Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.
Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 20. Nóvember
Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
Keyrt verður á Spa
Hægt er að sjá veðurspá inní deildinni (leagues) í iRacing.
Æfing opnar kl. 19:00
Keppendafundur kl 19:40
Tímataka kl. 20:00
Keppni kl. 20:20 og er ekið í 180.9km(60mínútur)
KK
Keppnisstjóri: Ingólfur Arnarson
Öryggisfulltrúi: Tryggvi Magnús Ragnarsson
Skoðunarmaður: Valgeir Hugberg Geirmundsson
Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson
Dómnefnd 1: Ásta Andrésdóttir
Dómnefnd 2: Ingimundur Helgason
Framkvæmdanefnd:
Aron Óskarsson og Hinrik Haraldsson
20. nóvember 2025 kl: 00:00
GT Akademían
Lýsing:
Hermakappakstur
Hermikappakstur
Íslandsmeistaramót í hermikappakstri - 1.umferð
Skráning hefst: 6. nóvember 2025 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 2. desember 2025 kl: 00:00
Formula 4
Upplýsingatafla er rafræn og er aðgengileg hér
1.1 Keppnin heitir Umferð 1 fyrir Íslandsmeistaramót í hermikappakstri.
1.2 Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 4.desember 2025.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppni verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 8 skráningar
1.7 Frjáls viðgerð; Keppendum eru gefnar 2 frjálsar viðgerðir á bílum sínum.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipar Aron Óskarsson.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.
4.1.2 Keyrt verður á Oulton Park International
4.1.3 Hermirinn verður stiltur á 1.mars 2025 við keyrslu í æfingu, tímatöku og keppni.
4.1.3 Veður er ákveðið af keppnistjórn með því að ýta á Generate takkann.
4.1.3.a Veðurspá er hægt að sjá i Deildinni undir Leagues
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a FIA Formula 4
6.1 Hámarksfjöldi skráninga er 30.
6.1a Hámarksfjöldi ökutækja í keppni er 30.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 2.Desember 2025 klukkan 17:00.
6.5 Skráningar handhafa alþjóðlegra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.5.a Keppnisgjald handhafa alþjóðlegs keppnisskírteinis er 0 kr.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 2.500 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1.1 Allir keppendur skráðir til keppni fá að ræsa
9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
9.2.1.a Keppnis þjónn/server opnar kl.19:00 og æfing hefst. Ræst er frá þjónustusvæði.
9.2.1.b Keppendafundur fer fram kl. 19:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara.
9.2.1.c Tímatökuæfing er ræst klukkan 20:00. Ræst er frá þjónustusvæði.
9.2.1.d Kappaksturslota er ræst klukkan 20:20. Ræst er úr kyrrstöðu og eknir eru 42 hringir(180.9km) eða í 75 mín, hvort sem kemur fyrr.
9.3.1 Keppnisstjóri má ákveða röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu, annars sér iRacing forritið um þessa hluti að öllu leiti.
9.3.2 Röð keppenda við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasti keppandi ræsir fremst, næst hraðasti svo, og svo koll af kolli.
9.3.3 Keppandi má ræsa frá þjónustusvæði ef hann kýs, eða ef aðstæður krefjast þess (svo sem tækja bilanir, og nettenginga vesen)
10.1 Keppendur skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
10.1.a Keppenda fundur er haldinn á Discord rás GT Akademíunar
10.1.b Sé keppandi ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
10.1.c Keppendum er ekki heimilt að æfa akstur á braut á meðan á keppendafundi stendur.
10.2 Keppendur skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á Discord rás GT Akademíunar. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
10.5 Keppendum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
10.6 Keppendur skulu setja Hotkey takka í iRacing sem segir “Skoda!”, þennan takka er svo hægt að nota þegar brot á sér stað sem leikurinn getur ekki dæmt á og keppenda finnst vert að dómarar skoði, þegar ýtt er á takkann sendast skilaboð til keppnistjórnar sem skoðar málið.
10.6.a Setjið þennan texta án gæsalappa í reitinn og veljið takka til að binda við “/rc skoða!$”
10.7 Keppendur skulu hafa kveikt á og vera að senda Telemetry upplýsingar á Garage61 á meðan á keppni stendur, þetta er gert svo keppnisstjórn hafi kost á að skoða atvik eftir keppni með ítarlegri upplýsingum en ella.
10.8 Keppendur verða klára að minnsta kosti 50% keppni til að fá stig.
11. FRAMÚRAKSTUR
11.1 Að “verja” ökulínu fyrir komandi beygju: Bíll sem kemur inn á beinan kafla eftir beygju er heimilt að skipta um ökulínu eins og hentar þykir til þess að brjóta tog, svo fremi sem aftari bíll er umtalsvert (yfir eina sekúndu) fyrir aftan.
11.2 Leiðandi bíll má skipta um ökulínu tvisvar á beina kaflanum sé eltandi bíll innan við sekúndu á eftir.
11.3 Bílar teljast samsíða nemi framdekk eltandi bíls við afturdekk leiðandi bíls. Leiðandi bíll skal gefa eltandi bíl nægt pláss, og telst ekki hafa rétt á að verja ökulínu inn í beygju.
11.4 Það er á ábyrgð eltandi bíls að taka framúr með öruggum hætti og finna tækifæri til framúraksturs án þess að stofna akstri annarra í hættu.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og keppnisstjórn hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Veittir verða bikarar til 1-3 sætis.
14.1.1 Dómnefnd skipa Viktor Böðvarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Jón Brynjar Berglindarsson og Valgeir Hugberg Geirmundarsson
14.2.1 Keppnisstjóri er Hinrik Haraldsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er: Aron Óskarsson. Í þessari keppni sinnir skoðunarmaður því hlutverki að ganga úr skugga um að stillingar og tímasetningar séu réttar í hermiforriti.
14.3.1 Öryggisfulltrúi er ekki skipaður í þessari keppni þar sem hún á sér stað í sýndarheimi.
14.4.1 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður í þessari keppni þar sem hún á sér stað í sýndarheimi.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Skráningargjald: Frítt!
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Patrekur Magnusson | KK | 36 | ||
| 2 | Gunnar Karl Vignisson | KK | 28 | ||
| 3 | Sigurgeir Lúðvíksson | KK | 25 | ||
| 4 | Fenrir Þór Söndruson Ponzi | KK | 22 | ||
| 5 | Alexander Hauksson | KK | 20 | ||
| 6 | Þórhallur Ingi Jónsson | KK | 18 | ||
| 7 | Hákon Darri Jökulsson | KK | 16 | ||
| 8 | Viktor Smári Þórðarson | AÍH | 12 | ||
| 9 | Arnar Kristjánsson | KK | 12 | ||
| 10 | Bjarni Jarl Sigurðsson | KK | 10 | ||
| 11 | Stefán Freyr Margrétarson | KK | 9 | ||
| 12 | Aron Breki Valgeirsson | KK | 8 | ||
| 13 | Vernharður Ravnaas | AÍH | 7 | ||
| 14 | Jökull Einarsson | KK | 6 | ||
| 15 | Gunnlaugur Ásgrímsson | KK | 0 |