DAGSKRÁ 2. umferðar Íslandsmóts í drifti 2020
Kvartmíluklúbburinn heldur 2. umferð Íslandsmóts í drifti 2020 á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 25. júlí 2020.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
08:30 Mæting keppenda / pittur lokar
08:30 Skoðun hefst
09:30 Skoðun lýkur
09:30 Keppendafundur
10:30 Æfing
12:30 Forkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
14:00 Útsláttarkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
18:00 Lokaúrslit birt
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Ingimundur Helgason
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Jón Bjarni Jónsson
Dómnefnd 1: Tryggvi Magnús Þórðarson
Dómnefnd 2: Ragnar Róbertsson
25. júlí 2020 kl: 12:30
Hringakstursbraut KK
Lýsing: 2412 metrar
Drift
Íslandsmeistaramót - 2. umferð
Skráning hefst: 16. júní 2020 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 22. júlí 2020 kl: 23:00
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
SÉRREGLUR 2. umferðar Íslandsmóts í drifti 2020
1.1 Keppnin heitir 2. umferð Íslandsmóts í drifti 2020.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 25. júlí 2020.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Halldór Jóhannsson, Ingimundur Helgason og Baldvin Hansson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Leiðin er um það bil 800 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Minni götubílaflokkur
5.1.1.b Götubílaflokkur
5.1.1.c Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 22. júlí 2020 klukkan 23:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt skráningargjald er kr. 10.000.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar en einnig er hægt að kaupa þær af keppnishaldara.
9.3.1 Panta þarf keppnisnúmeramerki hjá keppnishaldara í síðasta lagi 4 dögum fyrir keppnisdag.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Æfing klukkan 10:30. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.b Forkeppni klukkan 12:30. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2020.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Minni götubílar, Götubílar og Opinn flokkur.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/w6GTb
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Jón Bjarni Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar, Tryggvi Þórðarson og Ragnar Róbertsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingimundur Helgason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 9000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jökull Atli Harðarson | AÍH | 115 |
2 | Michal Kujoth | AÍH | 100 |
3 | Stefán Þór Gunnarsson | AÍH | 86 |
4 | Ómar ingi Ómarsson | AÍH | 75 |
5 | Jóhann Rafn Rafnsson | AÍH | 71 |
6 | Skarphéðinn H Vilhjalmsson | AÍH | 67 |
7 | Krzysztof Kaczynski | AÍH | 66 |
8 | Árni Freyr Gunnarsson | AÍH | 66 |
9 |
Aron Freyr Gíslason
Aðst: Bragi Örn Hilmarsson |
AÍH AÍH |
4 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Emil Örn Kristjánsson | AÍH | 110 |
2 | Kristófer Daníelsson | BA | 103 |
3 | Patryk Kaczyński | AÍH | 86 |
4 | Kjartan tryggvason | BA | 81 |
5 | Hafsteinn Þorberg Thorvaldsson | AÍH | 67 |
6 |
Dominik Lesiak
Aðst: Dominik Lesiak |
AÍH AÍH |
67 |
7 | Hafliði Harðarson | AÍH | 66 |
8 | Hubert Dorozinski | AÍH | 0 |
9 | Ingólfur Þór Ævarsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ármann Ingi Ingvason | AÍH | 110 |
2 | Arnar Gauti þorsteinsson | AÍH | 96 |
3 | Jón Þór Hermannsson | AÍH | 93 |
4 | Úlfar Bjarki Stefánsson | KK | 81 |
5 | Sigurbergur Eiríksson | AÍH | 67 |
6 | Þórir Mar Ingvason | AÍH | 67 |