Akstursíþróttaklúbburinn Start heldur 2.umferð íslandsmóts í torfæru í Ylsgrús við Mýnes, fyrir utan Egilsstaði þann 3.júlí kl 13:00
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum auk tilþrifaverðlauna.
Dagskrá Isavia torfærunnar 3.júlí 2021
08:30 Pittur opnar
09:00 Skoðun keppnisbíla í pitt hefst
10:30 Fundur með keppendum og brautarskoðun.
11:30 Skoðun lýkur
12:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið.
13:00 Keppni hefst
15:00 Smá hlé 15 mín (eftir braut nr. 3)
17:00 Áætluð keppnislok.
17:05 Úrslit birt. (kærufrestur byrjar).
17:35 Kærufrest lýkur.
START
Viðburðarstjóri: Magnús Ási Ástráðsson
Öryggisfulltrúi: Hlynur Sigbjörnsson
Skoðunarmaður: Benedikt Hermansson
Formaður dómnefndar: Hanna Ragnarsdóttir
Dómnefnd 1: Davíð Logi Hlynsson
Dómnefnd 2: Ástráður Ási Magnússon
3. júlí 2021 kl: 13:00
Torfærusvæðið við Egilsstaði
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 18. júní 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 25. júní 2021 kl: 23:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
Hér í viðhengi má sjá kreppnisskrá með öllu helstu upplýsingum keppninnar.
Hala niður viðhengiSÉRREGLUR 2. umferðar Íslandsmóts í torfæru 3.júlí 2021
1.1 Keppnin heitir ISAVIA torfæran og er 2. umferð Íslandsmóts í torfæru 2021.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinar reglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram í Ylsgrúsum við Mýnes, rétt utan við Egilsstaði þann 3.júlí 2021.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttaklúbburinn Start, Fljótsdalshéraði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, Ástráður Ási Magnússon, Árni Páll Einarsson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur á Egilsstöðum.
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki, samtals um það bil 70-800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PARC FERMÉ
4.2.1 Parc Fermé er staðsett í pittsvæði, viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu braut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Flokkur sérútbúinna
5.1.1.b Götubílaflokkur
5.1.1.c Flokkur sérútbúinna götubíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Eftirfarandi takmörk gilda um skráningu og fjölda aðstoðarmanna:
6.1.1 Leyfður fjöldi aðstoðarmanna er 8 fyrir hvern skráðan keppnisbíl
6.1.2 Fari fjöldi skráðra keppnistækja yfir 25 bíla samanlagt í öllum flokkum getur þurft að fækka aðstoðarmönnum eða skoða það sérstaklega hvort hægt verði að halda keppnina vegna samkomutakmarkana.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 25. júní 2021 klukkan 23:00.
6.5 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 5000.
6.6 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.6.1 þátttökurétt í keppninni;
6.6.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við Torfærureglur - 2021 grein 7.1.
9.2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir bílar sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá keppnisráði í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl. 12:55.
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl. 13:00.
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1. um rásröð í torfærureglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://nn.is/f5A6L
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stiga- og tímaverðir hafa tekið þau saman.
12.4 Dómnefnd birtir lokaúrslit keppninnar á upplýsingatöflunni.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum auk tilþrifaverðlauna.
14.1.1 Dómnefnd skipa:
Hanna Rún Ragnarsdóttir, formaður dómnefndar
Sigfús Þór Sigurðsson
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
14.2.1 Keppnisstjóri er Magnús Ástráðsson.
14.2.2 Brautarstjóri er Björn Jónsson
14.2.3 Skoðunarmenn eru Jónas Jónasson og Benedikt Hermansson.
14.2.4 Öryggisfulltrúi er Hlynur Sigbjörnsson.
14.2.5 Pittstjóri og tengiliður keppenda, Steinþór G Stefánsson .
14.2.6 Ræsir er Kristján Már Magnússon.
14.2.7 Sjúkra Fulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.14.2.7.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkra fulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.8 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.9 Sóttvarnarfulltrúi er Árni Páll Einarsson.
14.2.10 Staðreyndardómarar eru Guðni Jónsson, Vigdís Helgadóttir og Gunnar Gunnarsson.
14.3.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: START
Keppnisgjald: 4000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steingrímur Bjarnason | TK | 20 |
2 | Óskar Jónsson | AÍNH | 17 |
3 | Guðbjörn Már Ólafsson | AÍH | 15 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 20 |
2 | Snorri Þór Árnason | TK | 17 |
3 | Geir Evert Grìmsson | TK | 15 |
4 | Haukur Viðar Einarsson | KK | 12 |
5 | Jóhann Gunnlaugsson | KK | 10 |
6 |
Fjölnir Guðmannsson
Aðst: Kristján Skjóldal |
BA BA |
8 |
7 | Ásmundur Ingjaldsson | START | 6 |
8 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 4 |
9 | Þórður Atli Guðnýjarson | AÍNH | 2 |
10 | Aron Ingi Svansson | BA | 1 |
11 | Sigurður Ingi Sigurðsson | AÍNH | 0 |
12 |
Óskar Ólafur Björnsson
Aðst: Páll Jónsson |
AÍNH AÍNH |
0 |
13 | Helgi Sveinn Heimisson | START | 0 |