BLIKK & TÆKNI sandspyrnan

BLIKK & TÆKNI sandspyrnan

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: hebbawaage@gmail.com

Lýsing

BLIKK & TÆKNI sandspyrnan verður haldin sunnudaginn 24  maí. Keppnin er jafnframt 1. umferð Íslandsmóts í sandspyrnu verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
Fólksbílar (F)
Útbúnir fólksbílar (ÚF)
Buggybílar (B)
Jeppar (J)
Útbúnir jeppar (ÚJ)
Sérsmíðuð ökutæki (S)
Opinn flokkur (O)

Mótorhjól Msí 
Unglingaflokkur (MU)
Unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

10:00 svæðið opnar

10:30 Mæting keppenda
10:35 Skoðun hefst
11:00 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur
12:00 Barnaflokkur er keyrður í 30 mínutur
12:45 Tímataka
14:00 Tímatöku lýkur
14:15 Keppni hefst
15:45 Áætluð keppnislok

Kærufrestur er í 30 mínutur eftir að bráðabirðaúrslit eru birt.

Verðlauna afhending á sandspyrnu braut við ljósin.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Öryggisfulltrúi: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Skoðunarmaður: Baldur Pálsson

Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson

Dómnefnd 1: Anna Jóna Garðarsdóttir

Dómnefnd 2: Vilberg Njáll Jóhannesson

Framkvæmdanefnd:
Einar Gunnlaugsson, Hrefna Björnsdóttir, Þóra Kristín

Dagsetningar

24. maí 2026 kl: 14:00

Brautir og vegalengdir

Sandspyrnubraut BA
Lýsing: 91,44 m

Tegund/mótaröð

Sandspyrna

Íslandsmeistaramót - 1 umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 6. maí 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 22. maí 2026 kl: 17:00

Buggybílar: 12000 kr.-

Fólksbílar: 12000 kr.-

Jeppar: 12000 kr.-

Opinn flokkur bíla: 12000 kr.-

Sérsmíðuð ökutæki: 12000 kr.-

Unglingaflokkur: 6000 kr.-

Útbúnir fólksbílar: 12000 kr.-

Útbúnir jeppar: 12000 kr.-

Flokkar

Buggybílar

Fólksbílar

Jeppar

Opinn flokkur bíla

Sérsmíðuð ökutæki

Unglingaflokkur

Útbúnir fólksbílar

Útbúnir jeppar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Dómnefnd og keppnisstjóra - Til: Keppenda

#2 - 22. maí 2026 kl: 14:12
Skráningarfrestur lengur

Vegna tækni vanda sem er búið að herja á okkur undanfarna daga, og viðrist halda áfram. Er búin að ákveða að framlengja frestinum til að skrá sig í sandinn til kl. 17:00 í dag 22. maí 2026. 


Frá: Framkvæmanefnd - Til: Allra

#1 - 20. maí 2026 kl: 20:59
Slóði inná upplýsingatöflu

Hér er slóði inná lifandi upplýsingatöflu 

Upplýsingatafla

https://docs.google.com/document/d/10fnmOPCJ933ZIEkMeIBU6H2jlmkCeRyvqU-zGeI2RhE/edit?usp=sharing


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR Blikk og Tækni sandspyrnan í mótröð Íslandsmeistaramót - 1 umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Blikk og Tækni sandspyrnan.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut BA
91,44 m
, þann 24. maí 2026 kl: 14:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegur 13.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa

Einar Gunnlaugsson
Anna Jóna Garðarsdóttir
Vilberg Njáll

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í húsnæði Bílaklúbbs Akureyrar.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.

4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir
MSÍ-Vélsleðar (V)
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar
.

5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.

5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-05-21 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Skráningargjald er kr. 12000 fyrir fullorðna og 6000 fyrir 12-17 ára og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það. 

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni  https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/549 .

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Anna Jóna Garðarsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.

14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jónas Freyr Sigurbjörnsson.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

Buggybílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Kristófer Daníelsson BA Can am maverick 116
2 Daníel Ó Sveinbjörnsson BA 95

Fólksbílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ásgeir Bragason BA Chevrolet malibu 10

Jeppar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Halldór Hauksson BA Willys 116
2 Ómar Friðriksson BA 80
3 Karles Randversson BA Nissan pathfinder 68

Opinn flokkur bíla

Sérsmíðuð ökutæki

Unglingaflokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigþór Árni Sigurgeirsson BA Oldsmobil 10

Útbúnir fólksbílar

Útbúnir jeppar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Jónas Freyr Sigurbjörnsson BA Ruddi 116
2 Hallur Hólm Stefánsson BA 95

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Halldór Hauksson BA 116.0
2 Kristófer Daníelsson BA 116.0
3 Karles Randversson BA 68.0
4 Sigþór Árni Sigurgeirsson BA 10.0
5 Ásgeir Bragason BA 10.0