Kvartmíluklúbburinn heldur Íslandsmót í drifti 2022 á driftbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni dagana 12. og 13. ágúst 2022.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
DAGSKRÁ Íslandsmóts í drifti 2022
12. ágúst
18:00 Pittur opnar / mæting keppenda
18:15 Skoðun hefst
19:00 Æfing hefst
19:45 Pittur lokar
20:00 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
13. ágúst
08:30 Pittur opnar / mæting keppenda
09:30 Pittur lokar
09:30 Keppendafundur
10:00 Forkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
12:30 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
KK
Viðburðarstjóri: Bragi Örn Hilmarsson
Öryggisfulltrúi: Ómar ingi Ómarsson
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Atli Jóhann Einarsson
Dómnefnd 1: Baldvin Hansson
Dómnefnd 2: Ásta Andrésdóttir
Frá: 12. ágúst 2022 kl: 19:00
Til: 13. ágúst 2022 kl: 16:00
Driftbraut KK
Lýsing:
Drift
Íslandsmeistaramót - 2. umferð
Skráning hefst: 27. júlí 2022 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 10. ágúst 2022 kl: 23:00
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Gn7k4
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í drifti 2022 - 2. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Kvartmílubrautinni þann 12. til 13. ágúst 2022.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Bragi Örn Hilmarsson, Ómar Ingi Ómarsson, Atli Freyr, Ingimundur Helgason og Ingólfur Arnarson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsaðstöðu Kvartmíluklúbbsins, Álfhellu, Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 LEIÐIN
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður skv. leiðarlýsingu sem kynnt verður á keppnisdegi.
4.1.3 Leiðin er um það bil 800 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum skraning.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 10. ágúst 2021 23:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Skráningargjald er kr. 15.000.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
12. ágúst
19:00 Æfing
13. ágúst
10:00 Forkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
12:30 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2021.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Minni götubílar, Götubílar og Opinn flokkur.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Gn7k4
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
11.5.3 Keppandi/ökumaður skal óska eftir og fá staðfest viðgerðarhlé hjá keppnis-, pitt- eða brautarstjóra.
11.5.3.a Þegar viðgerðarhlé hefur verið staðfest getur keppandi/ökumaður skoðað og undirbúið viðgerðina en ekki má snerta eða byrja viðgerð á ökutæki fyrr en keppnis-, pitt- eða brautarstjóri heimilar og þá hefjast tímamörk (10 mín.).
11.5.3.b Stuðst er við reglubók formulu drifts, grein 7 og 7.1. https://www.formulad.com/storage/rulebooks/June2022/fQVx4wyrwoozOK2VDDY7.pdf?fbclid=IwAR0qS0Rd9w4JM97RrCfTDIiSb7qgT7FtOsBTiXKY3VpPH-r5r3BYkuv5knI
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Atli Jóhann Einarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Bragi Örn Hilmarsson og Sigurjón Andersen.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Halldór Jóhannsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ómar Ingi Ómarsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 14000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Patrik Snær Bjarnason | AÍH | 115 |
2 | Hubert Dorozinski | AÍH | 100 |
3 | Gunnar Yngvi Rúnarsson | AÍH | 84 |
4 | Emil Örn Kristjánsson | AÍH | 79 |
5 | Hafliði Harðarson | AÍH | 69 |
6 | Guðlaugur Birkir Jóhannsson | AÍH | 67 |
7 | Sigmar Freyr Halldórsson | AÍH | 66 |
8 | Skúli Ragnarsson | AÍH | 66 |
9 | Jóhann Pálmarsson | AÍH | 4 |
10 | Felix Viðar Guðmundsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Axel Indriði Einarsson | KK | 112 |
2 |
Aron ingi elsuson
Aðst: Tomasz Dorozinski |
AÍH AÍH |
96 |
3 | karl arnar olafsson | AÍH | 93 |
4 | Telma rut Hafþórsdóttir | AÍH | 79 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Fabian Dorozinski | AÍH | 115 |
2 | Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | 100 |
3 | Sindri Már Ingimarsson | AÍH | 88 |
4 | Árni Freyr Gunnarsson | KK | 75 |
5 | Anton Örn Árnason | AÍH | 69 |
6 | Sigurbergur Eiríksson | AÍH | 67 |
7 | Stefán Þór Gunnarsson | KK | 66 |