvin Hansson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald með ungliðaafslætti: 4984 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hákon Darri Jökulsson | AÍH | 0 |
2 | Geir Logi Þórisson | KK | 0 |
3 | Marinó Helgi Haraldsson | KK | 0 |
4 | Karl Thoroddsen | KK | 0 |
5 | Viktor Böðvarsson | KK | 0 |
6 | Jonas W Jonasson | KK | 0 |
7 | Adrian Marciniak | KK | 0 |
8 | Eyjólfur K.Jónsson | KK | 0 |
9 | Aron Óskarsson | KK | 0 |
0 | Maziar Shahsafdari | KK | 0 |