Kvartmíluklúbburinn heldur 2. umferð Íslandsmóts í spyrnu 2023 á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 3. júní 2023.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Bílar
T flokkur
* Kvartmíla
T/G 13,90 Full tree
T/F 12,90 Full tree
T/E 11,90 Full tree
T/D 10,90 Full tree
T/C 9,90 Full tree
T/B 8,90 Full tree
T/A Index Full tree
* Áttungsmíla
DS flokkur Pro tree
OF flokkur Index Full tree
Mótorhjól
* Kvartmíla
Götuhjól undir 700cc (G-) Full tree
Götuhjól yfir 700cc (G+) Full tree
Breytt götuhjól (B) Full tree
Opinn flokkur (O) Full tree
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:15 Tímataka
13:30 Tímatöku lýkur
14:00 Keppni
16:15 Lokaúrslit birt
KK
Viðburðarstjóri: Ingimundur Helgason
Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson
Dómnefnd 1: Ásta Andrésdóttir
Dómnefnd 2: Sigurjón Andersen
3. júní 2023 kl: 11:15
Kvartmílubrautin
Lýsing:
Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði
Spyrna
Íslandsmeistaramót - 2. umferð
Skráning hefst: 14. maí 2023 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 31. maí 2023 kl: 23:00
*DS flokkur áttungsmíla
*OF flokkur áttungsmíla
MSÍ Breytt götuhjól (B)
MSÍ Götuhjól undir 700cc (G-)
MSÍ Götuhjól yfir 700cc (G+)
MSÍ Opinn flokkur (0)
T/C 9,90 / 6,30
T/D 10,90 / 6,90
T/E 11,90 / 7,50
T/F 12,90 / 8,10
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Hg42F
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
SÉRREGLUR
Íslandsmót í spyrnu 2023 - 2. umferð
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í spyrnu 2023.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 3. júní 2023 kl: 11:15.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 15 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson og Baldvin Hansson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.
4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 402 metra (1320 fet) löng í kvartmílu.
4.1.3.b 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i T/G
5.1.1.a.ii T/F
5.1.1.a.iii T/E
5.1.1.a.iv T/D
5.1.1.a.v T/C
5.1.1.a.vi T/B
5.1.1.a.vii T/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur
5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i Götuhjól undir 700cc (G-)
5.1.1.b.ii Götuhjól yfir 700cc (G+)
5.1.1.b.iii Breytt götuhjól (B)
5.1.1.b.iv Opinn flokkur (O)
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.
6.4 Skáningu lýkur 31. maí kl. 23:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald er kr. 16.000 .
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum nema OF og DS en þar er notast við hreinan útslátt.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Hg42F
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Ásta Andrésdóttir og Sigurjón Andersen.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 14000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Finnbjörn Kristjánsson | KK | 115 |
2 | Hlynur Árnason | KK | 96 |
3 | Leifur Rósinbergsson | KK | 74 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Valur Jóhann Vífilsson | KK | 116 |
2 | Örn Ingólfsson | KK | 95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Davið Þór Einarsson | KK | 116 |
2 | Ólafur Ragnar Ólafsson | KK | 95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingi Óþekktarormur Sigurðsson | KK | 116 |
2 | Snorri Þórarinsson | BA | 95 |
3 | Heiða Bjarna | KK | 74 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hrannar Ingi Óttarsson | BA | 116 |
2 | Ólafur Ragnar Ólafsson | KK | 95 |
3 | Sigmar Hafsteinn Lárusson | KK | 74 |
4 | Ingolfur Snorrason | KK | 73 |
5 | Paulius Aleksandravicius | KK | 52 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingolfur Snorrason | KK | 114 |
2 | Johann Levi johannsson | KK | 95 |
3 | Sigmar Hafsteinn Lárusson | KK | 76 |
4 | Gunnlaugur Jónasson | KK | 73 |
5 | Hrafnhildur Steindórsdóttir | KK | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Harry Samúel Herlufsen | KK | 115 |
2 | Hilmar Jacobsen | KK | 96 |
3 | Ottó Páll Arnarson | BA | 79 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sigurður Ólafsson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Haukur Baldvinsson | KK | 116 |
2 | Eyþór Ingólfsson Melsteð | KK | 95 |
3 | Björn Viðar Björnsson | KK | 79 |
4 | Sindri Snær Hafsteinsson | KK | 68 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sigurjón Markús Jóhannsson | KK | 116 |
2 | Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke | BA | 93 |
3 | Halldór Helgi Ingólfsson | KK | 77 |
4 |
Arnkell Ragnar Ragnarsson
Aðst: Ragnar S. Ragnarsson |
BA BA |
70 |
5 | Jakob Már Jónharðsson | KK | 59 |
6 | Sirin Kongsanan | KK | 56 |
7 | Þröstur Valsson | KK | 0 |