Fyrsta umferð Íslandsmóts í sandspyrnu verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 13. júní næstkomandi.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Bílar
Fólksbílar (F)
Útbúnir fólksbílar (ÚF)
Buggybílar (B)
Jeppar (J)
Útbúnir jeppar (ÚJ)
Sérsmíðuð ökutæki (S)
Opinn flokkur (O)
Mótorhjól
Unglingaflokkur (MU)
Unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)
16:00 Svæðið opnar.
16.30. Mæting keppenda.
16.35 Skoðun hefst.
17.00 Pittur lokar.
17.30 Skoðun lýkur.
17.40 Keppendafundur barnaflokks.
17:45 Keppni barna hefst.
18.30. Keppendafundur.
18.45. Tímataka.
20.00 Tímatökum líkur.
20.15. Kepppni hefst.
21.45 Lokaúrslit birt.
22.15 Verðlaunaafhending
BA
Keppnisstjóri: Jóna Phuong Thuy Jakobsdóttir
Öryggisfulltrúi: Viktoría Fönn Guðmundsdóttir
Skoðunarmaður: Jóhann Björgvinsson
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Svavar Skúli Stefánsson
Dómnefnd 2: Sverrir Snær Ingimarsson
Framkvæmdanefnd:
Einar Gunnlaugsson, Jóna Jakobsóttir og Viktoría Fönn Guðmundsdóttir
13. júní 2025 kl: 20:15
Sandspyrnubraut BA
Lýsing: 91,44 m
Sandspyrna
Íslandsmeistaramót - 1 umferð
Skráning hefst: 2. júní 2025 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 11. júní 2025 kl: 17:00
Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir
MSÍ-Vélsleðar (V)
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar
SÉRREGLUR Sandspyrna Bíladaga 2025 í mótröð Íslandsmeistaramót - 1 umferð
1.1 Keppnin heitir Sandspyrna Bíladaga 2025.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut BA 91,44 m þann 13. júní 2025 kl: 20:15.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson og Viktoría Fönn Guðmundsdóttir
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Hlíðarfjallsvegi13, Akureyri.
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá austurs til vesturs.
4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.
4.2.1 Hámarks hraði í pitt er gönguhraði
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar
Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
MSÍ-Vélsleðar (V)
5.1.2 Á meðan að kærufrestur er þá er keppnisstjóra heimilt að keyra Allt flokk bæði bíla og mótorhjóla.
5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.
5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2025-06-11 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Skráningargjald er kr. 12500 og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það.
6.6a Skráningargjald fyrir 12-17 ára er kr. 6250 kr og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 20:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/492 .
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
11.4.3 Ökumenn skulu vera við keppnistækin sín á meðan að keppni stendur.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti.
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar og Svavar Skúli Stefánsson
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóna Jakobsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmaður er Jóhann Björgvinsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Viktoría Fönn Guðmundsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 12500 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
---|---|---|---|---|
Ármann Örn Sigursteinsson | BA | MSÍ-Vélsleðar (V) | Arctic Cat M1100 TRB | |
Aron Máni Björnsson | BA | MSÍ-unglingaflokkur (MU) | Honda CRF250r |