COBOLT Sandspyrnan BA

COBOLT Sandspyrnan BA

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: joi902@hotmail.com

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 4. umferð Íslandsmóts í sandspyrnu 2021 á sandspyrnubraut BA þann 4.september næstkomandi.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
Fólksbílar (F)
Útbúnir fólsbílar (ÚF)
Buggybílar (B)
Jeppar (J)
Útbúnir jeppar (ÚJ)
Sérsmíðuð ökutæki (S)
Opinn flokkur (O)

Mótorhjól
Unglingaflokkur (MU)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)

Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.

Verðlaun eru veitt fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki. Þó aðeins 1. í Allt flokkum.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:30 Mæting keppenda

09:45 Skoðun hefst

10:15 Pittur lokar

10:45 Skoðun lýkur

11:00 Keppendafundur

11:15 Tímataka

12:30 Tímatöku lýkur

13:00 Keppni

16:00 Áætluð keppnislok

Kærufrestur í 30 mín frá keppnislokum

Verðlaunaafhending að kærufresti loknum.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Jóhann Tryggvi Unnsteinsson

Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson

Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson

Dómnefnd 1: Jón Rúnar Rafnsson

Dómnefnd 2: Jónas Freyr Sigurbjörnsson

Dagsetningar

4. september 2021 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Sandspyrnubraut BA
Lýsing: 91,44 m

Tegund/mótaröð

Sandspyrna

Íslandsmeistaramót - 4.umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 21. ágúst 2021 kl: 03:00

Skráningu lýkur: 3. september 2021 kl: 15:00

Flokkar

Buggybílar

Fólksbílar

Jeppar

MSÍ-Fjórhjól (FJ)

MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)

MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)

MSÍ-unglingaflokkur (MU)

MSÍ-Vélsleðar (V)

Opinn flokkur bíla

Sérsmíðuð ökutæki

Útbúnir fólksbílar

Útbúnir jeppar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Stjórnstöð - Til: Allra

#3 - 4. september 2021 kl: 16:46
Úrslit

Úrslit úr 4.umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu.

https://docs.google.com/document/d/1TQPtomDfrL1mHIM20RtGl7c4sIE6nmUXewCI-jKMGhA/edit?usp=sharing

Kv. 

Stjórnstöð


Frá: Stjórnstöð - Til: Allra

#2 - 4. september 2021 kl: 10:15
Keppendalisti

Keppendalisti eftir áætlaðri rásröð:

https://docs.google.com/spreadsheets/d/1z9PPpFW96PwRftEHNjfXbLcMg2qJxY57Nvs3SOBahV4/edit?usp=sharing

Kv.

Stjórnstöð


Frá: Stjórnstöð - Til: Allra

#1 - 4. september 2021 kl: 10:14
Starfsmannalisti

Listi yfir starfsmenn keppninnar.

https://docs.google.com/spreadsheets/d/15CqPW3pDEVhza26MhuGx6Enefse_0thn-U2uedYMnvY/edit#gid=0

kv. Stjórnstöð


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR Sandspyrna BA í mótaröð Íslandsmeistaramót - 4.umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Sandspyrna BA 4. umferð íslandsmóts í sandspyrnu..

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut BA
91,44 m, þann 4. september 2021 kl: 13:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann. (Með þeirri undantekningu að viðkomandi geti ekki fært sig um flokk sökum flokkareglna.)

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa  Einar Gunnlaugsson, Brynjar Schiöth, Jóhann Tryggvi Unnsteinsson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsheimili BA.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austur til vestur.

4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-Vélsleðar (V)
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar
.

5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.

5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2021-09-03 15:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Skráningargjald er kr. 7000.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni  http://skraning.akis.is/keppni/upplysingatafla/313 .

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Jón Rúnar Rafnsson og Bjarni Hjaltalín.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Tryggvi Unnsteinsson.

14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

Buggybílar

Fólksbílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Kristófer Daníelsson BA 116
2 Brynjar Schiöth BA 95
3 Sævar Páll Stefánsson BA Mercury Comet GT 79

Jeppar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Grétar Már Óskarsson TK Jeep Wrangler 126
2 Sverrir Yngvi Karlsson BA willys cj7 116
3 Harry Þór Hólmgeirsson KK Dragster 79

MSÍ-Fjórhjól (FJ)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Björgvin Steinarsson KK Yamaha Raptor 41

MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Bjarki Sigurðsson BA Sherco 116
2 Kjartan tryggvason BA 94
3 Adam Pétursson BA Ktm exc 530 80
4 Almar Valdimarsson BA Husaberg 68

MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Adam örn þorvaldsson BA 127
2 Davið Þór Einarsson KK Suzuki 115
3 Þorvaldur Yngvi Schiöth BA Yamaha R6 110
4 Tryggvi Snær Friðjónsson BA Honda CBR 68

MSÍ-unglingaflokkur (MU)

MSÍ-Vélsleðar (V)

Opinn flokkur bíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Kristján Skjóldal BA Blossi 10

Sérsmíðuð ökutæki

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Gauti Moller BA Chevrolet Vega 146
2 Leifur Rósinbergsson KK Chevy Pinto 96
3 Stígur Andri Herlufsen KK Volvo Pv 544 79

Útbúnir fólksbílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Gretar Óli Ingþórsson BA 10

Útbúnir jeppar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Gestur J. Ingólfsson BA Draumurinn 114
2 Stefán Bjarnhéðinsson BA Rollan 93
3 Magnús Bergsson KK 81
4 Eva Hilmarsdóttir
Aðst: Fjölnir Guðmannsson
BA
BA
Refurinn 70
5 Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir START Bomban 57