Torfæruklúbburinn heldur 2 umferð Bikarmótsins í Torfæru laugardaginn 30 ágúst.
Keppnin verður haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppnarinnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppnarinnar.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Upplýsingartafla keppnarinnar er rafræn á slóðinni: http://nn.is/q4XJf
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir (með fyrirvara um óvæntar uppákomur)
06:00 Pittur opnar / Mæting keppenda
06:30 Skoðun keppnisbíla hefst við pitt
08:00 Pittur lokar
08:15 Keppendafundur og brautaskoðun
09:00 Skoðun lýkur
09:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið
10:00 Keppni hefst
12:30 Hlé 30 mín (eftir loknum akstri 2 brautar )
17:00 Áætluð keppnislok
17:05 Úrslit birt
17:35 Kærufrestur lýkur
17:45 Verðlaunaafhending við stjórnstöð
TK
Keppnisstjóri: Jóhann Daði Pálmason
Aðstoðarkeppnisstjóri: Sigurður Ingi Sigurðsson
Öryggisfulltrúi: Þorvaldur Björn Matthíasson
Skoðunarmaður: Þorvaldur Björn Matthíasson
Formaður dómnefndar: Ragnar Róbertsson
Dómnefnd 1: Benedikt Óskar Ásgeirsson
Dómnefnd 2: Tryggvi Magnús Ragnarsson
Framkvæmdanefnd:
Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir
30. ágúst 2025 kl: 10:00
Torfærusvæði í Stangarhyl
Lýsing:
Malarnáma
Torfæra
Bikarmót Torfæra - 2 umferð
Skráning hefst: 14. ágúst 2025 kl: 14:00
Skráningargjald: 12500 kr.-
Skráningargjald hækkar 22. ágúst 2025: 25000 kr.-
Skráningu lýkur: 24. ágúst 2025 kl: 17:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
Upplýsingartafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/q4XJf
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvaðanir dómnefndar og annað sem skylt er eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
1.1 Keppnin heitir SA smíðar Torfæran og er 2 umferð bikarmótsins.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæra og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Torfærusvæði í Stangarhyl við Laugavatnsveg laugardaginn þann 30. ágúst 2025 kl: 10:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Torfæruklúbburinn, til heimilis að Heiðargerði 4.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis Heiðargerði 4 Selfoss.
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðavottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki, samtal um það bil 70 -800 metra langar en þó getur verið breytilegar milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé.
4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistækið í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé að loknum akstri síðustu þrautar þar til að dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Götubílar - Street Legal
5.1.1.b Sérútbúnir - Unlimited
5.1.1.c Sérútbúnir götubílar - Modified
5.1.2 Ökutæki sem standast öll þau skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
.
6.1 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.2 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.3 Skráningu lýkur þann 24 ágúst 2025 17:00
6.4 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 15000 og felur það í sér:
6.4.a þátttökurétt í keppninni;
6.4.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
6.4.c Hærra keppnisgjald verður frá 22 ágúst 2025 kl 17:01 og er 25000 kr
6.5 Leyfilegt er að skrá 2 ökumenn á sama ökutækið.
6.5.1 Ef skráningar í keppnina eru fleiri en 25 fellur grein 6.5 niður.
7.1 Öll ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini sí samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1. Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini sí samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1. Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppandi skal merkja ökutækið sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnisgreinareglum AKÍS fyrir Torfæru.
9.2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götuíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir keppendur sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá Keppnisráði AKÍS í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl 9:55
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 10:00
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingartöflu keppnarinnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í keppnisgreinareglum AKÍS fyrir torfæru.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar og Sérútbúnir Götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum, http://nn.is/q4XJf
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur um dróna
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um Torfæra.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Ragnar Róbertsson sem jafnframt er formaður hennar, Benedikt Óskar Ásgeirsson og Tryggvi Magnús Ragnarsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Daði Pálmason.
14.2.1.a Aðstoðarkeppnisstjóri er Sigurður Ingi Sigurðsson
14.2.2 Skoðunarmaður er Þorvaldur Björn Matthíasson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Þorvaldur Björn Matthíasson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: TK
Keppnisgjald: 12500 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
---|---|---|---|---|
Andri Már Sveinsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Cowboy | |
Bjarnþór Elíasson | START | Sérútbúnir - Unlimited | Olsen Olsen | |
Björn Vignir Ingason | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Bomban | |
Daníel G. Ingimundarson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Green Thunder | |
Finnur Aðalbjörnsson | BA | Sérútbúnir - Unlimited | Refurinn | |
Gauti Moller | BA | Sérútbúnir - Unlimited | Skuggi | |
Grimur Helguson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Brjála II | |
Guðlaugur Sindri Helgason | START | Sérútbúnir - Unlimited | Olsen | |
Guðmundur Elíasson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Ótemjan | |
Gunnar Gauti Valgeirsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Jóker | |
Gunnar Valgeir Reynisson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Batman | |
Haukur Þorvaldsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Joker | |
Hreiðar örn Svansson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Insane | |
Páll Jónsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Rollan | |
Pétur viðarsson | START | Sérútbúnir - Unlimited | Skarfurinn | |
Sigurður Elías Guðmundsson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Thor | |
Sigurður Gýmir Bjartmarssson | TK | Sérútbúnir - Unlimited | Draumurinn | |
Sigursteinn Sumarliðason | AÍH | Sérútbúnir - Unlimited | Leigutíkin |