3.umferð Íslandsmótsins í Rallycross - 20. júlí 2024
Skráningu lýkur 16. júlí klukkan 17:00
Skráningargjald : 20.000 kr án akís gjalds
Unglingar : 9500 kr án akís gjalds
Við skráningu í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: unglingar
Athugið að eingöngu keppendur í unglingaflokk geta nýtt sér þennan kóða
** Minni keppendur á að kynna sér vel reglur um öryggisbúnað**
11.6 Hver sá sem áreitir keppnisstjóra, dómara eða aðra starfsmenn keppninnar eftir að keppni lýkur geta fengið áminningu á þann keppenda sem hann fer fyrir.
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Sverri Snæ sími 7726316 eða sverrir83@gmail.com
Þeir sem eru með séróskir um keppnisnúmer og eru að keppa í fyrsta sinn á þessu ári geta sent á keppnisstjóra ekki seinna en 16 Júlí kl 17:00. Eftir það verða séróskir ekki teknar fyrir.
þegar bíll er tekinn af kerru eða mætir þarf hann að keyra hægan hring til að athuga hvort kubbur virki(mikilvægt að vera búinn að setja kubbinn í ) áður en lagt er í stæði
Skoðun fer fram í stæði, ökumaður gerir sig tilbúinn að fara beint í tímatöku ef bíllinn öðlast skoðun.
Keyrum heat 1 og 2, tökum ca 30 min hlé og svo verða keyrð heat 3 og 4
BA
Viðburðarstjóri: Jóna Phuong Thuy Jakobsdóttir
Öryggisfulltrúi: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson
Formaður dómnefndar: Gunnar Bjarnason
Dómnefnd 1: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 2: Guðmundur Örn Þorsteinsson
Framkvæmdanefnd:
Bílaklúbbur Akureyrar
20. júlí 2024 kl: 11:00
Rallycrossbraut BA
Lýsing:
Rallycross
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 6. júlí 2024 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 16. júlí 2024 kl: 17:00
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000 - Stelpur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Unglingaflokkur - Stelpur
1000 Flokkur
Niðurstaða er komin vegna kæru í rallycrosskeppni á Akureyri 20,07,2024
Bráðabirgða úrslit standa í 1000 flokki þar sem kæra um ólöglega véla tölvubreitingar átti ekki við rök að styðjast, sjá skjal með úrskurði.
Verðlaun verða veitt á næstu keppni sem er á Akureyri.
Hala niður viðhengi
Dómnefnd barst kæra vegna ökutækis í 1000cc flokk, ekki verða veitt verðlaun í þeim flokk, bráðabirgða úrslit standa þangað úrskurður liggur fyrir.
Leiðrétt vegna prentvillu.
Hala niður viðhengi
bíll 684 fær áminningu fyrir að keyra inní hlið bíl 620.
Rangar upplýsingar bárust til dómnefndar, Dómur á bíl 428 tekinn til baka.
1000 flokkur, Heat 2
Bíll 696 keyrir á kyrrstæðan bíl 666, áminning.
Unglingaflokkur B Heat 2:
Bíll 27 fer aftan á bíl 88 í ræsingu, áminning.
Bíll 27 keyrir utan í bíl 70, Áminning.
Bíll 41 er settur neðst fyrir að hafa tekið frammúr á Gulu flaggi og fær stig eftir því.
Speedhive liggur niðri vegna tæknilegra örðuleika erlendis frá. mylaps virkar
Breyting á dómnefnd. Ari Hjaltason kemur í stað Einars Gunnlaugs
Það stendur neðst í sérreglum
Unglingaflokkur:
0 – 1600ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.
En þetta á að vera 0-1050cc
Sverrir Snær og Baldur Pálsson eru skoðunarmenn í stað Helga Garðars
Þórarinn Hrafn Skúlason (Tóti) verður aðstoðar keppnisstjóri í unglingaflokk
SÉRREGLUR Rallycross Íslandsmót 3. umferð í mótröð Íslandsmeistaramót -
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Rallycross Íslandsmót 3. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Rallycrossbraut BA
, þann 20. júlí 2024 kl: 11:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsveg 13 603 Akureyri.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Gunnar Bjarnason, Jóna Jakobsdóttir og Þóra Kristín.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í Hlíðarfjallsvegur 13.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 920 metra löng
GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 2024-07-16 17:00:00.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 20000 (unglingaflokkur greiðir 10000) og felur það í sér:
5.6.a þátttökurétt í keppninni;
5.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR
8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
8.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 8000kr, pr. keppni
8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
8.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni sem standast skoðun fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur/skoðun Kl:08:00 - 10:00 Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 11:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1. heat ræðst af grein 3.8.5 í rallycross reglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þeirri röð sem keppnistjóri ákveður.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.
10.3.5 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.9.3 Keppnisgreinareglum fyrir rallycross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.
10.3.5.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.
10.3.5.b Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.
Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.
10.3.5.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.
10.3.5.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.
10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 10 verður þeim skipt upp í riðla.
10.3.6.a Ef fjöldi ökutækja er 11-20:
10.3.6.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.
10.3.6.b Ef fjöldi ökutækja er 21-30:
10.3.6.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.
10.3.6.b.ii Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.
10.3.6.b.iii Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum..
10.3.6. iiiii Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.
10.3.6. iiiiii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 11.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður staðsett á böss við stjórnstöð. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
11.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.b Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 13 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Gunnar Bjarnason, sem jafnframt er formaður hennar, Einar Gunnlaugsson og Guðmundur Örn Þorsteinsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóna Jakobsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmaður er Sverrir Snær og Baldur Pálsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.6.Tengiliður keppenda er Birna Baldursóttir. Öllum erindum skal koma til hennar skriflega og hún kemur upplýsingum í réttan farveg.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Eru staðsettir umhverfis brautina og á ráslínu
Grein 15.0 Refsingar og fleira
Mótmæli og kærur eru teknar fyrir samkvæmt reglum Akís og sérreglum keppninar.
Aðeins keppandi (ef keppandi skráði sig sjálfur í keppni)eða samkeppnisaðili getur sent inn kærur og áfrýjun.
Allar kærur verða vera afhentar á réttu formi samkv. Reglum Akís (Kærur skulu gerðar samkvæmt ISC. Undirritaðar kærur ásamt kærugjaldi skulu afhentar keppnisstjóra eða staðgengli hans innan tilsetts kærufrests. Kærugjald er samkvæmt gjaldskrá Akís, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar.) hún verður að vera undirrituð af keppanda og verður að innihalda hvaða reglu/brot er verið að kæra.
Hægt er að skjóta málum til almennrar dómnefndar AKÍS til samræmis við reglur
Allar kærur verða vera lagðar fram með kærugjaldi sem er__50.000 kr_.
Ef kæru upphæð fylgir ekki með, er kæra ekki tekin gild.
Kæra sem felur í sér rif á bíl er aukagjald: 40.000 kr_.
Kostnaður sem verður vegna rif á bíl eru borguð af:
Þeim sem leggja fram kæru, ef hún á ekki við rök að styðjast
Keppanda, ef kæra á við rök að styðjast
Tímamörk til að leggja fram kærur:
Kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit eru birt, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar
Mótmæli um að ökutæki standist ekki reglur í flokk verða vera komin fram ekki seinna en 15mín eftir að riðli lauk (úrslit úr riðli).
Mótmæli um gang keppninnar, úrslit eða dóma, verða vera komin fram innan við 15 mín eftir útgefin úrslit.
Mótmæli um ákvörðun brautarstjóra verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að ákvörðunin var auglýst á uppl.töflu.
Mótmæli geta verið tekin fyrir eftir tímamörk, einungis ef Dómnefnd telur að ástæðan á töfini sé hlutlæg og sanngjörn
Tímasektir og ekki gefið rásleyfi útaf komið of seint á ráslínu er ekki hægt að áfrýja
Áfrýjanir: eru samkv reglum Akís og sérreglum keppninnar
Standard 1000 flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 1050ccm, hámarksþyngd 1300kg.
1400 FLOKKUR
Ökutæki með drif á einum öxli, slagrými vélar undir 1450 rúmsentimetrum og hámark 100 hestöfl
2000ccm flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 2080ccm, hámarksþyngd 1300kg.
4wd non turbo
Fjórhjóladrifsbílar undir 1300kg, vélarstærð hámark 2500ccm.
Opinn flokkur:
Ökutæki 0 – 1400 kg, á ráslínu með ökumanni, sérsmíðuð farartæki, allt leyfilegt svo framarlega sem það stenst öryggiskröfur. Með möguleika á skiptingu við miðju.
Unglingaflokkur:
0 – 1600ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.
Reglur í Rallycross fyrir árið 2024 má finna hér
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 20000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍFS | 47 |
2 | Arnar Már Árnason | AÍH | 46 |
3 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 39 |
4 |
Adam Pétursson
Aðst: Tryggvi Snær Friðjónsson |
BA BA |
35 |
5 | Zilvinas Stonys | AÍH | 30 |
6 | Vigri Wolfram | AÍH | 25 |
7 | Arnar Gauti Heiðarsson | AÍH | 19 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jóhann Pálmarsson | AÍH | 53 |
2 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 2 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Snæþór Ingi Jósepsson | BA | 51 |
2 | Jakob Pálsson | AÍH | 42 |
3 | Kristinn Örn Jakobsson | TK | 39 |
4 | Dórothea Ruth Hilmars. | AÍH | 31 |
5 | Svavar Skúli Stefánsson | BA | 28 |
6 | Óskar Ingi Stefánsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gedas Karpavicius | AÍH | 53 |
2 | Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | 11 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Anton Orri Gränz | AÍH | 53 |
2 | Andri Svavarsson | AÍH | 44 |
3 | Magnús Árnason | AÍH | 36 |
4 | Aron Karl Ásgeirsson | AÍH | 32 |
5 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍFS | 32 |
6 | Björgólfur Bersi Kristinsson | AÍH | 28 |
7 | Guðni Þór Jósepsson | BA | 18 |
8 | Bogi Sigurbjörn Kristjánsson | AÍH | 17 |
9 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 16 |
10 | Arnar Már Pálsson | AÍH | 16 |
11 | Hanna Lísa Hafsteinsdottir | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Adam Máni Valdimarsson | AÍFS | 50 |
2 | Sindri Þór Reynisson | AÍH | 46 |
3 | Guðmundur Gauti Ívarsson | AÍH | 40 |
4 | Hergill Henning Kristinsson | AÍH | 39 |
5 | Sigurgeir Guðmundur Elvarsson | START | 38 |
6 | Valdimar Kristinn Árnason | AÍH | 38 |
7 | Skúli Helgason | AÍH | 33 |
8 | Björn Vignir Ingason | TK | 33 |
9 |
Eydís Anna Jóhannesdóttir
Aðst: Gunnar Karl Jóhannesson |
AÍH AÍH |
32 |
10 | Óskar Þór Baldursson | BA | 31 |
11 | Karítas Birgisdóttir | AÍH | 26 |
12 | Jón Birkir Árnason | AÍH | 26 |
13 | Óliver Aron Magnússon | AÍH | 21 |
14 | Natan Nick Sverrisson | BA | 20 |
15 | Bergrún Fönn Alexandersdóttir | AÍH | 18 |
16 | Matthías Bogi Loftsson | AÍH | 17 |
17 | Stefán Einar Þorsteinsson | AÍH | 16 |
18 | Sunna Sól Pálsdóttir | AÍH | 15 |
19 | Helena Ósk Elvarsdóttir | AÍH | 14 |
20 | Halldór Ólafsson | AÍH | 12 |
21 | Sigurður Almar Guðnason | AÍFS | 9 |