3. umferð Íslandsmóts í drifti 2023
Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur 3. umferð Íslandsmóts í drifti 2023 á Akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni þann 28.júlí og 29. júlí 2023.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Ökumenn mega hafa að hámarki 2 aðstoðarmenn með hverju keppnistæki.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
DAGSKRÁ
Föstudagur 28.júlí
19:00 Pittur opnar / mæting keppenda
19:15 Skoðun hefst
19:45 Æfing hefst
20:00 Pittur lokar
20:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 29.júlí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
15:30 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
SKIPULEGGJANDI
Viðburðarstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Arnar Ísfeld
Skoðunarmaður: Arnar Ísfeld
Formaður dómnefndar: Hanna Rún Ragnarsdóttir
Dómnefnd 1: Bragi Örn Hilmarsson
Dómnefnd 2: Atli Jóhann Einarsson
DAGSETNINGAR
Föstudagur 28.júlí // 19:00 - 22:00
Laugardagur 29.júlí // 08:00 - 15:00
BRAUTIR OG VEGALENGDIR
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: Malbikuð braut AÍH, 850m
TEGUND / MÓTARÖÐ
Drift /// Íslandsmeistaramót 3. umferð
SKRÁNINGARGJÖLD
Skráning hefst: 19.júlí 2023 kl: 12:00
Almennt gjald frá 19.júlí 2023: 15.000 kr.-
Skráningu lýkur: 26. júlí 2023 kl: 23:59
FLOKKAR
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
Föstudagur 28.júlí
19:00 Pittur opnar / mæting keppenda
19:15 Skoðun hefst
19:45 Æfing hefst
20:00 Pittur lokar
20:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 29.júlí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
15:30 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
AÍH
Viðburðarstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Arnar Ísfeld
Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson
Formaður dómnefndar: Hanna Ragnarsdóttir
Dómnefnd 1: Bragi Örn Hilmarsson
Dómnefnd 2: Atli Jóhann Einarsson
Frá: 28. júlí 2023 kl: 19:00
Til: 29. júlí 2023 kl: 15:30
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Drift
Íslandsmeistaramót - 3.umferð
Skráning hefst: 19. júlí 2023 kl: 12:00
Skráningu lýkur: 26. júlí 2023 kl: 23:59
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
Smellið hér fyrir upplýsingartöflu á google docs / click here for information table on google docs
SÉRREGLUR Íslandsmót í Drifti 2023 - 3.umferð í mótröð Íslandsmeistaramót - 3.umferð
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í Drifti 2023 - 3.umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH
850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
þann 28. júlí 2023 kl: 19:00 til 29. júlí 2023 kl: 15:30.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, til heimilis að Kapelluhrauni.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jökull Ýmir Guðmundsson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsheimili AÍH
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður malbiksbraut AÍH.
4.1.3 Leiðin er um það bil 500 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið. Ef að ökutæki þarf nauðsynlega að yfirgefa svæðið fyrir þann tíma þá skal ökumaður, keppnisstjóri og dómnefnd semja um það.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
.
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2023-07-26 23:59:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 14000
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Föstudagur 28.júlí
19:00 Pittur opnar / mæting keppenda
19:15 Skoðun hefst
19:45 Æfing hefst
20:00 Pittur lokar
20:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 29.júlí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
15:30 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2020.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Minni götubílar, Götubílar og Opinn flokkur.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/404.
og/eða á slóðinni: https://docs.google.com/document/d/1mzZqtKhMu_LORatr197Dm9zEIEnhR4HbIe5ovgbqx_M/edit?usp=sharing
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Hanna Ragnarsdóttir, sem jafnframt er formaður hennar, Bragi Örn Hilmarsson og Atli Jóhann Einarsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldor Hjaltsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Arnar Ísfeld.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 14000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gunnar Yngvi Rúnarsson | AÍH | 112 |
2 | Hubert Dorozinski | AÍH | 103 |
3 | Sigmar Freyr Halldórsson | AÍH | 88 |
4 | Ingólfur Þór Ævarsson | AÍH | 77 |
5 | Jóhann Egilsson | KK | 67 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Júlían Aðils Kemp | AÍH | 108 |
2 | Stefán Snær Jónsson | AÍH | 98 |
3 |
Aron ingi elsuson
Aðst: Tomasz Dorozinski |
AÍH AÍH |
93 |
4 |
Damian Suplicki
Aðst: Tomasz suplicki |
AÍH AÍH |
81 |
5 | Tjörvi Arnarsson | AÍH | 67 |
6 | Inigo Prieto Nafarrate | AÍH | 67 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Fabian Dorozinski | AÍH | 115 |
2 | Sindri Már Ingimarsson | AÍH | 94 |
3 | Aron Freyr Gíslason | KK | 88 |
4 | Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | 81 |
5 | Hafliði Harðarson | AÍH | 69 |
6 | Árni Freyr Gunnarsson | AÍH | 66 |
7 | Stefán Þór Gunnarsson | AÍH | 66 |