Afmælisáttungsmíla - Íslandsmót og bikarkeppni í áttungsmílu

Afmælisáttungsmíla - Íslandsmót og bikarkeppni í áttungsmílu

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: thoraflosa@gmail.com

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 1. umferð í áttungsmílu 23. maí 2026 á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.
Þessi keppni gildir jafnframt til stiga til bikarmeistara 2026.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
 A/G 8,70
 A/F 8,10
 A/E 7,50
 A/D 6,90
 A/C 6,30
 A/B 5,70
 A/A 5,10
 DS flokkur
 OF flokkur
Mótorhjól  
 MA/E 7,50 
 MA/D 6,90
 MA/C 6,30
 MA/B 5,70
 MA/A 5,10
 G+ flokkur
 G- flokkur
 B flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1.og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

10.30 móttaka keppenda hefst

10.45 skoðun hefst

11:00 pittur lokar

11.30 skoðun lýkur

11.45 keppendafundur

12.00 tímatökur hefjast

13.45 tímartökum lýkur

14:00 keppni hefst

17:00 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

17:30 kærufresti lýkur

Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut. 

Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki

Birt með fyrirvara um fjölda keppenda og þess háttar.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Öryggisfulltrúi: Jónas Freyr Sigurbjörnsson

Skoðunarmaður: Einar Þór Birgisson

Formaður dómnefndar: Arnar Smári Signýjarson

Dómnefnd 1: Vilberg Njáll Jóhannesson

Dómnefnd 2: Guðbjörg Jónsdóttir

Framkvæmdanefnd:
Vilberg Njáll Jóhannsson
Guðbjörg Jónsdóttir
Arnar Smári Signýjarson

Dagsetningar

23. maí 2026 kl: 14:00

Brautir og vegalengdir

Spyrnubraut BA
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Áttungsmíla

Íslandsmeistaramót Spyrna - 1. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 4. maí 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 21. maí 2026 kl: 17:00

*DS flokkur bíla: 12000 kr.-

*OF flokkur bíla: 12000 kr.-

A/A flokkur (5,10) bílar: 12000 kr.-

A/B flokkur (5,70) bílar: 12000 kr.-

A/C flokkur (6,30) bílar: 12000 kr.-

A/D flokkur (6,90) bílar: 12000 kr.-

A/E flokkur (7,50) bílar: 12000 kr.-

A/F flokkur (8,10) bílar: 12000 kr.-

A/G flokkur (8,70) bílar: 12000 kr.-

Flokkar

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

A/C flokkur (6,30) bílar

A/D flokkur (6,90) bílar

A/E flokkur (7,50) bílar

A/F flokkur (8,10) bílar

A/G flokkur (8,70) bílar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmanefnd - Til: Allra

#3 - 23. maí 2026 kl: 11:41
Slóði inná upplýsingatöflu betri útfærsla

Þægilegri slóði inná Upplýsingartafla

https://docs.google.com/document/d/1JpzwHw1gu7HpL2JJ9P-hH_yASLHBw30SXdV7BJ-nXp8/edit?tab=t.0


Frá: Framkvæmanefnd - Til: Allra

#2 - 19. maí 2026 kl: 21:34
Slóði inná upplýsingatöflu

Hér er slóði inná lifandi upplýsingatöflu 

https://docs.google.com/document/d/1JpzwHw1gu7HpL2JJ9P-hH_yASLHBw30SXdV7BJ-nXp8/edit?usp=sharing


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

#1 - 13. maí 2026 kl: 16:41
Breyting á dómnefnd

Í stað Vilbergs Njáls Signýjarsonar mun koma Hrefna Björnsdóttir í 1 sæti dómnefndar.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR Afmælisáttungsmíla - Íslandsmót, 1. umferð og bikarmót 1. umferð í áttungsmílu í mótröð

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Afmælisáttungsmíla - Íslandsmót og bikarkeppni í áttungsmílu.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg 13 þann 23. maí 2026 kl: 14:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur 13, 603 Akureyri. 

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa

Vilberg Njáll Jóhannsson
Guðbjörg Jónsdóttir
Arnar Smári Signýjarson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í húsnæði Bílaklúbbur Akureyrar.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i A/G
5.1.1.a.ii A/F
5.1.1.a.iii A/E
5.1.1.a.iv A/D
5.1.1.a.v A/C
5.1.1.a.vi A/B
5.1.1.a.vii A/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MA/E
5.1.1.b.ii MA/D
5.1.1.b.iii MA/C
5.1.1.b.iv MA/B
5.1.1.b.v MA/A
5.1.1.b.vi G +
5.1.1.b.vii G -
5.1.1.b.viii B

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-05-20 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 12000. ( 12000 kr skráningargjald og 3000 kr AKÍS gjald) 

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/546.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Arnar Smári Signýjarson, sem jafnframt er formaður hennar, Vilberg Njáll Jóhannesson og Guðbjörg Jónsdóttir.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.

14.2.2 Skoðunarmaður er Einar Þór Birgisson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jónas Freyr Sigurbjörnsson.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Davið Þór Einarsson KK Suzuki Hayabusa 0

A/A flokkur (5,10) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Fawaz al shebli KK Fawaz 70

A/B flokkur (5,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ágúst Halldórsson KK Chevrolet Thrillbilly´s racing 0
2 Sigurbjörg Björgvinsdóttir KK Plymouth Sport Fury 0

A/C flokkur (6,30) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Karl óskar Geirsson
Aðst: Sverrir Yngvi Karlsson
BA
BA
Ford mustang 96
2 Björgvin Þórsson BA FORD MUSTANG 80
3 Einar Rafn Einarsson BA Einar Birgisson 69
4 Halldór Hauksson BA Chevrolet Nova 58
5 Sævar Páll Stefánsson BA Mercury Comet GT 0
6 Tryggvi Magnús Ragnarsson STIMPILL Camaro 0

A/D flokkur (6,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Brynjar Nova Kristjánsson BA Chevy Nova 115
2 Haukur Örn Halldorsson BS Chevy Pinto 112
3 Egill stefán jóhannsson BA Ford mustang Slow Racing 96

A/E flokkur (7,50) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hafdís Alma Einarsdóttir BA Chevrolet Corvette 116
2 Karl Bóasson BA Ford mustang 95

A/F flokkur (8,10) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurður Karlsson BA Subaru 5300 116
2 Eyþór Axel Júlíusson BA HH Racing Team 95
3 Pétur friðrik Steinþórsson BA Chevy Camaro 0
4 Hinrik Máni BA Chevrolet Camaro 0

A/G flokkur (8,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Jón Rúnar Rafnsson BA Dodge Dart GTS 340 116
2 Karitas Anna Fossberg BA Dodge Ram 94
3 Tómas Rafn Harðarson BA 78
4 Ásgeir Bragason BA Benz e500 57
5 Karles Randversson BA Nissan pathfinder 55
6 Viktor orri ingason BA Volvo 940 44
7 Árni Jóhann Arnarsson BA Chevrolet Nova 33
8 Hrafnhildur Brynja Vilbergsdóttir BA BMW 32
9 Sveinn Saraphat Þórarinsson BA Opel Astra H OPC 0

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Jón Rúnar Rafnsson BA 116.0
2 Hafdís Alma Einarsdóttir BA 116.0
3 Sigurður Karlsson BA 116.0
4 Brynjar Nova Kristjánsson BA 115.0
5 Haukur Örn Halldorsson BS 112.0
6 Slow Racing BA 96.0
7 HH Racing Team BA 95.0
8 Karitas Anna Fossberg BA 94.0
9 Björgvin Þórsson BA 80.0
10 Tómas Rafn Harðarson BA 78.0
11 Fawaz al shebli KK 70.0
12 Einar Rafn Einarsson BA 69.0
13 Halldór Hauksson BA 58.0
14 Ásgeir Bragason BA 57.0
15 Karles Randversson BA 55.0
16 Viktor orri ingason BA 44.0
17 Árni Jóhann Arnarsson BA 33.0
18 Hrafnhildur Brynja Vilbergsdóttir BA 32.0
19 Hinrik Máni BA 0.0
20 Sveinn Saraphat Þórarinsson BA 0.0
21 Tryggvi Magnús Ragnarsson STIMPILL 0.0
22 Davið Þór Einarsson KK 0.0
23 Pétur friðrik Steinþórsson BA 0.0
24 Sævar Páll Stefánsson BA 0.0
25 Thrillbilly´s racing KK 0.0