Akstursíþróttafélagið Start heldur 3. umferð Íslandsmóts í torfæru 2025 á Ylsgrúsum við Egilsstaði þann 28. júní 2025.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar.
Götubílar - Street legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2., og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á slóðinni: http://nn.is/Wn57S
06:00 Pittur opnar
06:30 Skoðun keppnisbíla hefst við pitt
08:15 Keppendafundur og brautarskoðun
09:00 Skoðun lýkur
09:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið
10:00 Keppni hefst
12:30 Hlé 30 mín (eftir braut nr.2)
16:00 Áætluð keppnislok
16:05 Úrslit birt (kærufrestur hefst)
16:35 Kærufresti lýkur
16:45 Verðlaunaafhending við pitt
START
Keppnisstjóri: Björn Jónsson
Öryggisfulltrúi: Ingvar Birkir Einarsson
Skoðunarmaður: Jónas Jónasson
Formaður dómnefndar: Ragnar Róbertsson
Dómnefnd 1: Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
Dómnefnd 2: Tryggvi Magnús Ragnarsson
28. júní 2025 kl: 10:00
Torfærusvæðið við Egilsstaði
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót - 3. umferð
Skráning hefst: 13. júní 2025 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 23. júní 2025 kl: 17:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
SÉRREGLUR 3. umferðar Íslandsmóts í torfæru 28.júní 2025
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Motul torfæran og er 3. umferð Íslandsmóts í torfæru 2025.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á torfærusvæði Akstursíþróttafélagsins Start, Ylsgrúsum við Mýnes rétt fyrir utan Egilsstaði þann 28. júní 2025.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttaklúbburinn Start á Egilsstöðum
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ástráður Ási Magnússon,Björn Jónsson, Davíð Logi Hlynsson, Ólafur Bragi Jónsson
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 ÞRAUTIRNAR
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki, samtals um það bil 70-800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PARC FERMÉ
4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé.
4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé að loknum akstri síðustu þrautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Flokkur sérútbúinna
5.1.1.b Flokkur sérútbúinna götubíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.2 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.3 Skráningu lýkur þann 22. júní 2025 klukkan 17:00.
6.4 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 7.000
6.5 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.5.1 þátttökurétt í keppninni;
6.5.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
6.6 Leyfilegt er að skrá 2 ökumenn á ökutæki í samræmi við Keppisgreinarreglur fyrir torfærur 2025, lið 2.1.2a
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnissgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru (sjá nánar á slóðinni: https://reglur.akis.is/Codes/Torfæra/View
9.2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir báða flokka.
9.3 Þeir keppendur sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá Keppnisráði AKÍS í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl. 9:55.
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl. 10:00.
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1. um rásröð í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru.
10.3.2.a Flokkarnir eru keyrðir til enda í þessari röð: Sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppninni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni:
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stiga- og tímaverðir hafa tekið þau saman.
12.4 Dómnefnd birtir lokaúrslit keppninnar á upplýsingatöflunni.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í báðum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa:
Ragnar Róbertsson, Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir og Tryggvi Magnús Róbertsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Björn Jónsson.
14.2.2 Brautarstjóri er Ástráður Ási Magnússon.
14.2.3 Skoðunarmenn eru Jónas Jónasson.
14.2.4 Öryggisfulltrúi er Ingvar Birkir Einarsson.
14.2.5 Pittstjóri og tengiliður keppenda er Broddi Svavarsson og Katrín Dóra Jónsdóttir.
14.2.7 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef upp koma atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.7.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.8 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.9 Nöfn staðreyndardómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir fyrstu ræsingu.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: START
Keppnisgjald: 5000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
---|---|---|---|---|
Alexander Bjarki Davíðsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Leigutíkin | |
Andri dagur stefánsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Skarfurinn | |
Andri Már Sveinsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Cowboy | |
Aron Ingi Svansson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Insane | |
Atli Jamil Ásgeirsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Raptor | |
Bjarnþór Elíasson | START | Sérútbúnir - Unlimited | Olsen Olsen | |
Daníel G. Ingimundarson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Green Thunder | |
Finnur Aðalbjörnsson | BA | Sérútbúnir - Unlimited | Refurinn | |
Finnur Bárðarson | TK | Sérútbúnir götubílar - Modified | Kletturinn | |
Gauti Moller | BA | Sérútbúnir - Unlimited | Skuggi | |
Grimur Helguson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Brjála II | |
Guðlaugur Sindri Helgason | START | Sérútbúnir - Unlimited | Olsen | |
Guðmundur Elíasson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Ótemjan | |
Guðmundur Sigurjón Guðlaugsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Brjála II | |
Gunnlaugur Gunnlaugsson | BA | Sérútbúnir - Unlimited | 2insane | |
Ingi Már Björnsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Bomban | |
Ingvar Jóhannesson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Víkingurinn | |
Jón Vilberg Gunnarsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Lightfoot | |
Jónas Freyr Sigurbjörnsson | BA | Sérútbúnir götubílar - Modified | Ruddi | |
Páll Jónsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Rollan | |
Sigurður Gýmir Bjartmarssson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Draumurinn | |
Sævar Benónýsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Móri | |
Sævar Páll Stefánsson | BA | Sérútbúnir götubílar - Modified | Járnkarlinn | |
Þór Þormar Pálsson | BA | Sérútbúnir - Unlimited | Thor |