UMF Hekla heldur 1. umferð Íslandsmóts í Torfæru 2022 í Torfærusvæðinu við Hellu þann 7.5 2022
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
upplýsingartafla keppninnar er rafræn á slóðinni http://nn.is/Hi62D
07:00 Pittur opnar
07:00 Skoðun keppnisbíla í pitt
09:15 Fundur og brautarskoðun.
10:15 Skoðun lýkur
10:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið.
11:00 Keppni hefst
13:30 Hlé 15 mín (eftir braut nr. 3)
17:00 Áætluð keppnislok.
17:05 Úrslit birt. (kærufrestur byrjar).
17:35 Kærufrest lýkur.
17:45 Verðlaunaafhending við pitt
AÍNH
Viðburðarstjóri: Kári Rafn Þorbergsson
Öryggisfulltrúi: Styrmir Grétarsson
Skoðunarmaður: Þorsteinn Valsson
Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson
Dómnefnd 1: Ingibjörg Jónína Steinarsdóttir
Dómnefnd 2: Grettir Rúnarsson
7. maí 2022 kl: 11:00
Torfærusvæðið við Hellu
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót - 1. umferð
Skráning hefst: 13. apríl 2022 kl: 11:00
Skráningu lýkur: 1. maí 2022 kl: 23:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Hi62D
SÉRREGLUR 1. umferðar Íslandsmóts í torfæru 7. maí 2022
1.1 Keppnin heitir Sindra torfæran og er 1. umferð Íslandsmóts í torfæru 2022.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram í Torfærugryfjum AÍNH við Gunnarsholtsveg, rétt austan við Hellu þann 7. maí 2022.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttanefnd UMF Heklu í samstarfi við Flugbjörgunarsveitina á Hellu.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Kári Rafn Þorbergsson, Stefán Smári Ásmundarson, Sigurður Haukur Einarsson og Styrmir Grétarsson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Dynskálum 34, 850 Hellu.
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki, samtals um það bil 70-800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PARC FERMÉ
4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé.
4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé að loknum akstri síðustu þrautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Flokkur sérútbúinna
5.1.1.b Götubílaflokkur
5.1.1.c Flokkur sérútbúinna götubíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.2 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.3 Skráningu lýkur þann 1. maí 2022 klukkan 23:00.
6.4 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 5000.
6.5 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.5.1 þátttökurétt í keppninni;
6.5.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
6.6 Leyfilegt er að skrá 2 ökumenn á ökutæki í samræmi við Keppnisgreinarreglur fyrir torfæru 2022, lið 2.1.2.a
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnissgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru (sjá nánar á slóðinni http://www.akis.is/wp-content/uploads/2021/12/Torfaerureglur-2022-final-.pdf).
9.2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir keppendur sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá Keppnisráði AKÍS í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl. 10:55.
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl. 11:00.
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1. um rásröð í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppninni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Hi62D
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stiga- og tímaverðir hafa tekið þau saman.
12.4 Dómnefnd birtir lokaúrslit keppninnar á upplýsingatöflunni.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa:
Baldvin Hansson, formaður dómnefndar
Ingibjörg Jónína Steinsdóttir
Grettir Rúnarsson
14.2.1 Keppnisstjóri er Kári Rafn Þorbergsson.
14.2.2 Brautarstjóri er Sverrir Norðfjörð
14.2.3 Skoðunarmaður er Þorsteinn Valsson.
14.2.4 Öryggisfulltrúi er Styrmir Grétarsson.
14.2.5 Pittstjóri og tengiliður keppenda er Stefán Smári Ásmundarson.
14.2.6 Ræsir er Smári Sigurgrímsson.
14.2.7 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef upp koma atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.7.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.8 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.9 Nöfn staðreyndardómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir fyrstu ræsingu.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: AÍNH
Keppnisgjald: 4000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Haukur Viðar Einarsson | KK | 20 |
2 | Þórður Atli Guðnýjarson | AÍNH | 17 |
3 | Ingi Már Björnsson | TK | 15 |
4 | Þór Þormar Pálsson | BA | 12 |
5 | Sigurður Ingi Sigurðsson | AÍNH | 10 |
6 | Geir Evert Grìmsson | TK | 8 |
7 | Ólafur Bragi Jónsson | START | 6 |
8 | Aron Ingi Svansson | BA | 4 |
9 | Jón Reynir Andrésson | KK | 2 |
10 | Ingvar Jóhannesson | TK | 1 |
11 | Fjölnir Guðmannsson | BA | 0 |
12 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 0 |
13 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 0 |
14 | Finnur Aðalbjörnsson | BA | 0 |
15 | Svanur Örn Tómasson | TK | 0 |
16 | Sævar Benónýsson | TK | 0 |