Íslandsmót í sandspyrnu 2021

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: ingimundur@shelby.is

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur 1. umferð Íslandsmóts í sandspyrnu 2021 á sandspyrnubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 15. maí 2021.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
Fólksbílar (F)
Útbúnir fólsbílar (ÚF)
Buggybílar (B)
Jeppar (J)
Útbúnir jeppar (ÚJ)
Sérsmíðuð ökutæki (S)
Opinn flokkur (O)

Mótorhjól
Unglingaflokkur (MU)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)

Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1. og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Verðlaun í Allt flokkum er einungis fyrir 1. sæti.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda

09:15 Skoðun hefst

10:00 Pittur lokar

10:30 Skoðun lýkur

10:45 Keppendafundur

11:15 Tímataka

12:30 Tímatöku lýkur

13:00 Keppni

15:30 Lokaúrslit birt

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Ingimundur Helgason

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Kjartan Viðarsson

Formaður dómnefndar: Ragnar Róbertsson

Dómnefnd 1: Baldvin Hansson

Dómnefnd 2: Sigurjón Andersen

Dagsetningar

15. maí 2021 kl: 11:15

Brautir og vegalengdir

Sandspyrnubraut KK
Lýsing: 300 ft

Tegund/mótaröð

Sandspyrna

Íslandsmeistaramót - 1. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 29. apríl 2021 kl: 00:00

Skráningargjald: 10000 kr.-

Skráningargjald hækkar 9. maí 2021: 13000 kr.-

Skráningu lýkur: 13. maí 2021 kl: 23:00

Flokkar

Buggybílar

Fólksbílar

Jeppar

MSÍ-Fjórhjól (FJ)

MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)

MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)

MSÍ-unglingaflokkur (MU)

MSÍ-Vélsleðar (V)

Opinn flokkur bíla

Sérsmíðuð ökutæki

Útbúnir fólksbílar

Útbúnir jeppar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra keppenda og starfsmanna

#1 - 14. maí 2021 kl: 01:22
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/a6K8J.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR Íslandsmót í sandspyrnu 2021 - 1. umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í sandspyrnu 2021 - 1. umferð.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut KK, þann 15. maí 2021 kl: 11:15.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Baldvin Hansson og Ingólfur Arnarson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsaðstöðu Kvartmíluklúbbsins við Álfhellu.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a

Bílar
Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar

Mótorhjól
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-Vélsleðar (V)

5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.

5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 9. maí 2021 kl. 23:00 og eftirskráningu lýkur 12. maí kl. 23:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Skráningargjald er kr. 11.000 í almennri skráningu og kr. 14.000 í eftirskráningu.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/a6K8J.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Ragnar Róbertsson, sem jafnframt er formaður hennar, Baldvin Hansson og Sigurjón Andersen.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.

14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

Buggybílar

Fólksbílar

Jeppar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Grétar Már Óskarsson TK Jeep Wrangler 116
2 Gunnar Bjarki Hjörleifsson KK Toylet land cruiser 95
3 Geir Evert Grìmsson TK Ford Expedition 79

MSÍ-Fjórhjól (FJ)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Björgvin Steinarsson KK Yamaha Raptor 10

MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)

MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Þorvaldur Yngvi Schiöth BA Yamaha R6 113
2 Adam örn þorvaldsson BA Yamaha 94
3 Brynjar Schiöth BA SUZUKI GSXR600 77
4 Davið Þór Einarsson KK Suzuki Gsxr 70
5 Grimur Helguson KK BMW S1000rr 61

MSÍ-unglingaflokkur (MU)

MSÍ-Vélsleðar (V)

Opinn flokkur bíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Valur Jóhann Vífilsson KK Dragster 15
2 Ingólfur Arnarson KK BATMAN 10

Sérsmíðuð ökutæki

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Gauti Moller BA Chevrolet Vega 116
2 Leifur Rósinbergsson KK Chevy Pinto 95
3 Stígur Andri Herlufsen KK Volvo Pv 544 79
4 Auðunn Helgi Herlufsen KK Chevy Camaro 68

Útbúnir fólksbílar

Útbúnir jeppar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Magnús Bergsson KK 10
2 Hafsteinn Þorvaldsson TK Torfan 10