BJB Motors kvartmílan 2024

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: ingimundur@shelby.is

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur BJB Motors kvartmíluna sem er 2. og 3. umferð Íslandsmóts í kvartmílu 2024 á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 17. ágúst 2024.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
K flokkur
 K/G 13,90
 K/F 12,90
 K/E 11,90
 K/D 10,90
 K/C 9,90
 K/B 8,90
 K/A 7,90
 K/X
 * Bikarmót DS flokkur 1/8 míla

Mótorhjól  
 MK/E 11,90 
 MK/D 10,90
 MK/C 9,90
 MK/B 8,90
 MK/A 7,90

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:00 Æfingaferðir
2. umferð
13:00 Tímataka
14:00 Útsláttarkeppni
3. umferð
15:30 Tímataka
16:30 Útsláttarkeppni
18:15 Lokaúrslit birt

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Ingimundur Helgason

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson

Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson

Dómnefnd 1: Baldvin Hansson

Dómnefnd 2: Sigurjón Andersen

Framkvæmdanefnd:
Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson, Baldvin Hansson

Dagsetningar

17. ágúst 2024 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin
Lýsing:

Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði

Tegund/mótaröð

Kvartmíla

Íslandsmeistaramót - 2. umferð

Íslandsmeistaramót - 3. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 3. júní 2024 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 14. ágúst 2024 kl: 17:00

Flokkar

Bikarmót KK DS bílar

K/A flokkur (7,90) bílar

K/B flokkur (8,90) bílar

K/C flokkur (9,90) bílar

K/D flokkur (10,90) bílar

K/E flokkur (11,90) bílar

K/F flokkur (12,90) bílar

K/G flokkur (13,90) bílar

K/X flokkur (án tímamarks) bílar

MK/A flokkur (7,90) mótorhjól

MK/E flokkur (11,90) mótorhjól

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra keppenda og starfsmanna

#1 - 3. júní 2024 kl: 02:40
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/s3DEw
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR
BJB Motors kvartmílan

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir BJB Motors - íslandsmót í kvartmílu 2024 2. umferð

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 13. júlí 2024 kl: 14:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 15 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson og Baldvin Hansson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er 402 metra (1320 fet) löng í kvartmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i K/G
5.1.1.a.ii K/F
5.1.1.a.iii K/E
5.1.1.a.iv K/D
5.1.1.a.v K/C
5.1.1.a.vi K/B
5.1.1.a.vii K/A
5.1.1.a.viii K/X

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MK/E
5.1.1.b.ii MK/D
5.1.1.b.iii MK/C
5.1.1.b.iv MK/B
5.1.1.b.
v MK/A

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 10. júlí 2024 kl. 23:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Skráningargjald er kr. 16.000 .

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátttaka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjugilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 16:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/s3DEw

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Baldvin Hansson og Sigurjón Andersen.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.

14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

Bikarmót KK DS bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Leifur Rósinbergsson KK Chevy Pinto 116
2 Guðmundur Þór Jóhannsson KK Nissan 200sx 95

K/A flokkur (7,90) bílar

K/B flokkur (8,90) bílar

K/C flokkur (9,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sveinn Elías Elíasson KK Tesla Model X Plaid 115
2 Hafsteinn Þorvaldsson TK Chervolet Corvette C6 96
3 Hilmar Jacobsen KK Mustang Saleen 79
4 Kristens Brynjar Kristensson START datsun 0

K/D flokkur (10,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurður Ólafsson KK Mustang GT 116
2 Haukur Baldvinsson KK Toyota Supra 95
3 Robert Hjorleifsson KK Dodge Dart 79

K/E flokkur (11,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Breki Blær Rögnvaldsson KK Golf R 114
2 Ísak Sindri Atlason KK Audi RS3 95
3 Björn Viðar Björnsson KK Camaro 81
4 Benedikt Bergmann Svavarsson KK Chevrolet Camaro z/28 67
5 Viktor Tristan Árnason KK Chervolet Malibu 58
6 Sindri Snær Hafsteinsson KK Chevrolet Camaro SS 56
7 Magnús Thomsen KK Corvette 45

K/F flokkur (12,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke BA Pontiac firebird 116
2 Birkir Már Friðriksson KK 95
3 Halldór Páll Victorsson KK Ford mustang 0
4 Sirin Kongsanan KK Honda civic type r 0

K/G flokkur (13,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ágúst Máni Einarsson KK ?? 115
2 Tryggvi Bjarnason KK Bmw 116d 6gíra bsk 96

K/X flokkur (án tímamarks) bílar

MK/A flokkur (7,90) mótorhjól

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Davið Þór Einarsson KK Suzuki Hayabusa 116
2 Björn Sigurbjörnsson AÍFS Suzuki Gsxr 1000 Brock’s 95
3 Ingi Óþekktarormur Sigurðsson KK BMW S1000RR 2023 79
4 Hreinn Pétursson KK 68
5 Ólafur Ragnar Ólafsson KK Suzuki Gsxr1000 0

MK/E flokkur (11,90) mótorhjól

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Björgvin Páll guðnason KK Kawasaki ZX6R 116
2 Hreinn Pétursson KK 95