Íslandsmótið í Götuspyrnu 2025 verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 14. júní næstkomandi.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar
- Bílar 4cyl
- Bílar 6cyl
- Bílar 8cyl "standard"
- Bílar 8cyl+
- Bílar 4x4
- Jeppaflokkur
- Rafmagnsbílar
- Bílar Super Street
- Bílar Outlaw hurðabílar
- Bílar Outlaw grindarbílar
- Bílar unglingaflokkur
- Mótorhjól F-hjól
- Mótorhjól Hippar undir 1100cc
- Mótorhjól Hippar 1100cc+
- Mótorhjól Krossarar
- Mótorhjól Götuhjól undir 800cc
- Mótorhjól Götuhjól 800cc+
- Mótorhjól Breytt götuhjól
Ef tímamörk leyfa verða einnig keyrðir allt flokkar bíla og hjóla að keppni lokinni.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:30 Pittur opnar / móttaka keppenda hefst
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:30 Tímatökur hefjast
14:15 Tímatökum lýkur
15:00 Keppni hefst
19:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
Kærufresti lýkur 30 mín eftir keppnislok.
Verðlauna afhending við stjórnstöð.
Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
BA
Keppnisstjóri: Jóna Phuong Thuy Jakobsdóttir
Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
Skoðunarmaður: Jóhann Björgvinsson
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Arnar Smári Signýjarson
Dómnefnd 2: Svavar Skúli Stefánsson
Framkvæmdanefnd:
Einar Gunnlaugsson, Jóna Jakobsdóttir og Hrefna Björnsdóttir
14. júní 2025 kl: 00:00
Spyrnubraut BA
Lýsing:
Götuspyrna
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 2. júní 2025 kl: 23:00
Skráningu lýkur: 12. júní 2025 kl: 17:00
Bílar 4 cyl
Bílar 4x4
Bílar 6 cyl
Bílar 8 cyl
Bílar 8 cyl+
Bílar unglingaflokkur
Jeppaflokkur
MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)
MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)
MSÍ- mótorhjól Hippar +H
MSÍ- mótorhjól Hippar -H
MSÍ- mótorhjól Opinn flokkur (O)
MSÍ- mótorhjól Unglingaflokkur (MU)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)
MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)
Outlaw grindarbílar
Outlaw hurðabílar
Rafmagnsbílar (EV)
Super Street
Viðbót við sérreglur 8+. Notkun á nylon front runnerum ( diagonal) í flokki 8+ er nú leyfileg.
Sérreglur Götuspyrna Bíladaga 2025 í mótröð Íslandsmeistaramót -
Grein 1 Keppnin
1.1 Keppnin heitir Götuspyrna Bíladaga 2025.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinareglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Spyrnubraut BA, þann 14. júní 2025 kl: 15:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema viðri ekki til spyrnu með tilliti til öryggis keppenda og annara á svæðinu. Keppnistjóri, dómnefnd og öryggisfulltrúi keppninnar taka ákvörðun um frestun komi sú staða upp.
1.5 Keppnin verður felld niður komi ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.6 Ef aðeins 1 skráning berst í flokk er honum heimilt að keyra "upp fyrir sig" svo framarlega að hann uppfylli flokkareglur í þeim flokki.
Grein 2 Keppnishaldari
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13, Akureyri.
Grein 3 Framkvæmdanefnd
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
Grein 4 Keppnissvæðið
4.1 Brautin hefur gilt leyfi til keppna í þeim flokkum sem keppt er í í götuspyrnu.
4.2 Akstursstefna brautar er frá austri til vesturs.
4.3 Lengd brautar er 201m í áttungsmílu (götuspyrnu).
Grein 5 Flokkun og útbúnaður ökutækja
5.1 Keppnisflokkar eru eftirtaldir:
Bílar 4 cyl
Bílar 4x4
Bílar 6 cyl
Bílar 8 cyl
Bílar 8 cyl+
Bílar unglingaflokkur
Jeppaflokkur
MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)
MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)
MSÍ- mótorhjól Hippar +H
MSÍ- mótorhjól Hippar -H
MSÍ- mótorhjól Opinn flokkur (O)
MSÍ- mótorhjól Unglingaflokkur (MU)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)
MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)
Outlaw grindarbílar
Outlaw hurðabílar
Rafmagnsbílar (EV)
Super Street
.
Grein 6 Skráning
6.1 Engin takmörk eru á hámarks fjölda ökutækja sem skrá eru til keppni.
6.2 Skráning fer fram á vef AKÍS, og hefst um leyð og hún verður aðgengileg þar.
6.3 Skráningu lýkur 2025-06-12 17:00:00.
6.4 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12500kr auk keppnisskirteini AKÍS (2500 kr)
Grein 7 Tryggingar
7.1 Öll tæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
Grein 8 Keppnis og ökuskirteini
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
Grein 9 Merkingar ökutækja
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í hliðarrúðu vinstra megin.
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan.
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst.
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
Grein 10 Ræsing
Grein 10.1 Almennt
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:30 Pittur opnar / móttaka keppenda hefst
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:30 Tímatökur hefjast
14:15 Tímatökum lýkur
15:00 Keppni hefst
19:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
Kærufresti lýkur 30 mín eftir keppnislok.
Verðlauna afhending við stjórnstöð.
Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vef AKÍS, https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/491, einnig verður formleg dagskrá og keppendalstar aðgengilegir í félagsheimili og stjórnstöð keppninnar.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman, einnig verða þau hengd upp í félagsheimili.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Arnar Smári Signýjarson og Svavar Skúli Stefánsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóna Jakobsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmaður er Jóhann Björgvinsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 12500 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
---|---|---|---|---|
Almar Jón Kristinsson | BA | Bílar 4 cyl | Mazda Speed 3 | |
Baldur Gíslason | KK | Jeppaflokkur | ||
Daníel Jökull Valdimarsson | AÍH | Bílar 4x4 | Subaru Impreza WRX STi | |
Daníel Orri Óttarsson | KK | MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G) | CF-MOTO 675 SRR | |
Einar Ágúst Ásmundsson | KK | Bílar 4x4 | AUDI RS3 | |
Elvar Már Arason | BA | Bílar 4x4 | Subaru Impreza | |
Fawaz al shebli | BA | Bílar 4 cyl | BMW G20 | |
Gunnar Valur Halldórsson | BA | Bílar 4x4 | Mitsubishi Evo | |
Gunnlaugur Gunnlaugsson | BA | Outlaw hurðabílar | Ford Mustang árg 1970 | |
Óðinn Smári Albertsson | KK | MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G) | Yamaha R1 | |
Óðinn Smári Albertsson | KK | MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G) | Yamaha | |
Viktor orri ingason | BA | Bílar 4 cyl | Volvo 940 |