Kvartmíluklúbburinn heldur 3. umferð Íslandsmóts í tímaati 2021 á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 18. ágúst 2021.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
HOT WHEELS
HOT WHEELS JUNIOR
HOT WHEELS SPORT
HOT WHEELS TURBO
ÓBLÁSNIR RALLYBÍLAR
GÖTUBÍLAR
GÖTUBÍLAR RWD
GÖTUBÍLAR R-SPORT
BREYTTIR GÖTUBÍLAR
OPINN FLOKKUR FJÖLDAFRAMLEIDDRA BÍLA
OPINN FLOKKUR KAPPAKSTURSBÍLA
STANDARD 1000 KAPPAKSTURSBÍLA
FORMULA 1000 KAPPAKSTURSBÍLA
Ræsing ræðst af skráningu og flokkaskiptingu. Nánari högun verður birt á upplýsingatöflu fyrir keppnina.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Pittur opnar og skoðun hefst kl. 18:30.
Frjáls æfing hefst kl. 19:00.
Keppnislota 1 hefst kl. 20:00 og lengd og fjöldi keppnislota er fljótandi en keppni stendur til kl. 22:00.
Keppnisstjóri eða fulltrúi hans stýrir inn á brautina á þeim tíma.
Eina tryggingin fyrir akstri sem menn hafa er að fá að keyra einu sinni á frjálsri æfingu og einu sinni í keppnislotu.
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Ingimundur Helgason
Skoðunarmaður: Kjartan Viðarsson
Formaður dómnefndar: Sigurður Ólafsson
Dómnefnd 1: Sigurjón Andersen
Dómnefnd 2: Ingólfur Arnarson
18. ágúst 2021 kl: 19:00
Hringakstursbraut KK
Lýsing: 2412 metrar
Tímaat
Íslandsmeistaramót - 3. umferð
Skráning hefst: 25. júlí 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 18. ágúst 2021 kl: 18:00
Breyttir götubílar
Formula 1000 kappakstursbílar
Götubílar
Götubílar RSPORT
Götubílar RWD
Hot wheels
Hot Wheels JUNIOR
Hot wheels SPORT
Hot wheels TURBO
Óblásnir rallybílar
Opinn flokkur fjöldaframleiddra bíla
Opinn flokkur kappakstursbíla
Standard 1000 kappakstursbílar
SÉRREGLUR Íslandsmót í tímaati 2021 - 3. umferð
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í tímaati 2021.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Tímaat og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Hringakstursbraut KK, þann 18. ágúst 2021 kl: 19:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson og Ingimundur Helgason.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagsaðstöðu Kvartmíluklúbbsins við Álfhellu.
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 2412 metra löng.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er aðgengilegt í takmörkuðu mæli á pittsvæði.
4.2.1.a Pittstjóri stýrir aðgangi að veiturafmagni.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára úrslitaferð er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita úr síðustu keppnislotu og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki keppnisbrautarinnar:
5.1.1.a Breyttir götubílar
5.1.1.b Formula 1000 kappakstursbílar
5.1.1.c Standard 1000 kappakstursbílar
5.1.1.d Götubílar
5.1.1.e Götubílar RSPORT
5.1.1.f Götubílar RWD
5.1.1.g Hot wheels
5.1.1.h Hot Wheels JUNIOR
5.1.1.i Hot wheels SPORT
5.1.1.j Hot wheels TURBO
5.1.1.k Óblásnir rallybílar
5.1.1.l Opinn flokkur fjöldaframleiddra bíla
5.1.1.m Opinn flokkur kappakstursbíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þessa flokks eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 18. ágúst 2021 18:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 9.000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
6.6.c afnot af virkum tímatökusendi sem hentar í keppnina.
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara.
9.1 Keppnisnúmer skal vera staðsett á öllum fjórum hliðum ökutækis og skal það vera:
9.1.a í Pantone 803 C lit, eða því sem næst;
9.1.b í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.1.c í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.1.d í hliðarrúðum að aftan, hægra- og vinstra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.1.e í afturrúðu, bílstjóramegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð.
9.2 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar en einnig er hægt að kaupa þær af keppnishaldara.
9.2.a Panta þarf keppnisnúmeramerki hjá keppnishaldara í síðasta lagi 7 dögum fyrir keppnisdag.
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS, Reglubókar FIA og reglur og lög landsins.
9.4 Keppnishaldara er heimilt að setja auglýsingu undir hliðarrúðu á báðum framhurðum ökutækis sem er allt að 12 cm há og jafn breið og hurðin.
9.5 Heimilt er að setja auglýsingaborða efst á framrúðu hann má þó ekki vera hærri en svo að ökumaður haldi óskertu og öruggu útsýni til aksturs.
10.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
10.1.a Afnot af tímatökusendi er innifalið í skráningargjaldi keppninnar.
10.1.b Afsláttur af skráningargjaldi að upphæð kr. 3.000 er veittur keppanda sem notar eigin tímatökusendi.
10.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
10.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi frjálsri æfingu, tímatökuæfingu eða keppnislotu lokið hjá því ökutæki.
11.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
11.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Pittur opnar og skoðun hefst kl. 18:30.
Frjáls æfing hefst kl. 19:00.
Keppnislota 1 hefst kl. 20:00 og lengd og fjöldi keppnislota er fljótandi en keppni stendur til kl. 22:00.
Keppnisstjóri eða fulltrúi hans stýrir inn á brautina á þeim tíma.
Eina tryggingin fyrir akstri sem menn hafa er að fá að keyra einu sinni á frjálsri æfingu og einu sinni í keppnislotu.
11.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á frjálsri æfingu og tímatökuæfingu.
11.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
12.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
12.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
12.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
12.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum. Hún er aðgengileg á slóðinni http://nn.is/Pe4n2
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
12.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
12.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
12.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
12.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
12.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
12.5.b Reglur AKÍS um dróna.
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um tímaat.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
14.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
15.1.1 Dómnefnd skipa Sigurður Ólafsson, sem jafnframt er formaður hennar, Sigurjón Andersen og Ingólfur Arnarson.
15.2.1 Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
15.2.2 Skoðunarmaður er Kjartan Viðarsson.
15.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingimundur Helgason.
15.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
15.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
15.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
15.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
15.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
15.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
15.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
15.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
15.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
15.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 9000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hlynur Freyr Sigurhansson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Reynir Magnús Viglundsson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gunnlaugur Jónasson | KK | 25 |
2 | Tomas H. Jóhannesson | KK | 18 |
3 | Jóhann Egilsson | KK | 15 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingunn Valgerður Theódórsdóttir | KK | 0 |