Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur 3. umferð Íslandsmóts í kappakstri 2022 á Akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni þann 28.ágúst 2022..
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
FORMULA 1000 flokkur
Standard 1000 flokkur
Fólksbílaflokkur
Kappaksturbílaflokkur
Ræst er í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. Lokaúrslitum.
09:00 Pittur opnar / mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:30 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:00 Fyrri keppnislota
13:30 Seinni keppnislota
14:30 Verðlaunaafhending
15:00 Lokaúrslit birt
AÍH
Viðburðarstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson
Formaður dómnefndar: Jón Bjarni Jónsson
Dómnefnd 1: Hanna Ragnarsdóttir
Dómnefnd 2: Linda Dögg Jóhannsdóttir
28. ágúst 2022 kl: 09:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Kappakstur
Íslandsmeistaramót - 3. umferð
Skráning hefst: 14. ágúst 2022 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 25. ágúst 2022 kl: 23:59
Fólksbílaflokkur
Formula 1000 flokkur
Kappakstursbílaflokkur
Standard 1000 flokkur
Upplýsingatöflu má finna á slóðinni https://docs.google.com/document/d/17S-tO3lS6j_UQal_-KtT8nV-l-HWXzWXeBLHSq-aI6A/edit
Íslandsmót í hringakstri 2022 - 3.umferð
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í hringakstri 2022 - 3.umferð
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinar reglum AKÍS fyrir kappakstur og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni þann 28. Ágúst 2022.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar (AÍH), til heimilis að Kapelluhrauni.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jökull Ýmir Guðmundsson og Arnar Ísfeld Birgisson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsheimili AÍH
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis á malbiks braut AÍH
4.1.3 Leiðin er um það bil 850 metrar.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Pittstjóri stýrir aðgangi að pitti, niðurröðun og öðru sem þurfa þykir á pittsvæði.
4.2.2 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára úrslitaferð er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í þeim flokkum ökutækja sem í boði eru samkvæmt keppnisgreinar reglum berist að minnsta kosti 3 skráningar í viðkomandi flokk.
5.1.1.a Keppnisstjóra er heimilt að keyra marga flokka samtímis.
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 25. ágúst 2022 klukkan 23:59.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 15.000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
6.6.c afnot af virkum tímatökusendi sem hentar í keppnina.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu (keppnisviðauki fyrir kappakstur við venjulega tryggingu).
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011 með áorðnum breytingum.
8.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og reglur AKÍS eða landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara.
9.1.a Hafi keppandi fengið keppnisnúmeri úthlutað af AKÍS verður það númer notað af keppnishaldara ef keppandi óskar eftir því við skráningu.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á öllum fjórum hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.a í Pantone 803 C lit, eða því sem næst;
9.2.b í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.c í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.d í hliðarrúðum að aftan, hægra- og vinstra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.2.e í afturrúðu, bílstjóramegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar en einnig er hægt að kaupa þær af keppnishaldara.
9.3.a Panta þarf keppnisnúmeramerki hjá keppnishaldara í síðasta lagi 7 dögum fyrir keppnisdag.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS, Reglubókar FIA og reglur og lög landsins.
9.5 Keppnishaldara er heimilt að setja auglýsingu undir hliðarrúðu á báðum framhurðum ökutækis sem er allt að 12 cm há og jafn breið og hurðin.
9.6 Heimilt er að setja auglýsingaborða efst á framrúðu hann má þó ekki vera hærri en svo að ökumaður haldi óskertu og öruggu útsýni til aksturs.
GREIN 10 TÍMATÖKUSENDIR
10.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur, og skal hann vera kominn í við skoðun
10.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 10.000kr, pr. Keppni ( á meðan birgðir endast)
10.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
10.2.a Virki ekki tímasendir áður en tímatökur hefjast er ekki hægt að leyfa ökutæki að keyra auka tímatökuhring og fengi viðkomandi þá max tíma.
10.2.b Tímatökusendir á að vera staðsettur í hægri hjólaskál bíls.
10.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
10.4 Hægt er að styðjast við tímatökubúnað í keppni ef dómnefnd þykir ástæða til.
GREIN 11 RÆSING
GREIN 11.1 ALMENNT
11.1.1 Öll ökutæki sem skráð eru til keppni og standast keppnisskoðun fá að ræsa.
GREIN 11.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
11.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
11.2.1.a Tímatökuæfing klukkan 11:00. Ræst á ferð án fylgdarbíls.
11.2.1.b Fyrri kappaksturslota klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
11.2.1.c Seinni kappaksturslota klukkan 13:30. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 11.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
11.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á frjálsri æfingu og tímatökuæfingu.
11.3.2 Röð ökutækja við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasta ökutæki ræsir fremst, næst hraðasta næst fremst og svo koll af kolli.
11.3.3 Röð ökutækja við ræsingu seinni kappaksturs er öfug röð úrslita fyrri kappaksturs fyrir sæti 1-10 og óbreytt röð fyrir sæti 11 og upp úr.
11.3.4 Í fyrri og síðari kappakstri er ökutækjum raðað í tvær raðir á miðri braut, vinstri röð við ráslínu og hægri röð um það bil einni og hálfri bíllengd aftar. Á milli raðana skulu vera um það bil tvær bílbreiddir.
11.3.5 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 12 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
12.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
12.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
12.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
12.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum. Hún er aðgengileg á slóðinni https://docs.google.com/document/d/17S-tO3lS6j_UQal_-KtT8nV-l-HWXzWXeBLHSq-aI6A/edit - Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
12.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
12.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
12.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
12.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
12.5.b Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 13 ÚRSLIT
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir kappakstur.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 14 VERÐLAUN
14.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum eknum flokki.
14.2 Verðlaun verða veitt um leið og bráðabirgðaúrslit liggja fyrir með fyrirvara um breytingar þegar lokaúrslit verða birt.
14.2.a Verðlaunahafar 1., 2. og 3. sætis munu þurfa að gefa eftir, án eftirmála, veitt verðlaunasæti með öllum þeim réttindum og fríðindum eða verðlaunagripum sem því fylgja, komi til þess að lokaúrslit endurspegli ekki bráðabirgðaúrslit.
GREIN 15 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 15.1 DÓMNEFND
15.1.1 Dómnefnd skipa Jón Bjarni Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar, Hanna Ragnarsdóttir og Linda Dögg Jóhannsdóttir.
GREIN 15.2 HELSTU STARFSMENN
15.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson.
15.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldór Hjaltason.
15.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldór Hjaltason.
15.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
15.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
15.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 15.3 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
15.3.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 15.4 STAÐREYNDADÓMARAR
15.4.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 14000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Bragi Þór Pálsson | KK | 46 |
2 | Tomas H. Jóhannesson | KK | 30 |
3 | Örn Þ. Kjærnested | KK | 27 |
4 | Gunnlaugur Jónasson | KK | 23 |
5 | Alexander Lexi Kárason | KK | 18 |
6 | Stefán Sölvason | KK | 10 |