Íslandsmótið í Götuspyrnu 2026 verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 20. júní næstkomandi.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar
- Bílar 4cyl
- Bílar 6cyl
- Bílar 8cyl "standard"
- Bílar 8cyl+
- Bílar 4x4
- Jeppaflokkur
- Rafmagnsbílar
- Bílar Super Street
- Bílar Outlaw hurðabílar
- Bílar Outlaw grindarbílar
- Bílar unglingaflokkur
- Mótorhjól F-hjól
- Mótorhjól Hippar undir 1100cc
- Mótorhjól Hippar 1100cc+
- Mótorhjól Krossarar
- Mótorhjól Götuhjól undir 800cc
- Mótorhjól Götuhjól 800cc+
- Mótorhjól Breytt götuhjól
Ef tímamörk leyfa verða einnig keyrðir allt flokkar bíla og hjóla að keppni lokinni.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:30 Pittur opnar / móttaka keppenda hefst
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:30 Tímatökur hefjast
14:15 Tímatökum lýkur
15:00 Keppni hefst
19:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
Kærufresti lýkur 30 mín eftir keppnislok.
Verðlauna afhending við stjórnstöð.
Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
BA
Keppnisstjóri: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
Öryggisfulltrúi: Jónas Freyr Sigurbjörnsson
Skoðunarmaður: Baldur Pálsson
Formaður dómnefndar: Arnar Smári Signýjarson
Dómnefnd 1: Guðbjörg Jónsdóttir
Dómnefnd 2: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
Framkvæmdanefnd:
Arnar Smári Signýjarson, Guðbjörg Jónsdóttir, Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
20. júní 2026 kl: 12:30
Spyrnubraut BA
Lýsing:
Götuspyrna
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 1. júní 2026 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 14. júní 2026 kl: 17:00
Bílar 4 cyl
Bílar 4x4
Bílar 6 cyl
Bílar 8 cyl
Bílar 8 cyl+
Bílar unglingaflokkur
Jeppaflokkur
Outlaw grindarbílar
Outlaw hurðabílar
Rafmagnsbílar (EV)
Super Street
Vegna orðalags í sérreglum.
Í grein 6.4 í sérreglum stendur: "Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000 innifalið er keppnisskirteini AKÍS"
Í stað þess á að standa : Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000kr auk keppnisskirteini AKÍS (3000 kr)
Sérreglur Götuspyrna Bíladaga 2026 í mótröð Íslandsmeistaramót -
Grein 1 Keppnin
1.1 Keppnin heitir Götuspyrna Bíladaga 2026.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinareglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Spyrnubraut BA, þann 20. júní 2026 kl: 12:30.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema veðri ekki til spyrnu með tilliti til öryggis keppenda og annara á svæðinu. Keppnistjóri, dómnefn og öryggisfulltrúi keppninnar taka ákvörðun um frestun komi sú staða upp.
1.5 Keppnin verður felld niður komi ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.6 Ef aðeins 1 skráning berst í flokk er honum heimilt að keyra "upp fyrir sig" svo framarlega að hann uppfylli flokkareglur í þeim flokki.
Grein 2 Keppnishaldari
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13, Akureyri.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Arnar Smári Signýjarson, Guðbjörg Jónsdóttir og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
Grein 4 Keppnissvæðið
4.1 Brautin hefur gilt leyfi til keppna í þeim flokkum sem keppt er í í götuspyrnu.
4.2 Akstursstefna brautar er frá austri til vesturs.
4.3 Lengd brautar er 201m í áttungsmílu (götuspyrnu).
Grein 5 Flokkun og útbúnaður ökutækja
5.1 Keppnisflokkar eru eftirtaldir:
5.1.1.a Bílar 4 cyl
Bílar 4x4
Bílar 6 cyl
Bílar 8 cyl
Bílar 8 cyl+
Bílar unglingaflokkur
Jeppaflokkur
MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)
MSÍ- mótorhjól Hippar +H
MSÍ- mótorhjól Hippar -H
MSÍ- mótorhjól Opinn flokkur (O)
MSÍ- mótorhjól Unglingaflokkur (MU)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)
MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)
Outlaw grindarbílar
Outlaw hurðabílar
Rafmagnsbílar (EV)
Super Street
.
Grein 6 Skráning
6.1 Engin takmörk eru á hámarks fjölda ökutækja sem skrá eru til keppni.
6.2 Skráning fer fram á vef AKÍS, og hefst um leyð og hún verður aðgengileg þar.
6.3 Skráningu lýkur 2026-06-14 17:00:00.
6.4 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000 innifalið er keppnisskirteini AKÍS
Grein 7 Tryggingar
7.1 Öll tæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
Grein 8 Keppnis og ökuskirteini
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
Grein 9 Merkingar ökutækja
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í hliðarrúðu vinstra megin.
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan.
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst.
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
Grein 10 Ræsing
Grein 10.1 Almennt
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:30 Pittur opnar / móttaka keppenda hefst
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:30 Tímatökur hefjast
14:15 Tímatökum lýkur
15:00 Keppni hefst
19:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
Kærufresti lýkur 30 mín eftir keppnislok.
Verðlauna afhending við stjórnstöð.
Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vef AKÍS, https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/558, einnig verður formleg dagskrá og keppendalstar aðgengilegir í félagsheimili og stjórnstöð keppninnar.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman, einnig verða þau hengd upp í félagsheimili.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Arnar Smári Signýjarson, sem jafnframt er formaður hennar, Guðbjörg Jónsdóttir og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jónas Freyr Sigurbjörnsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga
| Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
|---|---|---|---|---|
| Ágúst Halldórsson | KK | Bílar 8 cyl | Pontiac | Thrillbilly´s racing |
| Eyjolfur mar einarsson | KK | Bílar 4 cyl | Honda integra type r |