Skráning er hafin í aðra umferð Íslandsmeistarmótsins í Rallycross.
Skráningu lýkur 2.Júlí klukkan 23:59
Dagskrá:
Mæting er kl 9:00
pittur lokar kl 10:00
Skoðun byrjar kl 10:00
Tímatökur hefjast kl 10:30
Fundur með starfsfólki 12:00
Fundur með keppendum kl 12:30
Keppni hefst kl 13:00
Hlé í 15 min fyrir úrslitariðil
Úrslitariðlar keyrðir
Áætluð Úrslit kl 16:00
Áætluð Kærufrestur liðinn kl 16:30
Áætluð Formleg tilkynning úrslita og verðlaunaafhending kl 17:00
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Trausta Guðfinnsson S:8674990 eða tgudfinn@gmail.com
ATH
Skráningar í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: Unglingar
Einungis keppendur í unglingaflokk geta notað afsláttarkóðan
Skráningu lýkur 2.júlí klukkan 23:59
Frekari upplýsingar um félagið má finna inni á vefsvæði okkar www.aihsport.is
AÍH
Viðburðarstjóri: Fylkir A. Jónsson
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Páll Pálsson
Formaður dómnefndar: Þórður Guðni Ingvason
Dómnefnd 1: Emmanuel Burel
Dómnefnd 2: Emmanuel Burel
5. júlí 2020 kl: 13:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Rallycross
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 23. júní 2020 kl: 11:00
Skráningu lýkur: 2. júlí 2020 kl: 23:59
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
SÉRREGLUR
2. umferðar Íslandsmóts í Rallycross 2020
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir 2. umferð Íslandsmóts í Rallycross 2020.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg þann 5. júlí 2020.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Rallycross deild AkstursÍþróttafélag Hafnafjarðar (AÍH)
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Fylkir Jónsson, Trausti Guðfinsson og Ólafur Tryggvason.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði AÍH í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður Réttsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 850 metra löng
GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 2. júlí 2020 klukkan 23:59.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 16000kr.(unglingaflokkur greiðir 8000kr.) og felur það í sér:
5.6.a þátttökurétt í keppninni;
5.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR
8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
8.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3000kr, pr. keppni
8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
8.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur Kl:10:30 Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 13:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 11.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður staðsett á gám við stjórnstöð. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
11.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.b Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 13 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Þórður Ingvason, sem jafnframt er formaður hennar, Kristinn Sveinsson og Páll Pásson
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Fylkir Jónsson
14.2.2 Skoðunarmaður er Páll Pálsson
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldór Hjaltason
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Standard 1000 flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 1050ccm, hámarksþyngd 1300kg.
1400 FLOKKUR
Ökutæki með drif á einum öxli, slagrými vélar undir 1450 rúmsentimetrum og hámark 100 hestöfl
2000ccm flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 2080ccm, hámarksþyngd 1300kg.
4wd non turbo
Fjórhjóladrifsbílar undir 1300kg, vélarstærð hámark 2500ccm.
Opinn flokkur:
Ökutæki 0 – 1400 kg, á ráslínu með ökumanni, sérsmíðuð farartæki, allt leyfilegt svo framarlega sem það stenst öryggiskröfur. Með möguleika á skiptingu við miðju.
Unglingaflokkur:
0 – 1600ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.
Reglur í Rallycross fyrir árið 2020 má finna hér http://www.akis.is/wp-content/uploads/2020/02/Rallycross-reglur-2020.pdf
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Trausta Guðfinnsson S:8674990 eða tgudfinn@gmail.com
ATH
Skráningu lýkur 2.Júlí klukkan 23:59
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 15000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnar Már Árnason | AÍH | 90 |
2 | Þorvaldur Smári McKinstry | AÍH | 69 |
3 | Sindri Már Axelsson | AÍH | 60 |
4 | Sigurður Þór Bjarnason | AÍH | 45 |
5 | Kristján Örn Aðalbjörnsson | AÍH | 36 |
6 | Rakel Ragnarsdòttir | AÍH | 34 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Vikar Karl Sigurjónsson | AÍH | 85 |
2 | Sigurbjörg Björgvinsdóttir | AÍH | 66 |
3 | Birgir Kristjánsson | AÍH | 41 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ólafur Tryggvason | AÍH | 75 |
2 | Alexander Lexi Kárason | AÍH | 62 |
3 | Þröstur Jarl Sveinsson | AÍH | 53 |
4 | Agnar Freyr Ingvason | AÍH | 43 |
5 | Hörður Darri McKinstry | AÍH | 42 |
6 | Kristófer Fannar Axelsson | AÍFS | 38 |
7 | kristinn Einarsson | AÍH | 28 |
8 | guðni svavar guðnason | AÍFS | 22 |
9 | Þórður Andri McKinstry | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steinar Nòi kjartansson | AÍH | 71 |
2 | Konrad Kromer | AÍH | 66 |
3 | Atli Jamil Ásgeirsson | AÍH | 65 |
4 | Jóhannes Reginn karlsson | AÍH | 59 |
5 | Erlendur Örn Ingvason | AÍFS | 42 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | 78 |
2 | Arnar Már Pálsson | AÍH | 70 |
3 | Arnar Elí Gunnarsson | AÍFS | 56 |
4 | Alexander Már Steinarsson | AÍH | 48 |
5 | Stefán Sigurðsson | AÍH | 40 |
6 | Andri Svavarsson | AÍFS | 34 |
7 | Garðar Viðarsson | AÍH | 18 |
8 | Jóhann Egilsson | KK | 12 |
9 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 12 |
10 | Heiða Karen Fylkisdóttir | AÍH | 10 |
11 | Rakel Ósk Einarsdóttir | AÍH | 9 |
12 | Sigurður Steinar Aðalbjörnsson | AÍH | 4 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Óliver Örn Jónasson | AÍH | 78 |
2 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 74 |
3 | Agnar Ingi Sigurdsson | AÍH | 52 |
4 | Bergþóra Káradóttir | AÍFS | 49 |
5 | Júlían Aðils Kemp | AÍH | 15 |
6 | Rakel Ósk Árnadóttir | AÍFS | 8 |