Bílaklúbbur Akureyrar heldur 4. til 5. bikarmótið í áttungsmílu sem gildir til stiga um bikarmeistara BA 2024
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Bílar
A/G 8,70
A/F 8,10
A/E 7,50
A/D 6,90
A/C 6,30
A/B 5,70
A/A 5,10
DS flokkur
OF flokkur
Mótorhjól
MA/E 7,50
MA/D 6,90
MA/C 6,30
MA/B 5,70
MA/A 5,10
G+ flokkur
G- flokkur
B flokkur
O flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1.og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir
10:00 pittur opnar
10:00 móttaka keppenda hefst
10.00 skoðun hefst
11:00 pittur lokar
11:30 skoðun lýkur
11:45 keppendafundur
12:00 tímatökur hefjast
12:45 tímartökum lýkur
13:00 Keppni hefst 4. umferð
14:15 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar
14:45 kærufresti lýkur
15:00 Keppni hefst 5. umferð
16:15 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar
16:45 kærufresti lýkur
Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut.
Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki
Birt með fyrirvara um tímabreytingar.
BA
Viðburðarstjóri: Halldór Hauksson
Öryggisfulltrúi: Jón Rúnar Rafnsson
Skoðunarmaður: Einar Þór Birgisson
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Jóhann Tryggvi Unnsteinsson
Dómnefnd 2: Brynjar Schiöth
Framkvæmdanefnd:
Einar Gunnlaugsson, Halldór Hauksson og Jón Rúnar Rafnsson
21. september 2024 kl: 13:00
Spyrnubraut BA
Lýsing:
Áttungsmíla
Bikarmót BA - 4. umferð
Skráning hefst: 4. september 2024 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 19. september 2024 kl: 17:00
*DS flokkur bíla
*OF flokkur bíla
A/A flokkur (5,10) bílar
A/B flokkur (5,70) bílar
A/C flokkur (6,30) bílar
A/D flokkur (6,90) bílar
A/E flokkur (7,50) bílar
A/F flokkur (8,10) bílar
A/G flokkur (8,70) bílar
B flokkur mótorhjól
G+ flokkur mótorhjól
G- flokkur mótorhjól
MA/A flokkur (5,10) mótorhjól
MA/B flokkur (5,70) mótorhjól
MA/C flokkur (6,30) mótorhjól
MA/D flokkur (6,90) mótorhjól
MA/E flokkur (7,50) mótorhjól
MSÍ- mótorhjól Opinn flokkur (O)
SÉRREGLUR BA bikarmót í áttungsmílu í mótröð Íslandsmeistaramót - 4. og 5. umferð
1.1 Keppnin heitir BA bikarmót í áttungsmílu - 4. og 5. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyari þann 14. september 2024 kl: 13:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur 13, 603 Akureyri.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Halldór Hauksson og Jón Rúnar Rafnsson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Bílaklúbbs Akureyrar.
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.
4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng.
4.2.1 Það er gönguhraði í pittinum.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i A/G
5.1.1.a.ii A/F
5.1.1.a.iii A/E
5.1.1.a.iv A/D
5.1.1.a.v A/C
5.1.1.a.vi A/B
5.1.1.a.vii A/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur
5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MA/E
5.1.1.b.ii MA/D
5.1.1.b.iii MA/C
5.1.1.b.iv MA/B
5.1.1.b.v MA/A
5.1.1.b.vi G +
5.1.1.b.vii G -
5.1.1.b.viii B
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2024-09-12 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald er kr. 12.000.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki sem eru skráð til keppni og fá skoðun fá að rásheimild.
10.1.2 Ds og OF fá 10 mínútna kælitíma á milli ferða.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.b Útsláttarkeppni 4. umferð klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni 5. umferð klukkan 15:00. Ræst úr kyrrstöðu
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/476.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa EInar Gnnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Jóhann Unnsteinsson og Brynjar Schiöth.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Halldór Hauksson
14.2.2 Skoðunarmaður er Einar Þór Birgisson
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jón Rúnar Rafnsson
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
ar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 10000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gunnlaugur Gunnlaugsson | BA | 116 |
2 | Halldór Hauksson | BA | 94 |
3 | Kristján Skjóldal | BA | 80 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sævar Páll Stefánsson | BA | 114 |
2 | Eyvindur Johannsson | BA | 96 |
3 | Ásdís Kristrún Melsted | BA | 80 |
4 | Brynjar Schiöth | BA | 67 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Einar Þór Birgisson | BA | 116 |
2 |
Karl óskar Geirsson
Aðst: Sverrir Yngvi Karlsson |
BA BA |
95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hafdís Alma Einarsdóttir | BA | 116 |
2 | Egill stefán jóhannsson | BA | 94 |
3 | Guðmundur Karl bóasson | BA | 80 |
4 | Brynjar Nova Kristjánsson | BA | 67 |
5 | Bartlomiej Piotr Bryszewski | BA | 58 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Björgvin Þórsson | BA | 116 |
2 | Sævar Lárus Áskelsson | BA | 94 |
3 | Jón Rúnar Rafnsson | BA | 80 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Kristófer Daníelsson | BA | 10 |