4.umferð Íslandsmótsins í Rallycross - 20. júlí 2024
Skráningu lýkur 14. ágúst klukkan 17:00
Skráningargjald : 20.000 kr án akís gjalds
Unglingar : 9500 kr án akís gjalds
Við skráningu í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: unglingar
Athugið að eingöngu keppendur í unglingaflokk geta nýtt sér þennan kóða
** Minni keppendur á að kynna sér vel reglur um öryggisbúnað**
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Jónu Jakobs sími 869-1293eða jonatp2305@gmail.com
Þeir sem eru með séróskir um keppnisnúmer og eru að keppa í fyrsta sinn á þessu ári geta sent á keppnisstjóra ekki seinna en 14.ágúst kl 17:00. Eftir það verða séróskir ekki teknar fyrir.
þegar bíll er tekinn af kerru eða mætir þarf hann að keyra hægan hring til að athuga hvort kubbur virki (mikilvægt að vera búinn að setja kubbinn í ) áður en lagt er í stæði
Skoðun fer fram í stæði, ökumaður gerir sig tilbúinn að fara beint í tímatöku ef bíllinn öðlast skoðun.
Keyrum heat 1 og 2, tökum ca 30 min hlé og svo verða keyrð heat 3 og 4
BA
Viðburðarstjóri: Jóna Phuong Thuy Jakobsdóttir
Öryggisfulltrúi: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
Skoðunarmaður: Sverrir Snær Ingimarsson
Formaður dómnefndar: Gunnar Bjarnason
Dómnefnd 1: Ari Halldor Hjaltsson
Dómnefnd 2: Atli Jóhann Einarsson
Framkvæmdanefnd:
Jóna Jakonsdóttir, Gunnar Bjarnason, Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
18. ágúst 2024 kl: 11:00
Rallycrossbraut BA
Lýsing:
Rallycross
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 6. ágúst 2024 kl: 15:00
Skráningu lýkur: 14. ágúst 2024 kl: 17:00
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000 - Stelpur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Unglingaflokkur - Stelpur
Bíll 696 þjófstartar, er settur fyrir aftan aftasta keppanda.
Unglingar B 3 Heat leiðrétting, bíll 21 brýtur af sér og er settur aftast.
Bill 21 tók frammúr á gulu flaggi, settur í aftasta sæti og fær stig eftir því.
Bíll 428 keyrir aftan í bíl 435 sem veldur því að bíll 435 veltur.
Bíll 428 er settur í neðsta sæti í þeim riðli og þar af leiðandi er ræstur aftast í næsta riðli. (3 riðli)
Speedhive Mylaps er komið í lag og allir tímar aðgengilegir þar inná.
Flaggað út á vitlausum hring, (6 hring), úrslit standa eins og þeir fóru í gegnum endamark 5 hrings.
Bíll 428 Þjófstartar fyrstur og er færður aftastur í endurræsingu,
Bíll 433 þjófstartar seinni í sama starti og er settur fyrir aftan aftasta bíl.
Bíll 28 fer frammúr bíl 27 á gulu flaggi á pósti 4, er settur aftast og stig samkvæmt því.
Bíll 402 og 435 mæta eftir mætingarfrest og eru ræstir aftastir í sínum riðli.
Til keppenda
Eins og þið vitið hefur brautin okkar verið i vinnslu, vegna veðurs undanfarna daga þá er brautin frekar blaut en við reynum okkar besta að hafa hana í þokkalegu standi. Ef til þess kess kemur að brautin verður illa farin á meðan keppnin stendur þá þurfum við mögulega að grípa til ráðs að þrengja brautina á ákveðnum stöðum. Við erum að gera okkar besta að komast hjá því. Vonum að keppnishald gangi vel þrátt fyrir þetta.
Birna Baldursdóttir og Þórarinn Hrafn Skúlason (Tóti) verða tengiliðir keppenda.
Baldur Pálsson verður í skoðun til aðstoðar.
SÉRREGLUR Rallycross Íslandsmót 4. umferð í mótröð Íslandsmeistaramót -
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Rallycross Íslandsmót 4. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Rallycrossbraut BA
, þann 18. ágúst 2024 kl: 11:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Gunnar Bjarnason, Jóna Jakobsdóttir og Þóra Kristín..
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í Hlíðarfjallsvegi 13.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 930 metra löng
GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 2024-08-14 17:00:00.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 20000 (unglingaflokkur greiðir 10000) og felur það í sér:
5.6.a þátttökurétt í keppninni;
5.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR
8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
8.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3000kr, pr. keppni
8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
8.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa standist þau keppnisskoðun.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur Kl 08:00 - 10:00 Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 11:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1. heat ræðst af grein 3.8.5 í rallycross reglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þeirri röð sem keppnistjóri ákveður.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.
10.3.5 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.9.3 Keppnisgreinareglum fyrir rallycross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.
10.3.5.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.
10.3.5.b Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.
Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.
10.3.5.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.
10.3.5.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.
10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 10 verður þeim skipt upp í riðla.
10.3.6.a Ef fjöldi ökutækja er 11-20:
10.3.6.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.
10.3.6.b Ef fjöldi ökutækja er 21-30:
10.3.6.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.
10.3.6.b.ii Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.
10.3.6.b.iii Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum..
10.3.6. iiiii Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.
10.3.6. iiiiii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 11.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður rafræn inn á mótakerfi AKÍS. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
11.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.b Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 13 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Gunnar Bjarnason, sem jafnframt er formaður hennar, Ari Halldór Hjaltason og Atli Jóhann Einarsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóna Phuong Thúy Jakobsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmaður er Sverrir Snær Ingimarsson og Baldur Pálsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Grein 15.0 Refsingar og fleira
Mótmæli og kærur eru teknar fyrir samkvæmt reglum Akís og sérreglum keppninar.
Aðeins keppandi (ef keppandi skráði sig sjálfur í keppni)eða samkeppnisaðili getur sent inn kærur og áfrýjun.
Allar kærur verða vera afhentar á réttu formi samkv. Reglum Akís (Kærur skulu gerðar samkvæmt ISC. Undirritaðar kærur ásamt kærugjaldi skulu afhentar keppnisstjóra eða staðgengli hans innan tilsetts kærufrests. Kærugjald er samkvæmt gjaldskrá Akís, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar.) hún verður að vera undirrituð af keppanda og verður að innihalda hvaða reglu/brot er verið að kæra.
Hægt er að skjóta málum til almennrar dómnefndar AKÍS til samræmis við reglur
Allar kærur verða vera lagðar fram með kærugjaldi sem er__50.000 kr_.
Ef kæru upphæð fylgir ekki með, er kæra ekki tekin gild.
Kæra sem felur í sér rif á bíl er aukagjald: 40.000 kr_.
Kostnaður sem verður vegna rif á bíl eru borguð af:
Þeim sem leggja fram kæru, ef hún á ekki við rök að styðjast
Keppanda, ef kæra á við rök að styðjast
Tímamörk til að leggja fram kærur:
Kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit eru birt, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar
Mótmæli um að ökutæki standist ekki reglur í flokk verða vera komin fram ekki seinna en 15mín eftir að riðli lauk (úrslit úr riðli).
Mótmæli um gang keppninnar, úrslit eða dóma, verða vera komin fram innan við 15 mín eftir útgefin úrslit.
Mótmæli um ákvörðun brautarstjóra verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að ákvörðunin var auglýst á uppl.töflu.
Mótmæli geta verið tekin fyrir eftir tímamörk, einungis ef Dómnefnd telur að ástæðan á töfini sé hlutlæg og sanngjörn
Tímasektir og ekki gefið rásleyfi útaf komið of seint á ráslínu er ekki hægt að áfrýja
Áfrýjanir: eru samkv reglum Akís og sérreglum keppninnar
Standard 1000 flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 1050ccm, hámarksþyngd 1300kg.
1400 FLOKKUR
Ökutæki með drif á einum öxli, slagrými vélar undir 1450 rúmsentimetrum og hámark 100 hestöfl
2000ccm flokkur:
Eindrifsbílar með vél undir 2080ccm, hámarksþyngd 1300kg.
4wd non turbo
Fjórhjóladrifsbílar undir 1300kg, vélarstærð hámark 2500ccm.
Opinn flokkur:
Ökutæki 0 – 1400 kg, á ráslínu með ökumanni, sérsmíðuð farartæki, allt leyfilegt svo framarlega sem það stenst öryggiskröfur. Með möguleika á skiptingu við miðju.
Unglingaflokkur:
0 – 1050ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.
Reglur í Rallycross fyrir árið 2020 má finna hér http://www.akis.is/wp-content/uploads/2020/02/Rallycross-reglur-2020.pdf
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Jónu Jakobs S: 869-1293 eða jonatp2305@gmail.com
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 20000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hilmar B Þràinsson | AÍH | 51 |
2 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 45 |
3 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍFS | 43 |
4 | Arnar Gauti Heiðarsson | AÍH | 34 |
5 | Vigri Wolfram | AÍH | 30 |
6 | Fjölnir örn Ársælsson | BA | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Kristinn Kjartansson
Aðst: sindri snær friðriksson |
BA BA |
50 |
2 | Jóhann Pálmarsson | AÍH | 45 |
3 | Tómas Karl Benediktsson | BA | 36 |
4 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 35 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Snæþór Ingi Jósepsson | BA | 42 |
2 | Svavar Skúli Stefánsson | BA | 39 |
3 | Arnar Elí Gunnarsson | AÍH | 37 |
4 | Dórothea Ruth Hilmars. | AÍH | 33 |
5 | Kristinn Örn Jakobsson | TK | 32 |
6 | Óskar Ingi Stefánsson | AÍH | 8 |
7 | Jakob Pálsson | AÍH | 8 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Þórir Mar Ingvason | TK | 52 |
2 | Arnar Már Pálsson | AÍH | 39 |
3 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍFS | 37 |
4 | Björgólfur Bersi Kristinsson | AÍH | 33 |
5 | Aron Karl Ásgeirsson | AÍH | 28 |
6 | Magnús Árnason | AÍH | 28 |
7 | Andri Svavarsson | AÍH | 25 |
8 | Bogi Sigurbjörn Kristjánsson | AÍH | 17 |
9 | Titas Kauneckas | AÍH | 13 |
10 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 12 |
11 | Guðni Þór Jósepsson | BA | 9 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Björn Vignir Ingason | TK | 43 |
2 | Valdimar Kristinn Árnason | AÍH | 41 |
3 | Sigurgeir Guðmundur Elvarsson | START | 40 |
4 | Guðmundur Gauti Ívarsson | AÍH | 39 |
5 | Sindri Þór Reynisson | AÍH | 37 |
6 | Adam Máni Valdimarsson | AÍFS | 29 |
7 | Óliver Aron Magnússon | AÍH | 28 |
8 | Hergill Henning Kristinsson | AÍH | 27 |
9 |
Eydís Anna Jóhannesdóttir
Aðst: Gunnar Karl Jóhannesson |
AÍH AÍH |
27 |
10 | Stefán Einar Þorsteinsson | AÍH | 24 |
11 | Bergrún Fönn Alexandersdóttir | AÍH | 22 |
12 | Natan Nick Sverrisson | BA | 17 |
13 | Helena Ósk Elvarsdóttir | AÍH | 16 |
14 | Óskar Þór Baldursson | BA | 14 |
15 | Jón Birkir Árnason | AÍH | 13 |
16 | Karítas Birgisdóttir | AÍH | 11 |
17 | Matthías Bogi Loftsson | AÍH | 11 |
18 | Skúli Helgason | AÍH | 11 |
19 | Sigurður Almar Guðnason | AÍFS | 8 |
20 | Halldór Ólafsson | AÍH | 6 |