2. Umferð Íslandsmótsins í Götuspyrnu 2020 verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 11. Júlí næstkomandi.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
>Bílar 4cyl
>Bílar 6cyl
>Bílar 8cyl standard
>Bílar 8cyl+
>Bílar 4x4
>Jeppaflokkur
>Mótorhjól F-hjól
>Mótorhjól Hippar undir 1100cc
>Mótorhjól Hippar 1100cc+
>Mótorhjól Krossarar
>Mótorhjól Götuhjól undir 800cc
>Mótorhjól Götuhjól 800cc+
Einnig er möguleiki á að keyrð verði önnur tæki en hefðbundin götuspyrnutæki í tilefni víglsu nýrrar brautar, en mun það ver utan flokka og ekki til Íslandsmeistara eða neitt slíkt.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
9:30 Mæting keppenda
9:45 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:30 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:00 Tímatökur hefjast
13:30 Tímatökum lýkur
14:00 Keppni hefst
17:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
17:30 Kærufresti lýkur
Verðlauna afhending á palli við félagsheimili. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
BA
Viðburðarstjóri: Emmanuel Burel
Öryggisfulltrúi: Emmanuel Burel
Skoðunarmaður: Emmanuel Burel
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Emmanuel Burel
Dómnefnd 2: Emmanuel Burel
15. ágúst 2020 kl: 14:00
Götuspyrna BA
Lýsing: 1/8
Götuspyrna
Íslandsmeistaramót - 2.umferð
Skráning hefst: 25. júlí 2020 kl: 13:59
Skráningu lýkur: 13. ágúst 2020 kl: 23:59
Bílar 4 cyl
Bílar 4x4
Bílar 6 cyl
Bílar 8 cyl
Bílar 8 cyl+
Jeppaflokkur
MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)
MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)
MSÍ- mótorhjól Hippar +H
MSÍ- mótorhjól Hippar -H
MSÍ- mótorhjól Unglingaflokkur (MU)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)
MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)
Sérreglur 2.umferðar Íslandsmótsins í Götuspyrnu 2020
Grein 1 Keppnin
1.1 Keppnin heitir 2. umferð Íslandsmótsins í götuspyrnu
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinareglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar Laugardaginn 15 Ágúst 2020
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema veðri ekki til spyrnu með tilliti til öryggis keppenda og annara á svæðinu. Keppnistjóri, dómnefn og öryggisfulltrúi keppninnar taka ákvörðun um frestun komi sú staða upp.
1.5 Keppnin verður felld niður komi ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.6 Ef aðeins 1 skráning berst í flokk er honum heimilt að keyra "upp fyrir sig" svo framarlega að hann uppfylli flokkareglur í þeim flokki.
Grein 2 Keppnishaldari
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar
Grein 3 Framkvæmdanefnd
3.1 Framkvæmdanefnd skipa EInar Gunnlaugsson, Hrefna Björnsdóttir og Jóhann T. Unnsteinsson
Grein 4 Keppnissvæðið
4.1 Brautin hefur gilt leyfi til keppna í þeim flokkum sem keppt er í í götuspyrnu.
4.2 Akstursstefna brautar er frá austri til vesturs.
4.3 Lengd brautar er 201m í áttungsmílu (götuspyrnu).
Grein 5 Flokkun og útbúnaður ökutækja
5.1 Keppnisflokkar eru eftirtaldir:
>Bílar 4cyl
>Bílar 6cyl
>Bílar 8cyl standard
>Bílar 8cyl+
>Bílar 4x4
>Jeppaflokkur
>Mótorhjól F-hjól
>Mótorhjól Hippar undir 1100cc
>Mótorhjól Hippar 1100cc+
>Mótorhjól Krossarar
>Mótorhjól Götuhjól undir 800cc
>Mótorhjól Götuhjól 800cc+
> Breytt Götuhjól
5.1.1a Leyft verður að keyra önnur tæki sem eru utan þessa flokka í tilefni að víglsun nýrrar brautar, en slíkar ferðir verða ekki taldar til meistara.
5.1.1b Slík keppnistæki skulu ekki mæta á ráslínu nema með leyfi keppnisstjóra eða staðgengli hans.
Grein 6 Skráning
6.1 Engin takmörk eru á hámarks fjölda ökutækja sem skrá eru til keppni.
6.2 Skráning fer fram á vef AKÍS, og hefst um leyð og hún verður aðgengileg þar.
6.3 Skráningu lýkur fimmtudaginn 13.ágúst kl 23.59
6.4 Keppnisgjald er 8000kr. innifalið er keppnisskirteini AKÍS
Grein 7 Tryggingar
7.1 Öll tæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
Grein 8 Keppnis og ökuskirteini
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
Grein 9 Merkingar ökutækja
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í hliðarrúðu vinstra megin.
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan.
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst.
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
Grein 10 Ræsing
Grein 10.1 Almennt
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vef AKÍS, einnig verður formleg dagskrá og keppendalstar aðgengilegir í félagsheimili og stjórnstöð keppninnar.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman, einnig verða þau hengd upp í félagsheimili.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Jón Rúnar Rafnsson og Bjarni Hjaltalín.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Tryggvi Unnsteinsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 7000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Björgvin Þórsson | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Kristján Skjóldal | BA | 0 |
2 | Svanur Vilhjalmsson | AÍFS | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Víðir Orri Hauksson | BA | 0 |