1 umferð íslandsmeistaramótsins i hermidrifti

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: benni_magni@live.com

Lýsing

Dagskrá

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar og reglum AKÍS.

 

Keppnin fer fram í aksturshermum GT Akademíunnar þann 23. febrúar 2020.

 

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja:

    Pro 1

Föstudagurinn 21 febrúar

19:00 Mæting keppenda

19:00 Æfing keppenda hefst

21:30 Æfingu keppenda lýkur

21:30 Tímatökuæfing hefst

22:00 Tímatökuæfingu lýkur

Sunnudagurinn 23 febrúar

15:00 mæting keppenda

15:10 Keppendafundur

15:30 Æfing keppenda hefst

18:50 Æfing keppenda lýkur

19:00 Keppni hefst

21:00 keppni lýkur

21:00 Kærufrestur hefst

21:30 Kærufresti lýkur

21:30 Lokaúrslit birt

21:30 Verðlaunaafhending

 

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

 

Verðlaunagripir eru veittir fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

 

Dómnefnd skipa Aron Óskarsson, sem jafnframt er formaður dómnefndar, Þorfinnur Óli Tryggvason og Egill Andri Tryggvason.

Keppnisstjóri er Benedikt Magni Sigurðarson.

Dagskrá

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Benedikt Magni Sigurðarson

Öryggisfulltrúi: Emmanuel Burel

Skoðunarmaður: Emmanuel Burel

Formaður dómnefndar: Aron Óskarsson

Dómnefnd 1: Egill Andri Tryggvason

Dómnefnd 2: Emmanuel Burel

Dagsetningar

Frá: 21. febrúar 2020 kl: 19:00
Til: 23. febrúar 2020 kl: 15:00

Brautir og vegalengdir

GT Akademían
Lýsing:

Hermakappakstur

Tegund/mótaröð

Hermikappakstur

Íslandsmeistaramót -

Skráningargjöld

Skráning hefst: 16. febrúar 2020 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 21. febrúar 2020 kl: 20:00

Flokkar

Opinn flokkur

SÉRREGLUR Hermidrifts 2020

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmeistaramóts í hermidrifti.

1.2 Keppt er í hermidrifti eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermidrift.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermidrift og þessum sérreglum.

1.4 Keppnin fer fram í GT akademíunni, Ármúla 23 þann 21 og 23 febrúar.

1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 8 skráningar.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Benedikt Magni Sigurðarson og Baldvin Hansson, Jón Bjarni Jónsson.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í GT akademíunni, Ármúla 23.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.

4.1.2 Keyrt verður á Texas Motor Speedway (USA).

4.1.3 Leikurinn verður stilltur á XX feb við keyrslu í tímatökuæfingu og keppni.

4.1.3 Keyrt verður í heiðskýru veðri.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Pro 1.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda keppanda sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Skráningu lýkur þann 21. febrúar 2020 klukkan 20:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 6.900 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 RÆSING

GREIN 9.1 ALMENNT

9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 9.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
9.2.1.a Tímatökuæfing er ræst klukkan 19:00 föstudaginn 21 febrúar. Ræst er úr pitti.
9.2.1.b Keppnislota er ræst klukkan 19:00 sunnudaginn 23 febrúar. Ræst er úr kyrrstöðu.
 

GREIN 9.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

9.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu.

9.3.2 Röð ökutækja við ræsingu ræðst af grein 8.1 í reglum um hermidrift.

9.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 10 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

10.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
10.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

10.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.

10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum. Slóð á upplýsingatöfluna verður birt á keppendafundi. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

10.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða iðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og dómarar hafa tekið þau saman og afhent dómnefnd.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND

13.1.1 Dómnefnd skipa Aron Óskarsson, sem jafnframt er formaður dómnefndar, Þorfinnur Óli Tryggvason og Egill Andri Tryggvason.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN

13.2.1 Keppnisstjóri er Benedikt Magni Sigurðarson.

13.2.2 Skoðunarmaður Benedikt Magni Sigurðarson.

13.2.3 Öryggisfulltrúi er Benedikt Magni Sigurðarson.

13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 13.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 13.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 13.5 STAÐREYNDADÓMARAR

13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.

Úrslit

Opinn flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Rúnar Þór Sigurðarson KK 0
2 Auðunn Magni Björgvinsson AÍH 0
3 Róbert Helgi Ævarssob KK 0
4 Kristján Þorgils Guðjónsson AÍFS 0
5 Norvell Jósef Salinas KK 0
6 Marcin Baryla KK 0
7 Marinó Helgi Haraldsson KK 0
8 Sigurður Gísli Guðnason KK 0