Bílaklúbbur Akureyrar heldur Greifa torfæruna - 5. umferð Íslandsmóts í torfæru 2023 á torfærusvæði Bílaklúbbsins þann 19. ágúst 2023.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Sérútbúnir bílar
Sérútbúnir götubílar
Götubílar
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum auk Best in show
.
Mæting Keppenda kl. 7:30
Skoðun hefst kl. 7:30
Pittur lokar kl. 9:00
Skoðun Lýkur kl 10:00 ( vera mættir við stjórnstöð)
Keppendafundur og brautarskoðun kl. 10:05
Keppni hefst kl. 11:00
2 brautir keyrðar.
Matarhlé í 30 mín.
Keppni hefst á ný og keyrðar eru 4 brautir
Áætluð keppnislok kl. 16:30
Kærufrestur hefst við keppnislok og stendur í 30 mín.
Verðlauna afhending að kærufresti loknum.
BA
Viðburðarstjóri: Valdimar G Valdimarsson
Öryggisfulltrúi: Garðar Sigurðsson
Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson
Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson
Dómnefnd 1: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 2: Jón Rúnar Rafnsson
19. ágúst 2023 kl: 11:00
Torfærusvæði BA
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót - 5. umferð
Skráning hefst: 1. ágúst 2023 kl: 08:00
Skráningu lýkur: 16. ágúst 2023 kl: 23:59
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
Yfirdómari er Jóhann Björgvinsson
staðreyndardómari 2 er Gunnar Gunnarsson
staðreyndardómari 3 er Guðni Jónsson
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: https://nn.is/o4M8P
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
1.1 Keppnin heitir Greifa torfæran 5. umferð.
1.2 Keppt er í Torfæru eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæra.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæra og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram í Torfærusvæði BA
þann 19. ágúst 2023 kl: 11:00.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsveg 13 603 Akureyri.
2.2 Keppnishaldari né starfsmenn taka ekki ábyrgð á öryggisbúnaði keppenda.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Valdimar Geir Valdimarsson, Einar Gunnlaugsson og Hrefna Björnsdóttir
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í klúbbshúsi BA Hlíðarfjallsveg 13 603 Akureyri
4.1.1 Brautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautir eru 6 í hverjum flokki, samtal um það bil 70 - 800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PARC FERMÉ
4.2.1 Parc Fermé er staðsett í pittsvæði, viðgerðir eru leyfðar sem og aðgangur þeirra sem aðgang hafa að pitti.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit séu birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 2023-08-16 23:59:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 10000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
6.7 Keppnisgjald fyrir 18 ára og yngri er kr. 10000.
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Mæting Keppenda kl. 7:30
Skoðun hefst kl. 7:30
Pittur lokar kl. 9:00
Skoðun Lýkur kl 10:00
Keppendafundur og brautarskoðun kl. 10:00
Keppni hefst kl. 11:00
2 brautir keyrðar.
Matarhlé í 30 mín.
Keppni hefst á ný og keyrðar eru 4 brautir
Áætluð keppnislok kl. 16:30
Kærufrestur hefst við keppnislok og stendur í 30 mín.
Verðlauna afhending að kærufresti loknum.
GREIN 9.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
9.3.1 Keppnisstjóri eða staðgengill hans dregur handahófskennt í rásröð fyrstu brautar.
9.3.2.a Keppendur sem ræsa fremstir í fyrstu þraut fara afturfyrir í þeirri næstu og svo framvegis með það að markmiði að allir keppendur ræsi framarlega í lágmark 1 þraut.
9.3.2.b Fjöldi keppenda sem fara afturfyrir ræðst af heildar fjölda keppenda í keppninni.
9.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
10.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
10.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum, https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/407. Slóð á upplýsingatöfluna verður birt á keppendafundi. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
10.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um Torfæra.
11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
13.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Einar Gunnlaugsson og Jón Rúnar Rafnsson.
13.2.1 Keppnisstjóri er Valdimar G Valdimarsson.
13.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Garðar Sigurðsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að Sjúkrabíll verður á staðnum til að aðstoða keppendur, starfsfólk og áhorfendur.
13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
13.2.6 Tengiliður keppenda verður Hrefna Björnsdóttir. Hún er tengiliður milli ökumanns / liðsstjóra og keppnisstjóra / dómnefndar. Öll mál sem koma til hennar verður farið yfir hvort sem það er á meðan keppni stendur eða að lokinni keppni. Verður metið jafnóðum. Og viðkomandi verður látin vita með niðurstöðuna.
13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 10000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingvar Jóhannesson | TK | 20 |
2 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 17 |
3 |
Páll Jónsson
Aðst: Óskar Ólafur Björnsson |
TK TK |
15 |
4 | Geir Evert Grìmsson | TK | 12 |
5 | Andri Már Sveinsson | TK | 10 |
6 |
Þór Þormar Pálsson
Aðst: Kristófer Daníelsson |
BA BA |
8 |
7 |
Atli Jamil Ásgeirsson
Aðst: Andri Jamil Ásgeirsson |
BA BA |
6 |
8 |
Finnur Aðalbjörnsson
Aðst: Hrannar Örn Sigursteinsson |
BA BA |
4 |
9 | Guðlaugur Sindri Helgason | START | 2 |
10 | Bjarnþór Elíasson | START | 1 |
11 | Þorvaldur Björn Matthíasson | TK | 0 |
12 |
Elva Stefáns
Aðst: Elfar Harðarsson |
TK TK |
0 |
13 |
Grimur Helguson
Aðst: Kristjan Finnur Sæmundsson |
TK TK |
0 |
14 | Jónas Karl Sigurðsson | BA | 0 |
15 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 0 |
16 | Fjölnir Guðmannsson | BA | 0 |
17 |
Helgi Heiðar Jóhannesson
Aðst: Jónas Freyr Sigurbjörnsson |
BA BA |
0 |
18 |
Daniel ingi Danielsson
Aðst: Daníel G. Ingimundarson |
TK TK |
0 |
19 | Sævar Benónýsson | TK | 0 |
20 | Ingi Már Björnsson | TK | 0 |
21 | Davíð Logi Hlynsson | START | 0 |
22 | Þórður Atli Guðnýjarson | AÍNH | 0 |
23 |
Pétur viðarsson
Aðst: Andri dagur stefánsson |
START START |
0 |