Bílaklúbbur Akureyrar heldur Bikarmót í spyrnu á aksturssvæði BA þann 13. ágúst 2022
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Athugið að stigin úr þessari keppni og þeirri næstu sem verður minningarmótið okkar 27 ágúst 2022 telja til sameiginlegra stiga til BIKARMEISTARA í öllum flokkum ef næg þátttaka næst í alla flokka.
Bílar
T flokkur
T/G 8,70 áttungsmíla
T/F 8,10 áttungsmíla
T/E 7,50 áttungsmíla
T/D 6,90 áttungsmíla
T/C 6,30 áttungsmíla
T/B 5,70 áttungsmíla
T/A Index
DS flokkur
OF flokkur
Mótorhjól
Götuhjól undir 700cc (G-)
Götuhjól yfir 700cc (G+)
Breytt götuhjól (B)
Opinn flokkur (O)
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1. og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
10:00 Móttaka keppenda hefst
10:15 Skoðun hefst
10:45 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:00 Tímatökur hefjast
13:30 Tímatökum lýkur
14:00 Keppni hefst
17:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
17:30 Kærufresti lýkur
Verðlauna afhending verður við stjórnstöð.. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
BA
Viðburðarstjóri: Valdimar G Valdimarsson
Öryggisfulltrúi: Jón Rúnar Rafnsson
Skoðunarmaður: Kristján Skjóldal
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Hrefna Gerður Björnsdóttir
Dómnefnd 2: Brynjar Schiöth
13. ágúst 2022 kl: 14:00
Spyrnubraut BA
Lýsing:
Spyrna
BA bikarmót í spyrnu - 1. umferð
Skráning hefst: 27. júlí 2022 kl: 17:45
Skráningu lýkur: 11. ágúst 2022 kl: 23:59
*DS flokkur áttungsmíla
*OF flokkur áttungsmíla
MSÍ Breytt götuhjól (B)
MSÍ Götuhjól undir 700cc (G-)
MSÍ Götuhjól yfir 700cc (G+)
MSÍ Opinn flokkur (0)
T/A index
T/B 8,90 / 5,70
T/C 9,90 / 6,30
T/D 10,90 / 6,90
T/E 11,90 / 7,50
T/F 12,90 / 8,10
T/G 13,90 / 8,70
Einungis þarf 2 í hvern flokk til að telja til stiga í bikarmótinu
Breyting á skðunarmönnum keppninnar:
Kristján Skjóldal verður skoðunarmaður bíla i stað Helga Garðarssonar.
Sigurgeir Benjamínsson verður skoðunarmaður mótorhjóla.
Breyting á dómnefnd
Einar Gunnlaugsson tekur við sem formaður dómnefndar í stað Tryggva Magnússonar sem jafnframt fer úr dómnefnd og í hans stað í dómnefndinni kemur Hrefna Björnsdóttir.
Þá kemur Bjarni Hjaltalín inn í dómnefnd í stað Brynjars Schiöth.
REIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Bikarmót í spyrnu 2022.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar 13. ágúst 2022 kl 14:00
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt til Íslandsmeistara í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegi 13 603 Akureyri.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson og Björgvin Þórsson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Bílaklúbbs Akureyrar.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.
4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.3 Hámarkshraði í pittnum er gönguhraði og spól er stranglega bannað.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i T/G
5.1.1.a.ii T/F
5.1.1.a.iii T/E
5.1.1.a.iv T/D
5.1.1.a.v T/C
5.1.1.a.vi T/B
5.1.1.a.vii T/A
5.1.1.a.ix OF flokkur
5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i Götuhjól undir 700cc (G-)
5.1.1.b.ii Götuhjól yfir 700cc (G+)
5.1.1.b.iii Breytt götuhjól (B)
5.1.1.b.iv Opinn flokkur (O)
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skáningu lýkur 11. ágúst 23:59
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald er kr. 10.000 . Innifalið er keppnisgjald til Akís
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum nema OF en þar er notast við hreinan útslátt.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Þórðarson sem jafnframt er formaður hennar, Einar Gunnlaugsson og Bjarni Hjaltalín.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Valdimar Geir Valdimarsson
14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jón Rúnar Rafnsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 10000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gretar Óli Ingþórsson | BA | 116 |
2 | Arnar sigursteinsson | BA | 94 |
3 | Halldór Hauksson | BA | 80 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Davið Þór Einarsson | KK | 121 |
2 | Birgir Þór Kristinsson | BA | 95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hrannar Ingi Óttarsson | BA | 121 |
2 | Snorri Þórarinsson | BA | 95 |
3 | Guðmundur Kári Daníelsson | BA | 79 |
4 | Hlöðver Helgi Sigurðsson | BA | 68 |
5 | Ingolfur Snorrason | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hrannar Ingi Óttarsson | BA | 96 |
2 | Guðmundur Kári Daníelsson | BA | 80 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Guðmundur Ómarsson | BA | 115 |
2 | Ottó Páll Arnarson | BA | 96 |
3 | Magnús Bergsson | KK | 79 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Gunnar Valur Magnússon
Aðst: Magnús Sæmundsson |
BA BA |
80 |
2 | Sævar Páll Stefánsson | BA | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Einar Rafn Einarsson
Aðst: Einar Þór Birgisson |
BA BA |
116 |
2 | Hrolfur Flosason | BA | 94 |
3 |
Karen Halldórsdóttir
Aðst: María Hómgrímsdóttir |
BA BA |
94 |
4 |
Karl óskar Geirsson
Aðst: Sverrir Yngvi Karlsson |
BA BA |
10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Brynjar Nova Kristjánsson | BA | 115 |
2 | Hólmar Kristján Þórhallsson | BA | 93 |
3 | Ágúst Þráinsson | BA | 81 |
4 | Björgvin Þórsson | BA | 69 |
5 | Hjörtur Valsson | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke | BA | 115 |
2 | Garðar Þór Garðarsson | BA | 78 |
3 | Simon Geir Sveinbjörnsson | BA | 71 |