Íslandsmeistaramót í hermikappakstri 2022

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: aroninnn@gmail.com

Lýsing

Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.

Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.

Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 12. desember 2021.

Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.

Dagskrá

Keyrt verður á Nurburgring Grand Prix Strecke GP (Þýskalandi).

Stillt verður á 19. apríl við keyrslu í æfingum, tímatökum og keppnum. 

Keyrt verður í hálfskýjuðu, þurru veðri.

Innskráningin þarf að fara fram á 60 mínútna tímabili fyrir tímatökur á milli kl. 14:00 og 15:00.

Æfing 1 er ræst klukkan 15:00. Ræst er úr pitti.

Æfing 2 er ræst klukkan 16:00. Ræst er úr pitti.

Keppendafundur fer fram kl. 16:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara. 

Tímatökuæfing er ræst klukkan 17:10. Ræst er úr pitti.

Fyrri kappaksturslota er ræst klukkan 17:33. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.

Seinni kappaksturslota er ræst klukkan 18:10. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Aron Óskarsson

Öryggisfulltrúi: Baldvin Hansson

Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson

Formaður dómnefndar: Ásta Andrésdóttir

Dómnefnd 1: Baldvin Hansson

Dómnefnd 2: Andreas Boysen

Dagsetningar

12. desember 2021 kl: 15:00

Brautir og vegalengdir

Tegund/mótaröð

Hermikappakstur

Íslandsmeistaramót - 1. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 27. nóvember 2021 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 11. desember 2021 kl: 22:00

Flokkar

Formula 3

SÉRREGLUR
Íslandsmótskeppni í hermikappakstri 2022

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.

1.2 Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.

1.3 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.

1.4 Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 12. desember 2021.

1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson og Aron Óskarsson.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.

4.1.2 Keyrt verður á Nurburgring Grand Prix Strecke GP (Þýskalandi).

4.1.3 Leikurinn verður stilltur á 19. apríl við keyrslu í æfingum, tímatökum og keppnum.

4.1.3 Keyrt verður í hálfskýjuðu, þurru veðri.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:

5.1.1.a Formúla 3 - Dallara F3

 

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Fjöldi keppenda sem geta skráð sig til keppni er ótakmarkaður.

6.1a Fjöldi ökutækja í keppni er 30.

6.1b Ef skráning fer umfram 30 keppendur fer fram úrtökutímataka til að skera úr um þátttökurétt.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Skráningu lýkur þann 10. desember 2021 klukkan 22:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 5000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 RÆSING

GREIN 9.1 ALMENNT

9.1.1 Allir keppendur skráðir til keppni fá að ræsa nema komi til úrtökutímatöku (sbr. reglu 6.1b).

GREIN 9.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:

9.2.1.a Æfing 1 er ræst klukkan 15:00. Ræst er úr pitti.

9.2.1.b Æfing 2 er ræst klukkan 16:00. Ræst er úr pitti.

9.2.1.c Keppendafundur fer fram kl. 16:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara. 

9.2.1.d Tímatökuæfing er ræst klukkan 17:10. Ræst er úr pitti.

9.2.1.e Fyrri kappaksturslota er ræst klukkan 17:33. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.

9.2.1.f Seinni kappaksturslota er ræst klukkan 18:10. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.

GREIN 9.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

9.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu, annars sér iRacing forritið um þessa hluti að öllu leyti.

9.3.2 Röð keppenda við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasti keppandi ræsir fremst, þá næst hraðasti og svo koll af kolli.

9.3.2.a Röð keppenda við ræsingu seinni kappaksturs ræðst af úrslitum fyrri kappaksturs í öfugri röð. Fyrsta sæti byrjar aftast, annað sæti næst aftast, og svo koll af kolli.

9.3.3 Keppandi má ræsa frá þjónustusvæði ef hann kýs, eða ef aðstæður krefjast þess (svo sem tækjabilanir, og vandamál við tengingu).

GREIN 10 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

10.1 Keppendur skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.

10.1.a Sé keppandi ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

10.2 Keppendur skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.

10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefslóðinni http://nn.is/Wg26B - Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

10.5 Keppendum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og keppnisstjórn hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Ekki eru veitt verðlaun fyrir úrslit í þessari umferð íslandsmótsins umfram þau stig til íslandsmeistara sem greinarreglur kveða á um.

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND

13.1.1 Dómnefnd skipa Ásta Andrésdóttir, sem jafnframt er formaður hennar, Andreas Boysen og Baldvin Hansson.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN

13.2.1 Keppnisstjóri er Aron Óskarsson.

13.2.2 Skoðunarmaður er ekki skipaður fyrir þessa keppni sérstaklega.

13.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldvin Hansson.

13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa. 

13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 13.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu upp að því marki sem því verður við komið í keppni af þessu tagi.

13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.

13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 13.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 13.5 STAÐREYNDADÓMARAR

13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.

Úrslit

Formula 3

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Karl Thoroddsen KK 50
2 Hákon Darri Jökulsson KK 34
3 Högni Rúnar Ingimarsson KK 31
4 Hlynur Már Vilhjálmsson TK 23
5 Hinrik Haraldsson KK 22
6 Lydía Rósa Jóakimsdóttir KK Formula 3 18
7 Eyjólfur K.Jónsson KK 10
8 Ingvi Jón Gunnarsson KK 8
9 Alexander Hauksson KK 6