CAVEMAN driftkeppnin - 1.umferð Íslandsmeistaramóts í drifti 2025
Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur 1. umferð Íslandsmeistaramóts í drifti 2025 á Akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni þann 30. og 31.maí 2025.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Ökumenn mega hafa að hámarki 2 aðstoðarmenn og 1 leiðsagnarmann með hverju keppnistæki.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
-Minni götubílaflokkur
-Götubílaflokkur
-Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum ásamt verðlaunapoka frá CAVEMAN.
Föstudagur 30.maí
18:00 Pittur opnar / mæting keppenda
18:15 Skoðun hefst
18:45 Æfing hefst
19:00 Pittur lokar
19:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 31.maí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
- Minni götubílaflokkur
16:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
AÍH
Keppnisstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Arnar Ísfeld
Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson
Formaður dómnefndar: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
Dómnefnd 1: Linda Dögg Jóhannsdóttir
Dómnefnd 2: Bragi Örn Hilmarsson
Frá: 30. maí 2025 kl: 18:00
Til: 31. maí 2025 kl: 16:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Drift
Íslandsmeistaramót - 1. umferð
Skráning hefst: 15. maí 2025 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 28. maí 2025 kl: 17:00
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
SÉRREGLUR CAVEMAN driftkeppnin - 1.umferð Íslandsmeistaramóts í drifti 2025 í mótröð Íslandsmeistaramót - 1. umferð
1.1 Keppnin heitir CAVEMAN driftkeppnin - 1.umferð Íslandsmeistaramóts í drifti 2025.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH
850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
þann 30. maí 2025 kl: 18:00 til 31. maí 2025 kl: 16:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, til heimilis að Kapelluhrauni.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jökull Ýmir Guðmundsson og Sigmar Freyr Katrínarson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í Félagsheimili AÍH.
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður malbiksbraut AÍH.
4.1.3 Leiðin er um það bil 400 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
.
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2025-05-28 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 20000
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Föstudagur 30.maí
18:00 Pittur opnar / mæting keppenda
18:15 Skoðun hefst
18:45 Æfing hefst
19:00 Pittur lokar
19:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 31.maí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
- Minni götubílaflokkur
16:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2020.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Götubílar, Opinn flokkur og Minni götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/488 og https://docs.google.com/document/d/1TpZnU_EoeTEAYDfH3YvJOxG8VRbJkq6vhazfg2C_-Ao/edit?usp=sharing
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir, sem jafnframt er formaður hennar, Linda Dögg Jóhannsdóttir og Bragi Örn Hilmarsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldor Hjaltsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Arnar Ísfeld.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 20000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
---|---|---|---|---|
Friðrik Þór Pálsson | AÍH | Götubílar | Volvo 740 | |
Gunnar Yngvi Rúnarsson | AÍH | Opinn flokkur | Bmw 330 | |
Hafliði Harðarson | AÍH | Opinn flokkur | Nissan S13 | |
Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | Opinn flokkur | BMW 3 | |
Sindri Már Ingimarsson | AÍH | Opinn flokkur | BMW E92 | |
Stefán Snær Jónsson | AÍH | Opinn flokkur | Ford Mustang GT |