Íslandsmót í spyrnu 2023

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: ingimundur@shelby.is

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur 3. umferð Íslandsmóts í spyrnu 2023 á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. júlí 2023.
Um er að ræða framhald á keppni sem hófst 1. júlí 2023 en var frestað vegna veðurs. Keppninni hafði einnig verið frestað frá 24. júní 2023.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
T flokkur
* Kvartmíla
 T/G 13,90 Full tree
 T/F 12,90 Full tree
 T/E 11,90 Full tree
 T/D 10,90 Full tree
 T/C 9,90 Full tree
 T/B 8,90 Full tree
 T/A Index Full tree
* Áttungsmíla
DS flokkur Pro tree
OF flokkur Index Full tree

Mótorhjól 
* Kvartmíla
Götuhjól undir 700cc (G-) Full tree
Götuhjól yfir 700cc (G+) Full tree
Breytt götuhjól (B) Full tree
Opinn flokkur (O) Full tree 

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:00 Skoðun lýkur
10:30 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:30 Tímatöku lýkur
13:00 Útsláttarkeppni
15:30 Lokaúrslit birt

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Ingimundur Helgason

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Valgeir Hugberg Geirmundsson

Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson

Dómnefnd 1: Ásta Andrésdóttir

Dómnefnd 2: Sigurjón Andersen

Dagsetningar

29. júlí 2023 kl: 11:00

Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin
Lýsing:

Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði

Tegund/mótaröð

Spyrna

Íslandsmeistaramót - 3. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 4. júní 2023 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 29. júní 2023 kl: 23:00

Flokkar

*DS flokkur áttungsmíla

*OF flokkur áttungsmíla

MSÍ Breytt götuhjól (B)

MSÍ Götuhjól undir 700cc (G-)

MSÍ Götuhjól yfir 700cc (G+)

MSÍ Opinn flokkur (0)

T/A index

T/B 8,90 / 5,70

T/C 9,90 / 6,30

T/D 10,90 / 6,90

T/E 11,90 / 7,50

T/F 12,90 / 8,10

T/G 13,90 / 8,70

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra keppenda og starfsmanna

#1 - 23. júní 2023 kl: 12:32
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Wy98J
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR
Íslandsmót í spyrnu 2023 - 3. umferð

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í spyrnu 2023.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 24. júní 2023 kl: 11:15.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 15 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson og Baldvin Hansson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 402 metra (1320 fet) löng í kvartmílu.
4.1.3.b 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i T/G
5.1.1.a.ii T/F
5.1.1.a.iii T/E
5.1.1.a.iv T/D
5.1.1.a.v T/C
5.1.1.a.vi T/B
5.1.1.a.vii T/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i Götuhjól undir 700cc (G-)
5.1.1.b.ii Götuhjól yfir 700cc (G+)
5.1.1.b.iii Breytt götuhjól (B)
5.1.1.b.iv Opinn flokkur (O)

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 21. júní kl. 23:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 16.000 .

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum nema OF og DS en þar er notast við hreinan útslátt.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Wy98J

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Ásta Andrésdóttir og Sigurjón Andersen.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.

14.2.2 Skoðunarmaður er Valgeir Hugborg Geirmundsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

 

Úrslit

*DS flokkur áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hlynur Árnason KK Camaro 1968 116
2 Guðmundur Þór Jóhannsson KK Nissan 200sx 95
3 Finnbjörn Kristjánsson KK Volvo PV 79
4 Stefán Kristjánsson KK Vauxhall Victor 10
5 Leifur Rósinbergsson KK Chevy Pinto 0

*OF flokkur áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Valur Jóhann Vífilsson KK Dragster 10
2 Örn Ingólfsson KK BATMAN 0

MSÍ Breytt götuhjól (B)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Davið Þór Einarsson KK Suzuki Hayabusa 10
2 Hrannar Ingi Óttarsson BA Kawasaki ZX 10-R 10

MSÍ Götuhjól undir 700cc (G-)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ingi Óþekktarormur Sigurðsson KK Yamaha 116
2 Snorri Þórarinsson BA Mótorhjól 94
3 Heiða Bjarna KK Honda CBR600 75

MSÍ Götuhjól yfir 700cc (G+)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hrannar Ingi Óttarsson BA Kawasaki ZX 10-R 116
2 Ólafur Ragnar Ólafsson KK Suzuki Gsxr1000 95
3 Sigmar Hafsteinn Lárusson KK BMW S1000rr 74
4 Paulius Aleksandravicius KK Mótorhjól 72
5 Ingolfur Snorrason KK Suzuki GSXR 1000 53
6 Einar Aron Þórðarson KK Kawasaki z1000 10
7 Tryggvi Snær Friðjónsson BA Suzuki GSXR1000 10
8 Davið Þór Einarsson KK Suzuki 10

MSÍ Opinn flokkur (0)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Johann Levi johannsson KK Suzuki Gsxr 600R 115
2 Ingolfur Snorrason KK Yamaha R6 96
3 Gunnlaugur Jónasson KK HONDA CBR600RR 10
4 Hrafnhildur Steindórsdóttir KK Suzuki GSXR 750 10

T/A index

T/B 8,90 / 5,70

T/C 9,90 / 6,30

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hilmar Jacobsen KK Mustang Saleen 115
2 Harry Samúel Herlufsen KK 96
3 Sigurður Ólafsson KK Mustang GT 78
4 Ottó Páll Arnarson BA Chevrolet Vega 69
5 Sævar Páll Stefánsson BA Mercury Comet GT 10

T/D 10,90 / 6,90

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurður Ólafsson KK Mustang GT 10

T/E 11,90 / 7,50

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Eyþór Ingólfsson Melsteð KK Jeep grand cherokee srt8 114
2 Sindri Snær Hafsteinsson KK Mazda MX5 95
3 Haukur Baldvinsson KK Toyota Supra 78
4 Björn Viðar Björnsson KK Camaro 71

T/F 12,90 / 8,10

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Heiðar Arnberg Jónsson KK Mustang GT 114
2 Sirin Kongsanan KK Honda civic type r 93
3 Sigurjón Markús Jóhannsson KK Grand Cherokee srt8 81
4 Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke BA Pontiac firebird 70
5 Haraldur Brattaberg Ingólfsson KK 57
6 Benedikt Bergmann Svavarsson KK Chevrolet Camaro z/28 55
7 Arnkell Ragnar Ragnarsson BA 1974 Plymouth Duster 46
8 Halldór Helgi Ingólfsson KK Dodge Challanger 0
9 Þröstur Valsson KK Neon srt4 0

T/G 13,90 / 8,70