Keppnin heitir 8. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.
Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 13. mars 2022.
Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
Keyrt verður á AUTÓDROMO JOSÉ CARLOS PACE
Stillt verður á 19. apríl við keyrslu í æfingum, tímatökum og keppnum.
Keyrt verður í hálfskýjuðu, þurru veðri.
Æfing 1 er ræst klukkan 13:00. Ræst er úr pitti.
Æfing 2 er ræst klukkan 14:00. Ræst er úr pitti.
Keppendafundur fer fram kl. 14:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara.
Tímatökuæfing er ræst klukkan 15:10. Ræst er úr pitti.
Fyrri kappaksturslota er ræst klukkan 15:33. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.
Seinni kappaksturslota er ræst klukkan 16:10. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.
KK
Viðburðarstjóri: Aron Óskarsson
Öryggisfulltrúi: Baldvin Hansson
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Ásta Andrésdóttir
Dómnefnd 1: Andreas Boysen
Dómnefnd 2: Baldvin Hansson
13. mars 2022 kl: 13:00
Sýndarheimur iRacing
Lýsing:
GT Akademíu deildin / League(Deild #4302)
Hermikappakstur
Íslandsmeistaramót - 8. umferð
Skráning hefst: 12. febrúar 2022 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 11. mars 2022 kl: 22:00
Formula 3
1.1 Keppnin heitir 8. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.
1.2 Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 6. mars 2022.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson og Aron Óskarsson.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.
4.1.2 Keyrt verður á AUTÓDROMO JOSÉ CARLOS PACE.
4.1.3 Leikurinn verður stilltur á 19. apríl við keyrslu í æfingum, tímatökum og keppnum.
4.1.3 Keyrt verður í hálfskýjuðu, þurru veðri
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Formúla 3 - Dallara F3
6.1 Fjölda keppenda sem geta skráð sig til keppni er ótakmarkað.
6.1a Fjöldi ökutækja í keppni er 30
6.1b Ef skráning fer umfram 30 keppendur fer fram “úrtökutímataka” til að skera úr um þátttökurétt.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 4. mars 2022 klukkan 22:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 5.000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1.1 Allir keppendur skráðir til keppni fá að ræsa nema komi til “úrtökutímatöku.” (sjá 6.1b)
9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
9.2.1.a Æfing 1 er ræst klukkan 13:00. Ræst er úr pitti.
9.2.1.b Æfing 2 er ræst klukkan 14:00. Ræst er úr pitti.
9.2.1.c Keppendafundur fer fram kl. 14:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara.
9.2.1.d Keppnis þjónn/server opnar kl 15:00, 10 min til skráningar.
9.2.1.e Tímatökuæfing er ræst klukkan 15:10. Ræst er úr pitti.
9.2.1.f Fyrri Kappaksturslota er ræst klukkan 15:33. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mín
9.2.1.g Seinni Kappaksturslota er ræst klukkan 16:10. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mín
9.3.1 Keppnisstjóri má ákveða röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu, annars sér iRacing forritið um þessa hluti að öllu leiti.
9.3.2 Röð keppenda við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasti keppandi ræsir fremst, næst hraðasti svo, og svo koll af kolli.
9.3.2.a Röð keppenda við ræsingu seinni kappaksturs ræðst af úrslitum fyrri kappaksturs í öfugri röð. Fyrsta sæti byrjar aftast, annað sæti næst aftast, o.s koll af kolli.
9.3.3 Keppandi má ræsa frá þjónustusvæði ef hann kýs, eða ef aðstæður krefjast þess (svo sem tækjabilanir, og tengivesen)
10.1 Keppendur skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
10.1.a Keppenda fundur er haldinn á Discord rás GT Akademíunar
10.1.b Sé keppandi ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
10.2 Keppendur skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum. Slóð á upplýsingatöfluna verður birt á keppendafundi. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
10.5 Keppendum er sérstaklega bent á að þekkja og virða iðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.
11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og keppnisstjórn hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
12.1 Ekki eru veitt verðlaun fyrir úrslit í þessari umferð íslandsmótsins.
13.1.1 Dómnefnd skipa Ásta Andrésdóttir, sem jafnframt er formaður hennar, Andreas Boysen og Baldvin Hansson.
13.2.1 Keppnisstjóri er Aron Óskarsson.
13.2.2 Skoðunarmaður er ekki skipaður fyrir þessa keppni sérstaklega.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldvin Hansson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu upp að því marki sem því verður við komið í keppni af þessu tagi.
13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 4000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Karl Thoroddsen | KK | 43 |
2 | Hákon Darri Jökulsson | KK | 37 |
3 | Lydía Rósa Jóakimsdóttir | KK | 30 |
4 | Heidar Benediktsson | KK | 26 |
5 | Hinrik Haraldsson | KK | 24 |
6 | Alexander Hauksson | KK | 18 |