Kvartmíluklúbburinn heldur bikarmót í áttungsmílu á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. júlí 2023.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppnisfyrirkomulag
Áttungsmíla, ræst með mismun á kennitíma, Full Tree ljós
Raðað er upp í eitt útsláttartré í hverjum flokki eftir besta tíma í einni tímtölkuferð í byrjun keppni.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
BÍLAR - stór dekk (28" og stærri)
RÆST MEÐ MISMUN Á KENNITÍMA
FULL TREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. BESTA TÍMA
BÍLAR - minni dekk (27,99" og minni)
RÆST MEÐ MISMUN Á KENNITÍMA
FULL TREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. BESTA TÍMA
MÓTORHJÓL
RÆST MEÐ MISMUN Á KENNITÍMA
FULL TREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. BESTA TÍMA
Veitt verða bikarverðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
14:30 Mæting keppenda
14:30 Skoðun hefst
14:30 Pittur lokar
15:00 Skoðun lýkur
15:00 Keppendafundur
15:30 Tímataka
16:00 Tímatöku lýkur
16:15 Útsláttarkeppni
18:00 Lokaúrslit birt
KK
Viðburðarstjóri: Ingimundur Helgason
Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson
Dómnefnd 1: Ásta Andrésdóttir
Dómnefnd 2: Sigurjón Andersen
29. júlí 2023 kl: 15:30
Kvartmílubrautin 1/8 míla
Lýsing: 1/8 míla
Áttungsmíla
Skráning hefst: 14. júlí 2023 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 26. júlí 2023 kl: 23:00
BRACKET bílar minni dekk
BRACKET bílar stór dekk
BRACKET mótorhjól
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir BRACKET bikarmót í spyrnu.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. júlí 2023 kl: 15:30.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 16 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 4 skráningar berist fyrir hann.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson og Baldvin Hansson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.
4.1.3 Brautin er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i Bílar með dekk 27,99“ og minni
5.1.1.a.ii Bílar með dekk 28,00“ og stærri
5.1.1.b Mótorhjól
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skáningu lýkur 26. júlí kl. 23:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald er kr. 7.000 .
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum
9.2.1.a í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.1.b í framrúðu að ofanverðu horni farþegamegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Útsláttarkeppni klukkan 16:15. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.3 Uppröðun að lokinni einni tímtökuferð er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum. Raðað er í útsláttartré skv. besta tíma í tímatökuferð.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Ásta Andrésdóttir og Sigurjón Andersen.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 5000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnkell Ragnar Ragnarsson | BA | 0 |
2 | Benedikt Bergmann Svavarsson | KK | 0 |
3 | Björn Viðar Björnsson | KK | 0 |
4 | Eyþór Ingólfsson Melsteð | KK | 0 |
5 | Halldór Helgi Ingólfsson | KK | 0 |
6 | Haraldur Brattaberg Ingólfsson | KK | 0 |
7 | Harry Samúel Herlufsen | KK | 0 |
8 | Haukur Baldvinsson | KK | 0 |
9 | Heiðar Arnberg Jónsson | KK | 0 |
10 | Hilmar Jacobsen | KK | 0 |
11 | Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke | BA | 0 |
12 | Sigurður Ólafsson | KK | 0 |
13 | Sigurjón Markús Jóhannsson | KK | 0 |
14 | Sindri Snær Hafsteinsson | KK | 0 |
15 | Sirin Kongsanan | KK | 0 |
16 | Þröstur Valsson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Guðmundur Þór Jóhannsson | KK | 0 |
2 | Hlynur Árnason | KK | 0 |
3 | Leifur Rósinbergsson | KK | 0 |
4 | Ottó Páll Arnarson | BA | 0 |
5 | Stefán Kristjánsson | KK | 0 |
6 | Valur Jóhann Vífilsson | KK | 0 |
7 | Örn Ingólfsson | KK | 0 |
8 | Finnbjörn Kristjánsson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Heiða Bjarna | KK | 0 |
2 | Davið Þór Einarsson | KK | 0 |
3 | Hrannar Ingi Óttarsson | BA | 0 |
4 | Ingi Óþekktarormur Sigurðsson | KK | 0 |
5 | Ingolfur Snorrason | KK | 0 |
6 | Johann Levi johannsson | KK | 0 |
7 | Ólafur Ragnar Ólafsson | KK | 0 |
8 | Paulius Aleksandravicius | KK | 0 |
9 | Sigmar Hafsteinn Lárusson | KK | 0 |
10 | Snorri Þórarinsson | BA | 0 |
11 | Tryggvi Snær Friðjónsson | BA | 0 |