Kvartmíluklúbburinn heldur 3. umferð Íslandsmóts í sandspyrnu 2023 á sandspyrnubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 16. september 2023.
Bílalúbbur Akureyrar heldur 3. umferð Íslandsmóts í sandspyrnu 2023 á sandspyrnubraut BA þann 23. september 2023.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Bílar
Fólksbílar (F)
Útbúnir fólsbílar (ÚF)
Buggybílar (B)
Jeppar (J)
Útbúnir jeppar (ÚJ)
Sérsmíðuð ökutæki (S)
Opinn flokkur (O)
Mótorhjól
Unglingaflokkur (MU)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1. og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Keppt verður líka í yngri unglingflokk 85cc og undir. Ekki er hægt að gefa stig til íslandsmeistara að svo stöddu. En unnið verður í því í vetur að koma þessum flokk inn í kerfið. Skráningar í þann flokk má senda á info@ba.is með nafni og kennitölu.
Og þessi flokkur verður keyrður með unglingaflokknum
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:00 svæðið opnar
09:30 Mæting keppenda
09:35 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:15 Tímataka
12:30 Tímatöku lýkur
13:00 Keppni
14:30 Lokaúrslit birt
BA
Viðburðarstjóri: Jóna Phuong Thuy Jakobsdóttir
Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Jón Rúnar Rafnsson
Dómnefnd 2: Brynjar Schiöth
23. september 2023 kl: 11:15
Sandspyrnubraut BA
Lýsing: 91,44 m
Sandspyrna
Íslandsmeistaramót - 3. umferð
Skráning hefst: 22. ágúst 2023 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 20. september 2023 kl: 23:59
Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-Vélsleðar (V)
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar
Mjög gott væri ef að hver og einn flokkur gætu verið saman. Myndi auðvelda pittstjóra og öðrum starfsmönnum keppninnar verulega mikið.
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Pg6f7
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í sandspyrnu 2023 - 3. umferð
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut KK þann 16. september 2023 kl: 11:15.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Baldvin Hansson og Ingólfur Arnarson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsaðstöðu Kvartmíluklúbbsins við Álfhellu.
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.
4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Buggybílar
5.1.1.b Fólksbílar
5.1.1.c Útbúnir fólksbílar
5.1.1.d Jeppar
5.1.1.e Útbúnir jeppar
5.1.1.f Sérsmíðuð ökutæki
5.1.1.g Opinn flokkur bíla
5.1.1.h MSÍ-Fjórhjól (FJ)
5.1.1.i MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
5.1.1.j MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
5.1.1.k MSÍ-unglingaflokkur (MU)
5.1.1.l MSÍ-Vélsleðar (V)
5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.
5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum http://mot.akis.is/keppni/416.
6.4 Skráningu lýkur þann 13. september 2022 kl. 23:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Skráningargjald er kr. 9.000 en hækkar í kr. 16.000 10. september 2023 kl. 23:00.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Ásta Andrésdóttir og Sigurjón Andersen.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 7000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sævar Páll Stefánsson | BA | 116 |
2 | Eyvindur Johannsson | BA | 95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Sverrir Yngvi Karlsson
Aðst: Karl óskar Geirsson |
BA BA |
115 |
2 | Ómar Friðriksson | BA | 96 |
3 | Ásdís Kristrún Melsted | BA | 79 |
4 | Gunnar Helgi Steindórsson | BA | 68 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Haukur Örn Halldorsson | BA | 116 |
2 | Eva Dís Halldórsdóttir | BA | 95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ármann Örn Sigursteinsson | BA | 116 |
2 | Páll Jónsson | TK | 92 |
3 | Einar Geirsson | BA | 76 |
4 | Kjartan tryggvason | BA | 68 |
5 | Tómas Karl Sigurðarson | BA | 59 |
6 | Andri Freyr Jonsson | BA | 55 |
7 | Kristján Baldur Valdimarsson | BA | 50 |
8 | Almar Valdimarsson | BA | 44 |
9 | Ásmundur Stefánsson | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Davið Þór Einarsson | KK | 116 |
2 | Kristján Baldur Valdimarsson | BA | 95 |
3 | Andri Freyr Jonsson | BA | 79 |
4 | Kjartan tryggvason | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Tómas Karl Sigurðarson | BA | 115 |
2 | Daniel Orri sigurðarson | BA | 96 |
3 | Heimir Sigurpall Árnason | BA | 79 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gauti Moller | BA | 115 |
2 | Kristján Skjóldal | BA | 96 |
3 | Ármann Örn Sigursteinsson | BA | 77 |
4 | Kristófer Daníelsson | BA | 68 |
5 | Einar Geirsson | BA | 59 |
6 | Ásmundur Stefánsson | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Kristófer Daníelsson | BA | 116 |
2 | Ómar Friðriksson | BA | 95 |
3 | Ingimar Skjóldal | BA | 79 |