2. Umferð Íslandsmótsins í torfæru 2020 verður haldin þann 18.júlí næstkomandi á svæði Bílaklúbbs Akureyrar.
Dagskrá
Mæting Keppenda kl. 7:30
Skoðun hefst kl. 7:30
Pittur lokar kl. 9:00
Skoðun Lýkur kl 10:00
Keppendafundur og brautarskoðun kl. 10:00
Keppni hefst 2 brautir keyrðar kl. 11:00
Matarhlé í 30 míntur
Keppni hefst á ný og keyrðar eru 4 brautir
Keppnislok kl. 16:30
Kærufrestur hefst kl:16:40
Kærufresti lýkur kl. 17:10
BA
Viðburðarstjóri: Valdimar G Valdimarsson
Öryggisfulltrúi: Emmanuel Burel
Skoðunarmaður: Emmanuel Burel
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Emmanuel Burel
Dómnefnd 2: Emmanuel Burel
18. júlí 2020 kl: 11:00
Torfærusvæði BA
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót - 2. umferð
Skráning hefst: 4. júlí 2020 kl: 17:25
Skráningu lýkur: 14. júlí 2020 kl: 23:59
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
SÉRREGLUR 2. umferðar Íslandsmóts í torfæru 2020
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir BA torfæran og er 2. umferð Íslandsmóts í torfæru 2020.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á svæði Bílaklúbbsins, Akureyri þann 18.júlí 2020.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Valdimar Geir Valdimarsson, Gunnar Þórólfsson, Garðar Sigurðsson og Hrefna Björnsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Hlíðafjallsveg 13, 600 Akureyri.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 ÞRAUTIRNAR
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6, samtals um það bil 70-800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.1.3 Pitthliðið verður staðsett við pitt, þar sem að mætingarfresti lýkur (60 sek við ráshlið).
4.1.3.b.i Heimilt er að fara einu sinni aftur fyrir í keppni og eingöngu má biðja um það einu sinni að fara aftur fyrir.
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er staðsett á pittsvæði og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki.
4.3.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu braut skal keyra beint í Park Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.3.2.a Sé tækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Park Fermé af keppnishaldara.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Götubílaflokkur
5.1.1.b Flokkur sérútbúinna
5.1.1.c Flokkur sérútbúinna götubíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.1.1 Heimilt er að skrá 2 ökumenn á sama ökutæki í keppnina.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 14. júlí 2020 klukkan 23:59.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 6000 innifalið keppnisskirteini AKÍS
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir bílar sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá keppnisráði í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 9.5 AÐRAR MERKINGAR
9.5.1 Keppandi skal halda lausu plássi á ökutæki sínu fyrir auglýsingu á vegum keppnishaldara.
9.5.1.b Keppnishaldara er heimilt að sleppa keppanda við að merkja ökutæki með auglýsingu hans gegn greiðslu gjalds að upphæð kr. 20.000 fyrir hvert ökutæki.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa hafi þau hlotið keppnisskoðun.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl 10:50
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 11:00
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar sem er við stjórnstöð (strætó).
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1. um rásröð í torfærureglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Götubílar, sérútbúnir bílar, sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg hér. Auk þess er hún aðgengileg í stjórnstöð.
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
11.5.3 Heimilt er að hafa 8+1 með hverjum bíl. Pittur verður lokaður fyrir alla aðra fyrir utan starfsmenn BA sem verða í merktum vestum.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stiga- og tímaverðir hafa tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar.
14.1.1.a Framkvæmdanefnd hyggst útnefna annan og þriðja dómnefndarmann fyrir upphaf keppni og verður nafn hans birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar það liggur fyrir.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnis og brautarstjóri er Valdimar Geir Valdimarsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Sigurjón Einarsson og hinn verður auglýstur síðar.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Garðar Sigurðsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadóma Jóhann Björgvinsson formaður staðreyndadómara, Jónas Freyr Sigurbjörnsson og Gunnar Gunnarsson.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 6000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steingrímur Bjarnason | TK | 20 |
2 | Ágúst Halldórsson | START | 17 |
3 | Óskar Jónsson | AÍNH | 15 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 20 |
2 | Ásmundur Ingjaldsson | START | 17 |
3 | Ingólfur Guðvarðarson | TK | 15 |
4 | Haukur Viðar Einarsson | KK | 12 |
5 |
Finnur Aðalbjörnsson
Aðst: Þór Þormar Pálsson |
BA BA |
10 |
6 | Stefán Bjarnhéðinsson | BA | 8 |
7 | Ingvar Jóhannesson | TK | 6 |
8 | Jóhann Gunnlaugsson | AÍFS | 4 |
9 | Helgi Garðarsson | BA | 2 |
10 | Sigurður Ingi Sigurðsson | AÍNH | 1 |
11 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 0 |
12 | Páll Jónsson | AÍNH | 0 |
13 |
Gestur J. Ingólfsson
Aðst: Adam pétursson |
BA BA |
0 |
14 | Aron Ingi Svansson | TK | 0 |
15 | Svanur Örn Tómasson | TK | 0 |