CAVEMAN driftið - Íslandsmeistaramótaröð í Drifti 2026, 2. umferð
Skráningu lýkur 16.júní klukkan 17:00
Skráningargjald : 15.000 kr án akís gjalds
Bílaklúbbur Akureyrar heldur 2. umferð ísandsmeistaramóts í drifti á bíladögum í ár! keppnin er 18.júní og í samstarfi við CAVEMAN
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Ökumenn mega hafa að hámarki 3 aðstoðarmenn með hverju keppnistæki og 1. spotter. ATH: þessir aðstoðarmenn þurfa að mæta áður en miðasala opnar svo að þeir fái frítt inn.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Fimmtudagur
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:30 Keppnisæfing allir
10:30 Keppnisæfing aðeins “tandem” akstur
11:00 Matarpása
11:30 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
14:30 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
18:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
BA
Keppnisstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
Skoðunarmaður: Baldur Pálsson
Formaður dómnefndar: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir
Dómnefnd 1: Anna Jóna Garðarsdóttir
Dómnefnd 2: Einar Gunnlaugsson
Framkvæmdanefnd:
Jökull Ýmir Guðmundsson, Þorfinnur Óli Tryggvason, Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
18. júní 2026 kl: 08:00
Driftbraut BA
Lýsing:
Drift
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 1. júní 2026 kl: 12:00
Skráningu lýkur: 16. júní 2026 kl: 17:00
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
SÉRREGLUR CAVEMAN driftið - Íslandsmeistaramótaröð í Drifti 2026, 2. umferð
1.1 Keppnin heitir CAVEMAN driftið - Íslandsmeistaramótaröð í Drifti 2026, 2. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Driftbraut BA
þann 18. júní 2026 kl: 08:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsveg
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jökull Ýmir Guðmundsson, Þorfinnur Óli Tryggvason og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur á internetinu og félagsheimili BA.
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður á Driftbraut BA.
4.1.3 Leiðin er um það bil 500 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-06-16 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 15000
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki sem eru skráð til keppni og standast keppnisskoðun fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Fimmtudagur
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:30 Keppnisæfing allir
10:30 Keppnisæfing aðeins “tandem” akstur
11:00 Matarpása
11:30 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
14:30 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
18:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2026.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Opinn flokkur, Götubílar og Minni götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://docs.google.com/document/d/e/2PACX-1vTV-REnY5kGt4BM-ocXQY5ReSde1nLxuSJRfSCJUEImKjEVZe8jDYDrETq65K91Fyx438z_uZG9Haw0/pub
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir, sem jafnframt er formaður hennar, Anna Jóna Garðarsdóttir og Einar Gunnlaugsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
| Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
|---|---|---|---|---|
| Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | Opinn flokkur | BMW 3 | |
| Ísak Logi Erlingsson | AÍH | Minni götubílar | Bmw e36 | |
| Kristinn saevar Borgthorsson | AÍH | Götubílar | NISSAN 350Z |