Bikarmót í Rallycrossi er haldið á Bíladögum, þann 15. Júní 2023
Skráningu lýkur 13.júní klukkan 15:00
Skráningargjald : 12.000 kr án akís gjalds
Unglingar : 6.000kr án akís gjalds
Við skráningu í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: unglingar
Athugið að eingöngu keppendur í unglingaflokk geta nýtt sér þennan kóða
*************************************ATH kynnið ykkur sérreglur ásamt rallycrossreglum ********************************************************************************
** Minni á að keppendur kynni sér vel reglur um öryggisbúnað**
Minni líka keppendur á þessa reglu í sérreglunum:
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er pitturinn
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur, ökumenn mega ganga frá bílum á kerrur, skipta um dekk en ekki eiga neitt við bílana að öðru leiti.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pitt.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið. – Brjóti keppandi Parc Fermé reglur getur hann fengið refsingu
4.3.4 Viðgerðir aðrar en að skipta út sprungnu dekki eru ekki heimilar í Parc Fermé.
Ekki má fylla á eldsneyti
7:30 Svæðið opnar
8:00 Mætingarfrestur liðinn - ATH mæting seinna gæti leitt til refsingar.
8:00 Skoðun hefst
10:00 Tímatökur hefjast
11:45 Tímatökum lýkur
Fundur með keppendum eftir tímatöku
12:00 Starfsmannafundur
13:00 Keppni hefst
Hlé í 15-20 min fyrir úrslitariðil
Keyrðir verða 2 umferðir og svo úrslit
Úrslitariðlar keyrðir
Áætluð Úrslit ca. kl 17:00
Kærufrestur er 30. mín eftir að keppni lýkur.
BA
Viðburðarstjóri: Valdimar G Valdimarsson
Öryggisfulltrúi: Jónas Freyr Sigurbjörnsson
Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson
Formaður dómnefndar: Gunnar Bjarnason
Dómnefnd 1: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 2: Jón Rúnar Rafnsson
15. júní 2023 kl: 13:00
Rallycrossbraut BA
Lýsing:
Rallycross
Skráning hefst: 1. júní 2023 kl: 23:37
Skráningu lýkur: 13. júní 2023 kl: 15:00
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Breyttur mætingar tími á morgun í stað 07:30 er mæting fyrir kl. 09:00 í pitt
En hliðið opnar 08:30
Vegna dræmrar þátttöku höfum við ákveðið að keyrð verða 3 hít og svo úrslit
Breyting verður á keppnisstjóra skráður er Sverrir Snær Ingimarsson en í stað hans kemur Þórainn Hrafn Skúlason a.k.a.Tóti
Stefnt er að því að hafa æfingu fyrir þá sem hafa aldrei keyrt brautina áður. Um klukkan 21
Það stendur í sérreglunum að
Unglingaflokkur:
0 – 1600ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.
En á að vera samkv reglum 0-1050ccm
SÉRREGLUR Bíladaga Rallycross Bikarmót
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Bíladaga Rallycross.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Rallycrossbraut BA
, þann 15. júní 2023 kl: 13:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsveg 13
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Hrefna Waage, Jónas Freyr Sigurbjörnsson
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í BA
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður Réttsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 850 metra löng
GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 2023-06-13 15:00:00.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000 (unglingaflokkur greiðir 6000) og felur það í sér:
5.6.a þátttökurétt í keppninni;
5.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR
8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
8.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3000kr, pr. keppni
8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
8.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur Kl:10:30 Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 13:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 11.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður staðsett á gám við stjórnstöð. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
11.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.b Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 13 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Gunnar Bjarnason, sem jafnframt er formaður hennar, Einar Gunnlaugsson og Jón Rúnar Rafnsson
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Sverrir Snær Ingimarsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jónas Freyr Sigurbjörnsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Standard 1000 flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 1050ccm, hámarksþyngd 1300kg.
1400 FLOKKUR
Ökutæki með drif á einum öxli, slagrými vélar undir 1450 rúmsentimetrum og hámark 100 hestöfl
2000ccm flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 2080ccm, hámarksþyngd 1300kg.
4wd non turbo
Fjórhjóladrifsbílar undir 1300kg, vélarstærð hámark 2500ccm.
Opinn flokkur:
Ökutæki 0 – 1400 kg, á ráslínu með ökumanni, sérsmíðuð farartæki, allt leyfilegt svo framarlega sem það stenst öryggiskröfur. Með möguleika á skiptingu við miðju.
Unglingaflokkur:
0 – 1600ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 12000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 0 |
2 | Magnús Óskarsson | AÍH | 0 |
3 | Hilmar B Þràinsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Vikar Karl Sigurjónsson | AÍFS | 0 |
2 | Brynjar Schiöth | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Þór Þormar Pálsson | BA | 0 |
2 | Birgir Kristjánsson | AÍH | 0 |
3 |
Svavar Skúli Stefánsson
Aðst: Kristófer Fannar Axelsson |
BA AÍH |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Valdimar Jón Sveinsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Snæþór Ingi Jósepsson | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍH | 0 |
2 | Adam Máni Valdimarsson | AÍH | 0 |
3 | Björn Vignir Ingason | TK | 0 |
4 | Karítas Birgisdóttir | AÍH | 0 |
5 | Sigurgeir Guðmundur Elvarsson | START | 0 |
6 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 0 |
7 | Óliver Aron Magnússon | AÍH | 0 |
8 | Halldór Ólafsson | AÍH | 0 |
9 | Helena Ósk Elvarsdóttir | AÍH | 0 |
10 | Bergrún Fönn Alexandersdóttir | AÍH | 0 |
11 | Skúli Helgason | AÍH | 0 |
12 | Óskar Þór Baldursson | BA | 0 |
13 | Natan Nick Sverrisson | BA | 0 |