1.Umferð Íslandsmóts í Rallycrossi

1.Umferð Íslandsmóts í Rallycrossi

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: hannarunragnars@gmail.com

Lýsing

1.umferð  Íslandsmótsins í Rallycross - 23.Maí 2026  

 

 Skráningu lýkur 20.Maí klukkan 17:00

Skráningargjald : 24.000 kr án akís gjalds

Unglingar : 12.000 kr án akís gjalds 

Ekki þarf að setja afsláttarkóða fyrir unglinga, rétt verð kemur þegar flokkur er valin

Minni á reglur Rallycross

https://reglur.akis.is/Codes/125/View - Rallycross 2026

og sérreglur sem finna má á þessari síðu

 

 

 

Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Hönnu Rún  S:692 9594 eða hannarunragnars@gmail.com


Þeir sem eru með séróskir um keppnisnúmer geta sent í tölvupósti á keppnisstjóra ekki seinna en 19.Maí. Eftir það verða séróskir ekki teknar fyrir. Þeir sem voru með sérnúmer í fyrra þurfa að senda aftur annars fáið þið númer eftir stöðu í íslandsmóti 2025.

 

ATH 

 Skráningu lýkur 20.maí 2026 klukkan 17:00

Dagskrá

Dagskrá 

7:30 Svæðið opnar
Þegar bíll er tekinn af kerru eða mætir þarf hann að keyra hægan hring til að athuga hvort kubbur virki(mikilvægt að vera búinn að setja kubbinn í ) áður en lagt er í stæði
8:00 Mætingarfrestur liðinn - ATH  mæting seinna gæti leitt til refsingar.
8:00 - 10:00 Skoðun - Tímataka
Skoðun fer fram í stæði, ökumaður gerir sig tilbúinn að fara beint í tímatöku ef bíllinn öðlast skoðun.
Fundur með keppendum eftir tímatöku
10:30 Starfsmannafundur
11:00  keppni hefst

Keyrum heat 1 og 2,  tökum ca 20 min hlé og svo verða keyrð heat 3 og 4

18:00 áætluð keppnislok

Skipuleggjandi

AÍH

Keppnisstjóri: Hanna Ragnarsdóttir

Aðstoðarkeppnisstjóri: Hanna Lísa Hafsteinsdóttir

Öryggisfulltrúi: Magnús Ingolfsson

Skoðunarmaður: Elvar Smári Jónsson

Formaður dómnefndar: Sigurður Arnar Pálsson

Dómnefnd 1: Gunnar Bjarnason

Dómnefnd 2: Jökull Ýmir Guðmundsson

Framkvæmdanefnd:
AÍH

Dagsetningar

23. maí 2026 kl: 11:00

Brautir og vegalengdir

Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is

Tegund/mótaröð

Rallycross

Íslandsmeistaramót -

Skráningargjöld

Skráning hefst: 30. nóvember -1 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 20. maí 2026 kl: 17:00

1400 flokkur: 24000 kr.-

2000 flokkur: 24000 kr.-

4x4 Non Turbo: 24000 kr.-

Opinn flokkur: 24000 kr.-

Standard 1000cc flokkur: 24000 kr.-

Unglingaflokkur: 12000 kr.-

Unglingaflokkur - Byrjenda: 12000 kr.-

Flokkar

1400 flokkur

2000 flokkur

4x4 Non Turbo

Opinn flokkur

Standard 1000cc flokkur

Unglingaflokkur

Unglingaflokkur - Byrjenda

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdarnefnd - Til: Allra

#1 - 18. maí 2026 kl: 11:51
Upplýsingartafla

Upplýsingartaflan er Google Doc skjal og má nálgast hana hér https://docs.google.com/document/d/1PPzq23XzL3ioWI2XG5gskWlWtV1y63u5bj9MXMVP2AU/edit?tab=t.0


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR 1.Umferð Íslandsmóti Rallycrossi 2026 

GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir 1.Umferð í Íslandsmóti í Rallycrossi 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rallycross og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH
850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
, þann 23. maí 2026 kl: 11:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.


GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar.


GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Hanna Rún Ragnarsdóttir, Guðmundur Örn Þorsteinsson og Páll Pálsson.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði AÍH í Hafnarfirði.


GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Ekið verður Réttsælis um brautina, ef þessi regla breytist mun það koma fram á upplýsingatöflunni.

4.1.3 Brautin er 850 metra löng

4.1.4 Hver riðill er meira en 5 hringir, eða u.þ.b. 4.650 m.
4.1.4. a Þegar fyrsta ökutæki í riðli ekur í 6. skipti yfir endalínu er flaggað á það til merkis um lok riðils.
4.1.4. b Öll önnur ökutæki í riðlinum verða flögguð út í næsta sinn sem þau fara yfir endalínu.


GREIN 5 SKRÁNING

5.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.1a Lágmarksskráning í byrjendaflokk eru 3 skráningar, ef ekki næst lágmark í þann flokk verður hann sameinaður almenna Unglingaflokknum.

5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.mot.akis.is

5.4 Skráningu lýkur miðvikudaginn 20.maí 2026 17:00 

5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

5.6 Almennt skráningargjald án Akís gjalds er kr. 24.000  
5.6a Unglingaflokkur greiðir án Akís gjalds kr. 12.000  verð reiknast sjálfkrafa fyrir unglingaflokk

5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.1 þátttökurétt í keppninni;
5.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS bætist svo við.

5.8 Leyfður fjöldi aðstoðarbíla(servicetækja) er 1 fyrir hvern skráðan keppnisbíl.


 

GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu og tryggingaviðauka.

6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara gegn 3.aðila.

6.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.



GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.

7.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófi er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

7.1.2 Hafi ökumaður misst ökuréttindi má hann ekki keppa.

7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu rafrænu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.

7.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.



GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR

8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur, og skal hann vera kominn í áður en farið er í öryggisskoðun. Ekki er hægt að ábyrgjast virkni tímatökukubbs.

8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.

8.2.a Virki ekki tímasendir áður en tímatökur hefjast er ekki hægt að leyfa ökutæki að keyra auka tímatökuhring og fengi viðkomandi þá max tíma.

8.2.b Tímatökusendir á að vera staðsettur í hægri hjólaskál bíls.

8.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.

8.4 Hægt er að styðjast við tímatökubúnað í keppni ef dómnefnd þykir ástæða til.

8.5 Ef tímatökubúnaður virkar ekki, áskilur keppnisstjóri sér að nota skeiðklukku í tímatöku



GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Öll ökutæki sem standast skoðun á keppnisdegi fá heimild til að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:

10.2.1.a Tímatökur hefjast strax að lokinni öryggisskoðun. Ræst á ferð án fylgdarbíls.

10.2.1.a.i Í tímatökum ekur hvert ökutæki einn tímamældan hring

10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil Kl 11:00 Ræst úr kyrrstöðu

 GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.

10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1. heat ræðst af grein 3.8.5 í rallycross reglum.

10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þeirri röð sem keppnistjóri ákveður.

10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.

10.3.5 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.9.3 Keppnisgreinareglum fyrir rallycross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.

10.3.5.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.

10.3.5.b Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.

Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.

10.3.5.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.

10.3.5.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.

10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 10 verður þeim skipt upp í riðla.

10.3.6.a Ef fjöldi ökutækja er 11-20:

10.3.6.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.

10.3.6.a.ii Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.

10.3.6.a.iii Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.

10.3.6.b Ef fjöldi ökutækja er 21-30:

10.3.6.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.

10.3.6.b.ii Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.

10.3.6.b.iii Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.

10.3.6. iiiii Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.

10.3.6. iiiiii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.



GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan. Forráðamaður skal fylgja unglingi á þennan fund. Keppandi og/eða forráðamaður þurfa að skrá sig við komu á fund hjá keppnisstjórn.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.

11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður rafræn inná skráningarforminu.
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4A Timamörk kæru eru 15 min eftir að riðli lýkur 

11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:

11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;

11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.

11.6 Hver sá sem áreitir keppnisstjóra, dómara eða aðra starfsmenn keppninnar eftir að keppni lýkur geta fengið áminningu á þann keppenda sem hann fer fyrir.



GREIN 13 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
13.2 Bikarmeistari er sá sem hefur flesta fjölda stiga eftir öll 4 heatin ef einhver er jafn að stigum þá ræður úrslitum sá sem var hraðari í tímatökum.


GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Sigurður Arnar Pálsson sem jafnframt er formaður hennar, Gunnar Bjarnason og Jökull Ýmir Guðmundsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Hanna Ragnarsdóttir.
14.2.1a Aðstoðar keppnisstjóri : Hanna Lísa Hafsteinsdóttir

14.2.2 Skoðunarmaður er Elvar Smári Jónsson, ásamt aðstoðarmönnum.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Magnús Ingólfsson.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Eru staðsettir umhverfis brautina og á ráslínu.
14.5.1.a. Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.

GREIN 3.11 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA  
3.11.1

Sá ökumaður sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.

 
3.11.2

Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum hvers flokks samkvæmt eftirfarandi töflu:

  1. sæti : 20 stig
  2. sæti : 17 stig
  3. sæti : 15 stig
  4. sæti : 13 stig
  5. sæti : 12 stig
  6. sæti : 11 stig
  7. sæti : 10 stig
  8. sæti : 9 stig
  9. sæti : 8 stig
  10. sæti : 7 stig
  11. sæti : 6 stig
  12. sæti : 5 stig
  13. sæti : 4 stig
  14. sæti : 3 stig
  15. sæti : 2 stig
  16. sæti : 1 stig
 
3.11.3

Að auki eru gefin stig til Íslandsmeistara hvers flokks þannig að fyrir:

 
3.11.3.a

sæti í úrslitum riðla eru gefin stig samkvæmt eftirfarandi töflu:

  1. sæti : 10 stig
  2. sæti : 9 stig
  3. sæti : 8 stig
  4. sæti : 7 stig
  5. sæti : 6 stig
  6. sæti : 5 stig
  7. sæti : 4 stig
  8. sæti : 3 stig
  9. sæti : 2 stig
  10. sæti : 1 stig
 
3.11.3.b

fyrir hraðasta hring í tímatökum eru gefin 3 stig til Íslandsmeistara, fyrir næst hraðasta hring 2 stig og þriðja hraðasta hring 1 stig.

 

 

Grein 16.0 Refsingar og fleira

Mótmæli og kærur eru teknar fyrir samkvæmt reglum Akís og sérreglum keppninar.

Aðeins keppandi (ef keppandi skráði sig sjálfur í keppni)eða samkeppnisaðili getur sent inn kærur og áfrýjun.

Allar kærur verða vera afhentar á réttu formi samkv. Reglum Akís (Kærur skulu gerðar samkvæmt ISC. Undirritaðar kærur ásamt kærugjaldi skulu afhentar keppnisstjóra eða staðgengli hans innan tilsetts kærufrests. Kærugjald er samkvæmt gjaldskrá Akís, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar.) hún verður að vera undirrituð af keppanda og verður að innihalda hvaða reglu/brot er verið að kæra.

Hægt er að skjóta málum til almennrar dómnefndar AKÍS til samræmis við reglur

Allar kærur verða vera lagðar fram með kærugjaldi sem er 50.000 kr.

Ef kæru upphæð fylgir ekki með, er kæra ekki tekin gild.

Kæra sem felur í sér rif á bíl er aukagjald:  40.000 kr.

Kostnaður sem verður vegna rif á bíl eru borguð af:

Þeim sem leggja fram kæru, ef hún á ekki við rök að styðjast

Keppanda, ef kæra á við rök að styðjast

Tímamörk til að leggja fram kærur:

 Kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit eru birt, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar

Mótmæli um að ökutæki standist ekki reglur í flokk verða vera komin fram ekki seinna en 15mín eftir að riðli lauk (úrslit úr riðli).

Mótmæli um gang keppninnar, úrslit eða dóma, verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að riðli lýkur sem við á.

Mótmæli um ákvörðun brautarstjóra verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að ákvörðunin var auglýst á uppl.töflu.

Mótmæli geta verið tekin fyrir eftir tímamörk, einungis ef Dómnefnd telur að ástæðan á töfini sé hlutlæg og sanngjörn

Tímasektir og ekki gefið rásleyfi útaf komið of seint á ráslínu er ekki hægt að áfrýja

Áfryjanir: eru samkv reglum Akís og sérreglum keppninnar

 

Úrslit

1400 flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Zilvinas Stonys AÍH hyundai i20 53
2 Bergrún Fönn Alexandersdóttir AÍH Suzuki Swift 43
3 Ívar Már Sigurpálsson AÍH Toyota Corolla 34
4 Sölvi örn Heiðarsson AÍH Honda Civic 31
5 Jón Birkir Árnason AÍH Toyota Yaris 31
6 Pálmar Henry Brynjarsson AÍH Chevrolet Spark 2012 30
7 Halldór Ólafsson AÍH Honda Civic 25

2000 flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hilmar Pétursson AÍFS Toyota corolla 53
2 Valdimar Kristinn Árnason AÍH Honda 41
3 Natan Nick Sverrisson BA Peugeot rc 206 34
4 Sverrir Snær Ingimarsson BA Peugeot 206 RC 17
5 Björgvin Freyr Leifsson AÍH Honda Civic 0

4x4 Non Turbo

Opinn flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Steinar Nòi kjartansson AÍH Dodge Stealth 50
2 Eva arnet Sigurðardóttir AÍH Subaru Impreza 40
3 Konrad Kromer AÍH Audi a4 36
4 Magnús Vatnar Skjaldarson AÍH Subaru Impreza 35
5 Jakob Pálsson AÍH Subaru Impreza 2008 2.0 32
6 Ívar Óli Magnússon AÍH Buggy 15
7 Ágúst Sverrir Danielsson KK MMc Lancer Evo4 9

Standard 1000cc flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Valdimar Kristinn Árnason AÍH Peugeot 107 50
2 Hergill Henning Kristinsson AÍH Toyota Yaris 45
3 Guðmundur Gauti Ívarsson AÍH Toyota Aygo 44
4 Helena Ósk Elvarsdóttir AÍH Toyota Aygo 36
5 Yngvi Rúnar Högnason AÍH Toyota Aygo 1000cc 36
6 Birkir Rútsson AÍH Kia Picanto 34
7 Sara Rún Hilmarsdóttir AÍH Toyota Aygo 31
8 Jökull Fannar Björnsson AÍH 27
9 Brynhildur Sesselja Hafsteinsdóttir AÍH yaris 27
10 Adam Stefaánsson AÍH Toyota aygo 26
11 Erla Sigríður Sigurðardóttir AÍH Toyota Yaris 24
12 Tómas Orri Kjartansson AÍH yaris 18
13 Jóhanna L'orange Magnúsdóttir AÍH Toyota Yaris 16
14 Brimrún Björgólfsdóttir AÍH Toyota Yaris 1.0 14
15 Deimante Konovaite AÍH Toyota Aygo 13
16 Guðbjörg Guðmundsdóttir AÍH Toyota aygo 10
17 Stefán Einar Þorsteinsson AÍH Toyota Yaris 0

Unglingaflokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Leó Geirsson AÍH toyota yaris 52
2 Alex Jamil Atlason AÍH 44
3 Elvar Smári Reynirsson AÍH Toyota aygo 40
4 Alexander Breki Þrastarson AÍH Toyota Yaris 39
5 Elías Páll Pálsson AÍH Toyota Aygo 36
6 Guðni Hrafn Baldursson BA 34
7 Sigurður Almar Guðnason AÍFS Toyota Aygo 31
8 Ari Fritz Ingvarsson AÍH Toyota Aygo 28
9 Sigurður Ágúst Alfreðsson BA Toyota Yaris 27
10 Guðmundur Baldvin Stefánsson BA Toyota Yaris 24
11 Þröstur Breki Hlífarsson AÍH Yaris 19
12 Friðrik Líndal Antonsson AÍH Vw Polo R 18
13 SIgrún Helga Ragnarsdóttir AÍH Citroen C1 17
14 Edda Björk Guðnadóttir AÍH Toyota Aygo 17
15 Sighvatur Óli Þorsteinsson AÍH Toyota Aygo 13
16 Elísa Rún Hilmarsdóttir AÍH Toyota Aygo 1.0 12
17 Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir AÍH Toyota Aygo 8
18 Elísabeth Ástrós Geirsdóttir AÍH Toyota Aygo 3

Unglingaflokkur - Byrjenda

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Eyþór Atli Jóhannsson AÍH Toyota Aygo 0
2 Margrét Rún Sighvatsdóttir AÍH Toyota aygo 0
3 Siggeir Sölvi Benediktsson TK Toyota Aygo 0
4 Erla Björt Árnadóttir AÍH Toyota Yaris 0
5 Bjarmi Dagur Pálsson AÍH Toyota Yaris 1000 rallycross 0
6 Brynjar Þór Hannesson AÍH Toyota Aygo 0
7 Kristján ísak jónsson AÍH Toyota Aygo 2005 0