Keppnin heitir 2. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.
Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 4.Desember 2026
Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
Keyrt verður á Oulton Park International
Stillt verður á 1.Mars og veður er sjálfgefið af iRacing.
Æfing opnar kl 19:00
Keppendafundur kl 19:40
Tímataka hefst kl 20:00
Kælitími milli tímatöku og keppni hefst 20:15
Kappaksturslota hefst kl 20:20 og er ekið í 180.9km, fylgist vel með bensíni.
KK
Keppnisstjóri: Hinrik Haraldsson
Öryggisfulltrúi: Tryggvi Magnús Ragnarsson
Skoðunarmaður: Valgeir Hugberg Geirmundsson
Formaður dómnefndar: Viktor Böðvarsson
Dómnefnd 1: Jón Brynjar Berglindarson
Dómnefnd 2: Valgeir Hugberg Geirmundsson
Framkvæmdanefnd:
Aron Óskarsson og Hinrik Haraldsson.
4. desember 2025 kl: 19:00
GT Akademían
Lýsing: Hermakappakstur
Hermikappakstur
Íslandsmeistaramót í hermikappakstri - 2. umferð
Skráning hefst: 6. nóvember 2025 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 4. desember 2025 kl: 17:00
Formula 4
Upplýsingartafla keppnarinnar fimmtudaginn 4 desember er á þessari slóð
https://docs.google.com/document/d/1xdnOB1_JDQf5XxfDM7VqWWemV_2sgedtU1HpHftxkWw/edit?tab=t.0
SÉRREGLUR Keppni 2 - Oulton Park í mótaröð Íslandsmeistaramót í hermikappakstri - 2. umferð
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.
1.2 Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Hermikappakstur.
1.3 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram í GT Akademían
Hermakappakstur
þann 4. desember 2025 kl: 19:00.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Aron Óskarsson, Hinrik Haraldsson.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis GT Akademína faxafeni 14.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.
4.1.2 Keyrt verður á Oulton Park International.
4.1.3 Leikurinn verður stilltur á 1.Mars og veður er sjálfgefið af iRacing við keyrslu í æfingum, tímatökum og keppnum.
4.1.3 Keyrt verður ekið í 180.9km, fylgist vel með bensíni..
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Formúla 3 - Dallara F3
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Fjöldi keppenda sem geta skráð sig til keppni er ótakmarkaður.
6.1a Fjöldi ökutækja í keppni er 30.
6.1b Ef skráning fer umfram 30 keppendur fer fram úrtökutímataka til að skera úr um þátttökurétt.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 2025-12-04 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. [HÉR VANTAR UPPLÝSINGAR] og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Allir keppendur skráðir til keppni fá að ræsa nema komi til úrtökutímatöku (sbr. reglu 6.1b).
GREIN 9.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Keyrt verður á Oulton Park International
Stillt verður á 1.Mars og veður er sjálfgefið af iRacing.
Æfing opnar kl 19:00
Keppendafundur kl 19:40
Tímataka hefst kl 20:00
Kælitími milli tímatöku og keppni hefst 20:15
Kappaksturslota hefst kl 20:20 og er ekið í 180.9km, fylgist vel með bensíni.
9.2.1.a Æfing 1 er ræst klukkan 15:00. Ræst er úr pitti.
9.2.1.b Æfing 2 er ræst klukkan 16:00. Ræst er úr pitti.
9.2.1.c Keppendafundur fer fram kl. 16:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara.
9.2.1.d Tímatökuæfing er ræst klukkan 17:10. Ræst er úr pitti.
9.2.1.e Fyrri kappaksturslota er ræst klukkan 17:33. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.
9.2.1.f Seinni kappaksturslota er ræst klukkan 18:10. Ræst er úr kyrrstöðu og ekið í 30 mínútur.
GREIN 9.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
9.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu, annars sér iRacing forritið um þessa hluti að öllu leyti.
9.3.2 Röð keppenda við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasti keppandi ræsir fremst, þá næst hraðasti og svo koll af kolli.
9.3.2.a Röð keppenda við ræsingu seinni kappaksturs ræðst af úrslitum fyrri kappaksturs í öfugri röð. Fyrsta sæti byrjar aftast, annað sæti næst aftast, og svo koll af kolli.
9.3.3 Keppandi má ræsa frá þjónustusvæði ef hann kýs, eða ef aðstæður krefjast þess (svo sem tækjabilanir, og vandamál við tengingu).
GREIN 10 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
10.1 Keppendur skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
10.1.a Sé keppandi ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
10.2 Keppendur skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefslóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/527. - Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
10.5 Keppendum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
GREIN 11 ÚRSLIT
11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.
11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og keppnisstjórn hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 12 VERÐLAUN
12.1 Ekki eru veitt verðlaun fyrir úrslit í þessari umferð íslandsmótsins umfram þau stig til íslandsmeistara sem greinarreglur kveða á um.
GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 13.1 DÓMNEFND
13.1.1 Dómnefnd skipa Viktor Böðvarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Jón Brynjar Berglindarson og Valgeir Hugberg Geirmundsson.
GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN
13.2.1 Keppnisstjóri er Hinrik Haraldsson.
13.2.2 Skoðunarmaður er ekki skipaður fyrir þessa keppni sérstaklega.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Tryggvi Magnús Ragnarsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 13.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu upp að því marki sem því verður við komið í keppni af þessu tagi.
13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 13.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 13.5 STAÐREYNDADÓMARAR
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 1 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Patrekur Magnusson | KK | 35 | ||
| 2 | Gunnar Karl Vignisson | KK | 28 | ||
| 3 | Sigurgeir Lúðvíksson | BA | 25 | ||
| 4 | Þórhallur Ingi Jónsson | KK | 23 | ||
| 5 | Hákon Darri Jökulsson | KK | 20 | ||
| 6 | Alexander Hauksson | KK | 18 | ||
| 7 | Stefán Freyr Margrétarson | KK | 16 | ||
| 8 | Aron Breki Valgeirsson | KK | 14 | ||
| 9 | Vernharður Ravnaas | AÍH | 12 | ||
| 10 | Bjarni Jarl Sigurðsson | KK | 11 | ||
| 11 | Fenrir Þór Söndruson Ponzi | KK | 10 | ||
| 12 | Arnar Krisjánsson | KK | 9 | ||
| 13 | Jökull Einarsson | KK | 8 | ||
| 14 | Viktor smári þórðarson | AÍH | 0 | ||
| 15 | Jökull Einarsson | KK | 0 |