Spyrna 12. júlí, 3 umferð Íslandsmóts og bikarmót í Áttungsmílu 2025

Spyrna 12. júlí, 3 umferð Íslandsmóts og bikarmót í Áttungsmílu 2025

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: joi902@hotmail.com

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 3. umferð Íslandsmóts í áttungsmílu 12. júlí 2025 á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.
Þessi keppni gildir jafnframt til stiga til bikarmeistara 2025.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
 A/G 8,70
 A/F 8,10
 A/E 7,50
 A/D 6,90
 A/C 6,30
 A/B 5,70
 A/A 5,10
 DS flokkur
 OF flokkur
 

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1.og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09.30 móttaka keppenda hefst

09.45 skoðun hefst

10:00 pittur lokar

10.30 skoðun lýkur

10.45 keppendafundur

11.00 tímatökur hefjast

12.45 tímartökum lýkur

13:00 keppni hefst

16:00 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

16:30 kærufresti lýkur

Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut. 

Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki

Birt með fyrirvara um fjölda keppenda og þess háttar.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Jóhann Tryggvi Unnsteinsson

Öryggisfulltrúi: Sverrir Snær Ingimarsson

Skoðunarmaður: Baldur Pálsson

Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson

Dómnefnd 1: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Dómnefnd 2: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Framkvæmdanefnd:
Einar Gunnlaugsson
Jóhann Tryggvi Unnsteinsson
Sverrir Snær Ingimarsson

Dagsetningar

12. júlí 2025 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Spyrnubraut BA
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Spyrna

Íslandsmeistaramót - 3. umferð

Bikarmót BA - 2 umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 28. júní 2025 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 10. júlí 2025 kl: 17:00

Flokkar

*DS flokkur áttungsmíla

*OF flokkur áttungsmíla

A/A flokkur (5,10) áttungsmíla

A/B flokkur (5,70) áttungsmíla

A/C flokkur (6,30) áttungsmíla

A/D flokkur (6,90) áttungsmíla

A/E flokkur (7,50) áttungsmíla

A/F flokkur (8,10) áttungsmíla

A/G flokkur (8,70) áttungsmíla

J flokkur

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Dómnefnd - Til: Keppenda

#2 - 12. júlí 2025 kl: 14:44
Loka Úrslit

Götuhjól 800cc undir

  1. Patryk Kaczynski
  2. Daníel Máni Ólafsson

 

Götuhjól 800cc yfir

  1. Ólafur Ragnar Ólafsson
  2. Daníel Máni Ólafsson

 

Breytt Götuhjól

  1. Guðvarður Jónsson
  2. Ólafur Ragnar Ólafsson

 

A/G Flokkur 8,7

  1. Jón Rúnar Rafnsson
  2. Karitas Anna Fossberg

 

A/F Flokkur 8,1

  1. Pétur Friðrik Steinþórsson
  2. Hinrik Máni

 

A/E Flokkur 7,5

  1. Brynjar Nova Kristjánsson
  2. Guðmundur Karl Bóasson

 

A/D Flokkur 6,9

  1. Egill Stefán Jóhannsson
  2. Ómar M.H Zarioh

 

A/C Flokkur 6,3

  1. Einar Rafn Einarsson
  2. Karl Óskar Geirsson

 

Allt Flokkur Bíla

  1. Einar Þór Birgisson

 

Allt Flokkur Hjóla

  1. Guðvarður Jónsson

 

 

Úrslit Birt kl: 14:45

Kv. Formaður Dómnefndar


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

#1 - 2. júlí 2025 kl: 10:54
Breyting á öryggisfulltrúa

Breyting á öryggisfulltrúa. 

Jónas Freyr Sigurbjörnsson mun taka við hlutverki Sverrirs Snæs sem öryggisfulltrúi. 


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR

Spyrna 12. júlí, 3 umferð Íslandsmóts og bikarmót í Áttungsmílu 2025
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitirSpyrna 12. júlí, 3 umferð Íslandsmóts og bikarmót í Áttungsmílu 2025

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar þann 12. júlí 2025 kl: 13:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur 13, 603 Akureyri. 

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jóhann Tryggvi Unnsteinsson, Sverrir Snær Ingimarsson og Einar Gunnlaugsson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í húsnæði Bílaklúbbur Akureyrar

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i A/G
5.1.1.a.ii A/F
5.1.1.a.iii A/E
5.1.1.a.iv A/D
5.1.1.a.v A/C
5.1.1.a.vi A/B
5.1.1.a.vii A/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MA/E
5.1.1.b.ii MA/D
5.1.1.b.iii MA/C
5.1.1.b.iv MA/B
5.1.1.b.v MA/A
5.1.1.b.vi G +

5.1.1.b.vii G -
5.1.1.b.viii B

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2025-07-10 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 15.000. (12.500 kr + AKÍS keppnisskírteini 2500 kr) 

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/486.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Tryggvi Unnsteinsson

14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Sverrir Snær Ingimarsson.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

*DS flokkur áttungsmíla

*OF flokkur áttungsmíla

A/A flokkur (5,10) áttungsmíla

A/B flokkur (5,70) áttungsmíla

A/C flokkur (6,30) áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Einar Rafn Einarsson BA Einar Birgisson 115
2 Karl óskar Geirsson BA Ford mustang HH Racing Team 96
3 Eyvindur Johannsson BA 79

A/D flokkur (6,90) áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Egill stefán jóhannsson BA Ford mustang 115
2 Ómar M.H Zarioh BA Ford Maverick 96

A/E flokkur (7,50) áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Brynjar Nova Kristjánsson BA Chevy Nova 116
2 Karl Bóasson BA Ford mustang 95
3 Robert Hjorleifsson KK Dodge Dart Team B.Racing 78
4 Lúðvík Lúðvíksson BA Chevrolet caprice 69

A/F flokkur (8,10) áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Pétur friðrik Steinþórsson BA Chevy Camaro 116
2 Hinrik Máni BA Chevrolet Camaro 95

A/G flokkur (8,70) áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Jón Rúnar Rafnsson BA Dodge Dart GTS 340 116
2 Karitas Anna Fossberg BA Dodge Ram 95
3 Karl Óskar BA 1974 Plymouth Duster 0
4 Andri Þrastarson BA Suzuki gsxr1000 0

J flokkur

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Jón Rúnar Rafnsson BA 116.0
2 Pétur friðrik Steinþórsson BA 116.0
3 Brynjar Nova Kristjánsson BA 116.0
4 Einar Rafn Einarsson BA 115.0
5 Egill stefán jóhannsson BA 115.0
6 Ómar M.H Zarioh BA 96.0
7 HH Racing Team BA 96.0
8 Karitas Anna Fossberg BA 95.0
9 Karl Bóasson BA 95.0
10 Hinrik Máni BA 95.0
11 Eyvindur Johannsson BA 79.0
12 Team B.Racing KK 78.0
13 Lúðvík Lúðvíksson BA 69.0
14 Andri Þrastarson BA 0.0
15 Karl Óskar BA 0.0