B.Jensen Götuspyrna

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: eb3c@free.fr

Lýsing

1. Umferð Íslandsmótsins í Götuspyrnu 2020 verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 11. Júlí næstkomandi. 

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

>Bílar 4cyl

>Bílar 6cyl

>Bílar 8cyl standard

>Bílar 8cyl+

>Bílar 4x4

>Jeppaflokkur

>Mótorhjól F-hjól

>Mótorhjól Hippar undir 1100cc

>Mótorhjól Hippar 1100cc+

>Mótorhjól Krossarar

>Mótorhjól Götuhjól undir 800cc

>Mótorhjól Götuhjól 800cc+

 

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

9:00 Mæting keppenda

9:15 Skoðun hefst

10:00 Pittur lokar

10:30 Skoðun lýkur

10:45 Keppendafundur með keppnisstjóra

11:15 Tímatökur hefjast

12:30 Tímatökum lýkur

13:00 Keppni hefst

15:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst

15:30 Kærufresti lýkur

Verðlauna afhending á palli við félagsheimili. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.

 

 

 

 

Dagskrá

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Emmanuel Burel

Öryggisfulltrúi: Emmanuel Burel

Skoðunarmaður: Emmanuel Burel

Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson

Dómnefnd 1: Emmanuel Burel

Dómnefnd 2: Emmanuel Burel

Dagsetningar

11. júlí 2020 kl: 10:00

Brautir og vegalengdir

Götuspyrna BA
Lýsing: 1/8

Tegund/mótaröð

Götuspyrna

Íslandsmeistaramót - 1. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 3. júlí 2020 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 10. júlí 2020 kl: 21:00

Flokkar

Bílar 4 cyl

Bílar 4x4

Bílar 6 cyl

Bílar 8 cyl

Bílar 8 cyl+

Jeppaflokkur

MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)

MSÍ- mótorhjól Hippar +H

MSÍ- mótorhjól Hippar -H

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)

MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)

Sérreglur 1.umferðar Íslandsmótsins í Götuspyrnu 2020

Grein 1 Keppnin

 1.1 Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmótsins í götuspyrnu

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinareglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar Laugardaginn 11.Júlí 2020

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema veðri ekki til spyrnu með tilliti til öryggis keppenda og annara á svæðinu. Keppnistjóri, dómnefn og öryggisfulltrúi keppninnar taka ákvörðun um frestun komi sú staða upp.

1.5 Keppnin verður felld niður komi ekki að minnsta kosti 5 skráningar.

1.6 Ef aðeins 1 skráning berst í flokk er honum heimilt að keyra "upp fyrir sig" svo framarlega að hann uppfylli flokkareglur í þeim flokki.

Grein 2 Keppnishaldari

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar

Grein 3 Framkvæmdanefnd

3.1 Framkvæmdanefnd skipa EInar Gunnlaugsson, Hrefna Björnsdóttir og Jóhann T. Unnsteinsson

Grein 4 Keppnissvæðið

4.1 Brautin hefur gilt leyfi til keppna í þeim flokkum sem keppt er í í götuspyrnu.

4.2 Akstursstefna brautar er frá austri til vesturs.

4.3 Lengd brautar er 201m í áttungsmílu (götuspyrnu).

Grein 5 Flokkun og útbúnaður ökutækja

5.1 Keppnisflokkar eru eftirtaldir:

>Bílar 4cyl

>Bílar 6cyl

>Bílar 8cyl standard

>Bílar 8cyl+

>Bílar 4x4

>Jeppaflokkur

>Mótorhjól F-hjól

>Mótorhjól Hippar undir 1100cc

>Mótorhjól Hippar 1100cc+

>Mótorhjól Krossarar

>Mótorhjól Götuhjól undir 800cc

>Mótorhjól Götuhjól 800cc+

Grein 6 Skráning

6.1 Engin takmörk eru á hámarks fjölda ökutækja sem skrá eru til keppni.

6.2 Skráning fer fram á vef AKÍS, og hefst um leyð og hún verður aðgengileg þar.

6.3 Skráningu lýkur föstudaginn 10.júlí kl 21.00

6.4 Keppnisgjald er 8000kr. innifalið er keppnisskirteini AKÍS

Grein 7 Tryggingar

7.1 Öll tæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

Grein 8 Keppnis og ökuskirteini

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

Grein 9 Merkingar ökutækja

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í hliðarrúðu vinstra megin.
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan.
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst.
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

Grein 10 Ræsing

Grein 10.1 Almennt

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vef AKÍS, einnig verður formleg dagskrá og keppendalstar aðgengilegir í félagsheimili og stjórnstöð keppninnar.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman, einnig verða þau hengd upp í félagsheimili.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Jón Rúnar Rafnsson og Bjarni Hjaltalín.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Bjarni Jón Kristjánsson.

14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björnsdóttir

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga 

Úrslit

Bílar 4 cyl

Bílar 4x4

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hrannar Orri Hrannarsson BA VW GOLF R 115
2 Tómas Kristjánsson BA Subaru Impreza 96

Bílar 6 cyl

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Guðni Brynjar Guðnason BA 115
2 Hjörtur Harðarson BA Toyota crown 94
3 Guðríður Ósk Steinarsdóttir
Aðst: Tómas Karl Jólasveinn
AÍH
BA
76
4 Tómas Karl Benediktsson BA 53

Bílar 8 cyl

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Bjarki Reynisson BA Ford Mustang 116
2 Hafsteinn Kristinsson BA Camaro 95
3 Björgvin Þórsson BA Ford Capri S 5.0 74

Bílar 8 cyl+

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Kristján Skjóldal BA Pontiac Trans-Am 116
2 Sævar Páll Stefánsson BA Mercury Comet GT 94
3 Garðar Þór Garðarsson BA Pontiac Trans am 75
4 Gretar Óli Ingþórsson
Aðst: Gunnlaugur Sigvaldason
BA
BA
0

Jeppaflokkur

MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Guðmundur Kári Daníelsson BA Honda VTR 1000 74

MSÍ- mótorhjól Hippar +H

MSÍ- mótorhjól Hippar -H

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Tryggvi Snær Friðjónsson BA Honda CBR 116
2 Sigríður Dagný Þrastardóttir BA Honda CBR600RR 95

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Guðmundur Alfreð Hjartarson KK Suzuki GSX-R 750 116
2 Jón Stefán Laxdal BA Svarthol 95
3 Rakel Þorgilsdóttir BA Yamaha R6 74

MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)