1.umferð - Íslandsmeistaramót í Drifti

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: jokullgudm@gmail.com

Lýsing

DRIFT - 1.Umferð Íslandsmeistaramóts 2026

Skráningu lýkur 13.maí klukkan 17:00

Skráningargjald : 22.000 kr án akís gjalds

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur 1. umferð Íslandsmóts í drifti 2026 á Akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni þann 15. og 16.maí 2026.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Ökumenn mega hafa að hámarki 3 aðstoðarmenn með hverju keppnistæki og 1. spotter. ATH: þessir aðstoðarmenn þurfa að mæta áður en miðasala opnar svo að þeir fái frítt inn, miðasala opnar u.þ.b. klukkan 11:00.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
 

Dagskrá

Föstudagur 15.maí

17:00 Pittur opnar / mæting keppenda
18:15 Skoðun hefst
19:00 Pittur lokar
19:00 keppenda fundur / brautarlabb
19:15 Skoðun lýkur
19:15 Æfing byrjar
22:30 Æfingu lýkur
 

Laugardagur 16.maí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:30 Keppnisæfing allir
10:30 Keppnisæfing aðeins “tandem” akstur
11:00 Matarpása
11:30 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur 
14:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
17:30 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
 

Skipuleggjandi

AÍH

Keppnisstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson

Öryggisfulltrúi: Arnar Ísfeld

Skoðunarmaður: Sigurbergur Eiríksson

Formaður dómnefndar: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Dómnefnd 1: Birkir Rútsson

Dómnefnd 2: Hákon Darri Jökulsson

Dagsetningar

Frá: 15. maí 2026 kl: 18:00
Til: 16. maí 2026 kl: 17:00

Brautir og vegalengdir

Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is

Tegund/mótaröð

Drift

Íslandsmeistaramót - 1.umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 29. apríl 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 13. maí 2026 kl: 17:00

Flokkar

Götubílar

Minni götubílar

Opinn flokkur

SÉRREGLUR 1.umferð - Íslandsmeistaramót í Drifti í mótröð Íslandsmeistaramót - 1.umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir 1.umferð - Íslandsmeistaramót í Drifti.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH
850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
þann 15. maí 2026 kl: 18:00 til 16. maí 2026 kl: 17:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, til heimilis í Kapelluhrauni. 

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jökull Ýmir Guðmundsson

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur Félagshúsi AÍH, Kapelluhrauni

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 LEIÐIN

4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Ekið verður malbiksbraut AÍH

4.1.3 Leiðin er um það bil 400 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði inní félagshúsi en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 4.3 PARC FERMÉ

4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.

4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.

4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.

4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

5.1.3 Sjálfskiptingar eru leyfðar í Opna flokki ef þær eru stýrðar með handafli og eru með rafstýrða kúplingu.

5.1.3.a Allar gerðir sjálfskiptinga eru leyfðar í minni-götubíla flokki og götubíla flokki.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-05-13 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 22000

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;

9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa ef þau standast keppnisskoðun.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:

Laugardagur 16.maí

11:30 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur 
14:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur

 

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.

10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2020.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Minni götubílar, Götubílar og Opinn flokkur.

10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.

11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://docs.google.com/document/d/e/2PACX-1vRQmhjpLkmXhWOygrg2U01iDxaHeMn9KMDt-oOaJHp2oT3o8rUYpCVwj4vl74HI9GRCZAKTbySQ0ILH/pub

11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Þóra Kristín Flosadóttir, sem jafnframt er formaður hennar, Hákon Darri Jökulsson og Birkir Rútsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson

14.2.2 Skoðunarmaður er Sigurbergur Eiríksson

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Arnar Ísfeld

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR

14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.

Úrslit

Götubílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Michal Kujoth AÍH BMW e36 108
2 Bjarki már skúlason AÍH 98
3 Haukur Gíslason AÍH BMW E46 93
4 Kristján Árni Guðmundsson AÍH Nissan 240SX 81
5 Páll Heiðar Hlynsson AÍH Bmw e30 67

Minni götubílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Magnús Fannar Birgisson AÍH BMW 3 112
2 Aron ingi elsuson AÍH Bmw e36 103
3 Ísak Logi Erlingsson AÍH Bmw e36 88

Opinn flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sindri Már Ingimarsson AÍH BMW E92 110
2 Fabian Dorozinski AÍH bmw e30 103
3 Hrafnkell Rúnarsson AÍH BMW 3 86
4 Viktor Gudbergsson AÍH 81
5 Hafliði Harðarson AÍH Nissan S13 67
6 Víðir Tristan Víðisson AÍH 67