Sindra Torfæran 2026

Sindra Torfæran 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: karinnehf@hotmail.com

Lýsing

UMF Hekla heldur 1. umferð Íslandsmóts í Torfæru 2026 á Torfærusvæðinu við Hellu þann 2.5 2026

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Götubílar - Street Legal

Sérútbúnir - Unlimited

Sérútbúnir götubílar

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

upplýsingartafla keppninnar er rafræn á slóðinni: http://nn.is/Xy52E

Dagskrá

Föstudagur 1.5 '26

18:00 Pittur opnar

19:00 - 21;00 Skoðun keppnisbíla hefst við pitt

Laugardagur 2.5 '26

07:30 Skoðun keppnisbíla heldur áfram við pitt

08:15 Keppendafundur og brautarskoðun.

9:00 Skoðun lýkur

9:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið.

10:00 Keppni hefst

13:00 Hlé 30 mín (eftir braut nr. 3)

16:00 Áætluð keppnislok.

16:05 Úrslit birt. (kærufrestur byrjar).

16:35 Kærufrest lýkur.

16:45 Verðlaunaafhending við pitt

Skipuleggjandi

AÍNH

Keppnisstjóri: Kári Rafn Þorbergsson

Öryggisfulltrúi: Styrmir Grétarsson

Skoðunarmaður: Þorsteinn Valsson

Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson

Dómnefnd 1: Ingibjörg Jónína Steinsdóttir

Dómnefnd 2: Daníel Freyr Steinarsson

Framkvæmdanefnd:
Kári Rafn Þorbergsson, Stefán Smári Ásmundarson, Sigurður Haukur Einarsson, Styrmir Grétarsson, Rúnar Steinn Gunnarsson, Sigurþór Eiðsson, Hafsteinn Kristinsson, Helga Þóra Steinsdóttir, Ingibjörg Jónína Steinsdóttir,

Dagsetningar

2. maí 2026 kl: 10:00

Brautir og vegalengdir

Torfærusvæðið við Hellu
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Torfæra

Íslandsmeistaramót - 1.umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 10. apríl 2026 kl: 07:00

Skráningu lýkur: 25. apríl 2026 kl: 17:00

Götubílar - Street Legal: 5000 kr.-

Sérútbúnir - Unlimited: 5000 kr.-

Sérútbúnir götubílar - Modified: 5000 kr.-

Flokkar

Götubílar - Street Legal

Sérútbúnir - Unlimited

Sérútbúnir götubílar - Modified

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#1 - 10. apríl 2026 kl: 07:55
Upplýsingatafla

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Xy52E

 


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR 1. umferðar Íslandsmóts í torfæru 2. maí 2026 

 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Sindra torfæran og er 1. umferð Íslandsmóts í torfæru 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinar reglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram í Torfærugryfjum AÍNH við Gunnarsholtsveg, rétt austan við Hellu þann 2. maí 2026.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttanefnd UMF Heklu í samstarfi við Flugbjörgunarsveitina á Hellu.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Kári Rafn Þorbergsson, Stefán Smári Ásmundarson, Sigurður Haukur Einarsson, Styrmir Grétarsson, Rúnar Steinn Gunnarsson, Sigurþór Eiðsson, Hafsteinn Kristinsson, Helga Þór Steinsdóttir, Ingibjörg Jónína Steinsdóttir 

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Dynskálum 34, 850 Hellu. S: 849 0511

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 ÞRAUTIRNAR

4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.

4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki, hver 30-700 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka.

GREIN 4.2 PARC FERMÉ

4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé.
4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.

4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.2.a Sé ökutæki ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.

4.2.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé að loknum akstri síðustu þrautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Flokkur sérútbúinna
5.1.1.b Götubílaflokkur
5.1.1.c Flokkur sérútbúinna götubíla

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.2 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.3 Skráningu lýkur þann 25. apríl 2026 klukkan 17:00.

6.4 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 8.000

6.5 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.5.1 þátttökurétt í keppninni;
6.5.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.

8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER

9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnissgreinar reglum AKÍS fyrir torfæru (sjá nánar á slóðinni: https://reglur.akis.is/Codes/Torfæra/View

9.2 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun. 

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl. 9:55.
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl. 10:00.

10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1. um rásröð í keppnisgreinar reglum AKÍS fyrir torfæru.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir í þessari röð:  1. Götubílar, 2. Sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar blandað í rásröð.

10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppninni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Xy52E
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinar reglum AKÍS fyrir torfæru.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stiga- og tímaverðir hafa tekið þau saman.

12.4 Dómnefnd birtir lokaúrslit keppninnar á upplýsingatöflunni.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa: 

Aðalsteinn Símonarson, formaður dómnefndar, Ingibjörg Jónína Steinsdóttir og Daníel Freyr Steinarsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Kári Rafn Þorbergsson.

14.2.2 Brautarstjóri er Sverrir Norðfjörð.

14.2.3 Skoðunarmaður er Þorsteinn Valsson.

14.2.4 Öryggisfulltrúi er Styrmir Grétarsson.

14.2.5 Pittstjóri og tengiliður keppenda er Stefán Smári Ásmundarson.

14.2.6 Ráslínudómari er Reynir Örn Helgason

14.2.7 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef upp koma atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.7.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.8 Umhverfisfulltrúi er Írena Sólveig Sverrisdóttir Stolzenwald.

14.2.9 Nöfn staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir fyrstu ræsingu.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

 

Úrslit

Götubílar - Street Legal

Sérútbúnir - Unlimited

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Finnur Aðalbjörnsson BA Refurinn 20
2 Ingvar Jóhannesson TK Víkingurinn 17
3 Geir Evert Grìmsson TK Sleggjan 15
4 Andri Jamil Ásgeirsson TK Raptor 12
5 Andri Már Sveinsson TK Cowboy 10
6 Jón örn ingileifsson BA Thor 8
7 Guðmundur Elíasson TK Ótemjan 6
8 Bjarnþór Elíasson START Olsen Olsen 4
9 Daniel ingi Danielsson TK Green Thunder 2
10 Þórður Atli Guðnýjarson AÍNH Spaðinn 1
11 Guðlaugur Sindri Helgason START Olsen 0
12 Grimur Helguson TK Brjála II 0
13 Jóhann Gunnlaugsson TK Bleiki Pardusinn 0
14 Gauti Moller BA Skuggi 0
15 Thelma Lind Árnadóttir TK Túttan 0
16 Pálmi Freyr Gunnarsson TK Lightfoot 0
17 Sigurður Gýmir Bjartmarssson TK Draumurinn 0
18 Eðvald Orri Guðmundsson BA Pjakkurinn 0
19 Jón Þór Jónsson BA Svínið 0
20 Ingi Már Björnsson TK Bomban 0
21 Gunnar Guðjónsson KK Viðhaldið 0
22 Gunnar Valgeir Reynisson TK Jóker 0
23 Páll Jónsson TK Rollan 0
24 Sævar Benónýsson TK Móri 0
25 Ragnar Skúlason TK Mjallhvít 0

Sérútbúnir götubílar - Modified

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Brynjar Jökull Eliasson START Klakinn 20
2 Helgi Heiðar Jóhannesson BA Ruddi 17
3 Sævar Páll Stefánsson BA Járnkarlinn 15
4 Benedikt Helgi Sigfússon AÍNH Klakinn 12
5 Finnur Bárðarson TK Kletturinn 10
6 Gunnar Pálmi Pétursson BA Snáðinn - Ford 42 8

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Brynjar Jökull Eliasson START 20.0
1 Finnur Aðalbjörnsson BA 20.0
2 Helgi Heiðar Jóhannesson BA 17.0
2 Ingvar Jóhannesson TK 17.0
3 Sævar Páll Stefánsson BA 15.0
3 Geir Evert Grìmsson TK 15.0
4 Benedikt Helgi Sigfússon AÍNH 12.0
4 Andri Jamil Ásgeirsson TK 12.0
5 Finnur Bárðarson TK 10.0
5 Andri Már Sveinsson TK 10.0
6 Gunnar Pálmi Pétursson BA 8.0
6 Jón örn ingileifsson BA 8.0
7 Guðmundur Elíasson TK 6.0
8 Bjarnþór Elíasson START 4.0
9 Daniel ingi Danielsson TK 2.0
10 Þórður Atli Guðnýjarson AÍNH 1.0
11 Ragnar Skúlason TK 0.0
12 Sævar Benónýsson TK 0.0
13 Páll Jónsson TK 0.0
14 Gunnar Valgeir Reynisson TK 0.0
15 Gunnar Guðjónsson KK 0.0
16 Jón Þór Jónsson BA 0.0
17 Ingi Már Björnsson TK 0.0
18 Grimur Helguson TK 0.0
19 Jóhann Gunnlaugsson TK 0.0
20 Gauti Moller BA 0.0
21 Thelma Lind Árnadóttir TK 0.0
22 Pálmi Freyr Gunnarsson TK 0.0
23 Sigurður Gýmir Bjartmarssson TK 0.0
24 Eðvald Orri Guðmundsson BA 0.0
25 Guðlaugur Sindri Helgason START 0.0