Bílaklúbbur Akureyrar heldur Dirft Bíladaga 2024
- Íslandsmót í drifti 2024 2. umferð á Driftbraut BA þann 14. júní 2024.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir.
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
9:45 Æfingar
11:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
14:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
17:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
BA
Viðburðarstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Brynjar Schiöth
Dómnefnd 2: Jóhann Tryggvi Unnsteinsson
Framkvæmdanefnd:
Einar Gunnlaugsson, Jökull Ýmir Guðmundsson, Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
14. júní 2024 kl: 14:00
Driftbraut BA
Lýsing:
Drift
Íslandsmeistaramót - 2. umferð
Skráning hefst: 1. júní 2024 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 12. júní 2024 kl: 17:00
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
Upplýsingatafla keppninnar verður aðgengilega á þessari slóð: https://docs.google.com/document/d/1PljTKeLSqiSeOD7p2jYktlJCXeV8OfhHiJ9dZvcKQc4/edit?usp=sharing
SÉRREGLUR Drift Bíladaga 2024
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Drift Bíladaga 2024 / Íslandsmót í drifti 2024 - 2. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Driftbraut BA 14. júní 2024.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13, Akureyri.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Jökull Ýmir Guðmundsson, Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsaðstöðu BA að Hlíðarfjallsvegi 13, Akureyri.i.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 LEIÐIN
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður skv. leiðarlýsingu sem kynnt verður á keppnisdegi.
4.1.3 Leiðin er um það bil 800 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 12. júní 2024 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Skráningargjald er kr. 15.000.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
09:45 Æfing
11:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
14:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Opinn flokkur, Götubílar og Minni götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/446 .
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
11.5.3 Keppandi/ökumaður skal óska eftir og fá staðfest viðgerðarhlé hjá keppnis-, pitt- eða brautarstjóra.
11.5.3.a Þegar viðgerðarhlé hefur verið staðfest getur keppandi/ökumaður skoðað og undirbúið viðgerðina en ekki má snerta eða byrja viðgerð á ökutæki fyrr en keppnis-, pitt- eða brautarstjóri heimilar og þá hefjast tímamörk (10 mín.).
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Brynjar Schiöth og Jóhann Tryggvi Unnsteinsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson
14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 13000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gunnar Yngvi Rúnarsson | AÍH | 112 |
2 | Ingólfur Þór Ævarsson | AÍH | 103 |
3 | Þórir Örn Eyjólfsson | BA | 88 |
4 | Björgvin Freyr Leifsson | AÍH | 72 |
5 | Páll Heiðar Hlynsson | AÍH | 69 |
6 | Kristinn Kjartansson | BA | 67 |
7 |
Damian Suplicki
Aðst: Tomasz suplicki |
AÍH AÍH |
66 |
8 | David Gabriel Sepulveda Glascorsson | AÍH | 65 |
9 | Friðrik Þór Pálsson | AÍH | 6 |
10 | Ívar Már Sigurpálsson | AÍH | 5 |
11 | Inigo Prieto Nafarrate | AÍH | 4 |
12 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 4 |
13 | Kristófer Valsteinn Júlíusson | BA | 3 |
14 | Atli Freyr | AÍH | 3 |
15 | Alexander Már Steinarsson | AÍH | 3 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | MARTINS ARVIS KAIMINS | AÍH | 112 |
2 | Adam Máni Valdimarsson | AÍFS | 103 |
3 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍFS | 88 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Fannar Þór Þórhallsson | BA | 112 |
2 | Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | 103 |
3 | Sigmar Freyr Halldórsson | AÍH | 88 |
4 | Hafliði Harðarson | AÍH | 75 |
5 | Aron Freyr Gíslason | KK | 69 |
6 | Emil Örn Kristjánsson | AÍH | 67 |
7 | Sindri Már Ingimarsson | AÍH | 66 |
8 | Jón Þór Hermannsson | AÍH | 0 |
9 | Stefán Snær Jónsson | AÍH | 0 |